Birgitta Hrönn Halldórsdóttir
    <language>is</language>
Plan fyrir 2019
      <description>  Kæri þú sem lest, ég heiti Birgitta H. Halldórsdóttir og mig langar að segja aðeins frá því sem ég hef uppá að bjóða. Ég er reikimeistari og þerapisti í þerapíunni "Lærðu að elska þig" og ég býð uppá sjálfsstyrkingarnámskeiðið "Ný sýn með mínum augum". Ég býð einnig uppá meðferðir í reikiheilun og/eða lestri. Ef þig langar að vita meira eða hafa samband þér er síminn minn 8977119/4527119 og best er að ná í mig á morgnanna milli 10 og 12. Netfangið er langamyri@emax.is og svo er ég á facebook og þar er ég einnig með likesíðu sem heitir " Live in peace and love". Þið finnið mig líka á birgittahh.is.     Reiki: Reiki er heilun með alheimorku sem kennd er á námskeiðum og er talin í stigum. 1. stigs námskeið er ein helgi eða 3 kvöld. Þar lærir fólk að heila sjálft sig og einnig aðra. Þar er kennt að heila veik svæði og einnig orkustöðvameðferð sem er heildræn meðferð. Allir geta lært reiki. Reiki og reikiiðkun er mjög góð leið til sjálfsræktar og sjálfsheilunar. Á reikinámskeiðum fær nemandinn víxlur sem virkja alheimsorkuna og vörn fyrir öllu nema henni.  2.stigs námskeið er einnig kennt sem helgarnámskeið eða 3 kvöld. Þar lærir fólk fjarheilun. Að senda orku óháða tíma og rúmi. Á öðru stigi er einnig víxla sem virkjar kraft þriggja tákna sem fólk lærir á námskeiðinu. Einnig er kennt að vinna úr bernskunni og fortíðinni.  3. stig og meistaragráða. 3. Stig er stundum kennt eitt og sér,þeim sem vilja fullkomna kunnáttu sína í reiki en ætla ekki að vera reikikennarar. Þar er einnig víxla og bætist við meistaratákn. Orkan eykst með hverju stigi en einnig með ástundum.  Reikimeistaragráða er þjálfun hjá viðurkenndum meistara í að minnsta kosti eitt ár. Nemandinn lærir að kenna á námskeiðum með meistaranum sínum, fer í gegnum alskyns hugleiðsu- og agaprógrömm og fl. sem ekki verður tíundað hér.     Sjálfstyrkingarneimskeið: Býð uppá 7 vikna námskeið (hópar) sem heitir "Ný sýn með mínum augum". Kennt er eitt kvöld í viku í sjö vikur og fá nemendur verkefni sem þeir vinna á milli kvölda. Fjallað er um bænir og hugleiðslu, fyrirgefninguna, að gefa sér frelsi, lært um orkustöðvarnar og fólk áttar sig á stefnu sinni í lífinu,svo eitthvað sé nefnt. Í hvert skipti er farið í hugleiðslu og verkefnum gerð skil. Tilvalið fyrir þá sem vilja byrja nýtt ár með tiltekt í lífinu sínu. Skemmtilegt fyrir vini/vinkonur að taka sig saman og vinna saman í sjálfsrækt og sjálfsstyrkingu.     Þerapían "Lærðu að elska þig": Þetta námskeið er 12 skipti á ca. þriggja vikna fresti,einkatímar. Gríðarleg sjálfsvinna, þar sem kafað er í allt sem er óunnið og unnið úr því. Nemandinn fær verkefni sem hann vinnur á hverjum degi á milli tíma og síðan er farið yfir þau í tímanum á eftir.  Þerapían er samin af Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur en hún er búsett á Balí og kennir þaðan.  Einnig er hægt að fá einn og einn tíma til að vinna úr sérstökum málum og gott er að taka prufutíma svo fólk geti séð hvernig því líkar.  Heilun/lestur: Tek fólk í heilun og eða lestur (tarot)   Allar upplýsingar veiti ég síðan þeim sem hafa áhuga. Er tilbúin til að koma með námskeið (allavega á norðurlandi )ef næg þáttaka er.  Er farin að bóka og skipuleggja 2019, svo endilega hafið samband ef þið hafið áhuga.              </description>
Auglýsing
      <description>  Reikiheilun, lestrar og námskeið "Lærðu að elska þig"     Reiki er viðurkennd heilunaraðferð sem margir þekkja. Reiki er einföld aðferð sem allir geta lært. Aðferð þar sem þú lærir að virkja hæfileika þína, sjálfum þér og öðrum til góðs. Þroskar sjálfan þig og gerir líf þitt jákvæðara og gleðiríkara.  Með reiki lærir þú að koma jafnvægi á líf þitt og láta þér líða betur. Reiki er óháð trúarbrögðum, allir geta lært það og nýtt sér á margvíslegan máta.  Reiki er kennt á námskeiðum af reikimeistara og hvert námskeið er helgi eða þrjú kvöld.  Er tilbúin til að koma með námskeið á nærliggjandi staði ef næg þáttaka er. Býð einnig uppá tíma í heilun og lestri fyrir þá sem þess óska.  Er einnig að kenna námskeiðið "Lærðu að elska þig". Það er þerapía sem eru 12 tímar, tek fólk heim og kenni einnig í gegnum skype. Kennt í einkatímum og er hver tími um það bil ein og hálf klukkustund, skjólstæðingar fá síðan verkefni sem þeir vinna næstu þrjár vikur, en tímarnir fara fram á um það bil þriggja vikna fresti.  Námskeiðið "Lærðu að elska þig" er meðferð þar sem ég kenni aðferðir sem stuðla að jákvæðara sjálfsmati, auknu sjálfsöryggi, ánægjulegri lífssýn og meiri lífsgæðum. Fyrir mig sjálfa var mjög gagnlegt að fara í þerapíuna, ég lærði mikið um mig og þarna fann ég aðferð til sjálfshjálpar sem passar vel við reikið.  Hafið samband ef þið viljið fræðast um það sem ég er að gera, komast á námskeið eða fá tíma í heilun, lestri eða þerapíunni. Hægt er að fá prufutíma í þerapíunni ef óskað er. Einnig er hægt að fá staka tíma ef fólk óskar, t.d. til að takast á við vandamál sem uppá koma.  Endilega sláið á þráðinn eða sendið mér tölvupóst eða hafið samband á facebook ef þið haldið að ég bjóði uppá eitthvað sem hentar ykkur.     Birgitta H. Halldórsdóttir reikimeistari sími: 4527119/8977119 email: langamyri@emax.is   Lærðu að elska sjálfa/n þig, er meðferð þar sem ég kenni aðferðir sem stuðla að jákvæðara sjálfsmati, auknu sjálfsöryggi, ánægjulegri lífssýn og meiri lífsgæðum     </description>
Hugleiðing að hausti
      <description>Það er orðið ansi langt síðan ég hef sett færslu hér inn. Það er samt nóg að tala um og af nógu að taka. Ég ætla samt ekki að ræða í dag um pólitík eða samfélagsmál, ég ætla að tala um sjálfa mig og það sem á daga okkar á Löngumýri hefur drifið, eða það sem við erum að brasa þessa dagana.Sumarið var okkur afar gott. Veðrið lék við okkur, heyskapur gekk bærilega, kýrnar hraustar og mjólkuðu og mannlífið á heimilinu alveg einstakt og gott.Við vorum svo heppin í sumar að Vala tengdadóttir okkar bjó hjá okkur rúma þrjá mánuði. Hún var að vinna við sumarafleysingar á Sambýlinu á Blönduósi og stóð sig vel. Hún er ófrísk og var sett núna 1.október, svo að eins og þið getið ímyndað ykkur þá erum við að bíða hér. Já, við gömlu sem sé alveg að detta í það að verða amma og afi. Ótrúlegt þetta unga par ;)Halldór Ingi var að vinna fyrir sunnan og kom heim um helgar. Hann stendur sig alltaf mjög vel í sínu og við alltaf jafn stolt af börnunum okkar.Við vorum með dásamlega hjálp, hana Lilju okkar sem hefur svo oft verið hjá okkur. Hún er nú komin inn í fjölskylduna okkar á fleiri en einn veg því hún er kærastan hans Guðmars frænda hans Inga sem á heima á Eyvindarstöðum. Þau eiga von á sínu fyrsta barni í febrúar og við vorum því umkringd ófrískum snúllum í sumar.Frekar óvenjulegt fyrir okkur en alveg dásamelg tilbreyting og lærdómsríkt í lífið.Ingi er að keyra skólabíl eins og undanfarna vetur og ég er að vinna með reiki og þerapíuna "Lærðu að elska þig" og það gengur vel. Það má því segja að við höfum alveg ljómandi líf og margt að hlakka til á hverjum degi.Við Guðbjörg fórum í sumar ásamt Svövu vinkonu hennar Guðbjargar til Danmerkur til að heimsækja fólkið okkar þar. Það er svo dásamlegt að sjá hvað þau eru öll dugleg. Þarna er Þórhalli og Turid ásamt börnunum að byggja upp nýtt líf í orðsins fyllstu merkingu. Það er alveg ljóst að þegar húsið þeirra verður fullbúið þá verður það fallegt og yndislegt heimili. Það var ofsalega gott að hitta þau og líka Ásgeir og Stínu sem eru einnig búi að festa kaup á mjög fallegu einbýlishúsi á frábærum stað. Það var gleðilegt og gaman að fara og auðvitað mikið að upplifa eins og alltaf. Það er líka svo gott hvað er einfalt og auðvelt að fljúga á Billundflugvöll, því óneitanlega saknar maður fólksins síns sem býr ekki nálægt manni lengur.Guðbjörg er í dreifnáminu á Blönduósi og gengur vel. Þau eru einstaklega heppin með kennara dreifnámskrakkarnir því að hún Ásdís á Hæli er algjör gullmoli í þessu starfi. Guðbjörg er þarna með tveimur vinkonum og það er auðvitað mjög mikilvægt og gott. Þetta fyrirkomulag er algjörlega frábært og ég get ekki sagt hvað ég er glöð yfir að krakkarnir eigi þess kost að stunda nám svona nálægt heimili sínu. Það er svo gott að geta haft þau heima og hún Guðbjörg á sinn eigin bíl og kemur sér á milli skóla og heimilis. Eins gott og það getur verið allt saman.Mig langar líka að segja nokkra góða og jákvæða hluti um Blönduós. Þarna er æðisleg sundlaug, hægt að fara í ræktina ( enda er snillingurinn hún Erla búin að koma mörgum í formið hér) Ömmukaffi bíður dreifnámsnemum afsláttarkort í hádegismat, sem er frábær og góður heimilismatur, svo er Samkaup alltaf með nýbakað handa þeim. Það er auðvitað líka hægt að kaupa sér mat fleiri stöðum en mig langaði bara að nefna það sem er við hliðina á dreifnáminu og mér finnst algjörlega frábært. Það eru svo margir flottir einstaklingar að gera svo frábæra og góða hluti. Mér finnst að við ættum að horfa á það. Það er svo margt í samfélaginu okkar og í kringum okkur sem er ómetanlega dýrmætt. Ég vona líka í komandi alþingiskosningum og svo í vor í sveitarstjórnarkosningum muni fólk eftir öllu sem er gott en fari ekki í persónulegt skítkast. Það er svo lág orka í því og gerir aldrei gagn. Það er margt sem þarf að takast a´við í lífinu og ekki auðvelt að vera bóndi núna eins og allir vita, en eins og oft áður er ekkert í boði nema halda áfram og gera sitt besta.Læt fylgja með eina mynd af síðunni minni sem þið getið skoðað ef þið viljið. Vona bara að lífið verði okkur öllum gott og við höfum vit á að njóta :) </description>
Ótitlað
      <description>Lífið er alltaf jafn ótrúlegt og aldrei að vita hvert það leiðir mann. Íslensku fótboltastrákarnir eru búnir að setja heiminn á hliðina, við erum öll að rifna úr stolti og hlökkum til sunnudagsins þar sem ekki bara öll þjóðin mun senda þeim jákvæða strauma, heldur fólk um víða veröld. Það er dásamlegt. Íþróttafólkið okkar hefur nú undanfarið staðið sig svo vel á öllum sviðum. Það er landsmót hestamanna á Hólum í Hjaltadal þar sem hver gæðingurinn eftir annan slær í gegn. Við erum nýbúið  að kjósa okkur nýjan forseta sem mikil sátt er um og þjóðin mun örugglega standa við bakið á. Allt eru þetta dásamlegir hlutir og því full ástæða til að vera bjartsýnn. Draumar geta ræst, þeir gera það svo sannarlega og við getum verið stolt af svo mörgu við íslendingar.Auðvitað er margt sem við þurfum að breyta og margir sem ekki eru glaðir og vita ekki hvernig þeir eiga að fá hjálp. Við þurfum að hlú að öllum og bæta margt, en saman getum við það. Mig langar samt að biðja ykkur að magna upp allt þetta góða þannig að það hafi margfeldnisáhrif. Finnum góðu tilfinninigarnar í brjóstinu og mögnum þær upp, stækkum þær þangað til okkur finnst við vera að sprynja úr hamingju. Þannig hækkum við orkustigið, aukum hamingjuna og getum þannig lagt okkar að mörkum tilað bæta heiminn. Til að auka hamingjustig heimsins þurfum við að magna innra með okkur okkar eigin hamingju :)</description>
Hugleiðing á sauðburði
Er að læra að elska mig
Um dauða kú og ónýtt kerfi
      <description>Nú er ég búin í heilan sólarhring að velta fyrir mér hvað ég eigi að gera. Segja nákvæmlega frá því hvað ég upplifði um síðustu helgi eða setja það bara bak við mig og halda áfram. Niðurstaða mín varð sú að ég þarf að tala meira um þetta, vegna þess að ég er bóndi, vegna þess að við erum með ónýtt kerfi, vegna þess að bændum er ekki treyst í raun fyrir skepnunum sínum og vegna þess að ég skulda kúnum mínum það, sem hafa drepist vegna aðstæðna eins og komu upp um helgina. Það er einfaldlega ekki hægt annað en koma þessu frá sér, þó að ég hafi aðeins minnst á þetta á facebókarsíðu minni, þá er það ekki nóg. Við sem berum ábyrgð á lifandi dýrum eigum að vera verndarar þeirra og fá að hafa til þess lyf og annað sem getur hjálpað þeim, læknað og linað þjáningar. Við getum ekki búið við það í íslenska vetrinum að fá ekki til okkar dýralækna kannski dögum saman, þar sem veður eru vond eða enginn sem getur sinnt útkalli. Við verðum og eigum að fá að eiga lyf til að nota í neyðartilfellum. Annað er óásættanlegt.  Á laugardaginn 13. des. komumst við hjónin að því að ein af okkar betri kúm, hún Hosa, var komin með júgurbólgu. Við ákváðum að hafa samband við dýralækni og fá hann til að koma og sprauta  hana. Við ætluðum að nota ferðina og fá dýralækninn til að skoða einnig naut sem hafði ekki étið í nokkra daga og við fundum ekkert að. Málið með júgurbólgu er, eins og allir vita sem þekkja, að bregðast við nægilega fljótt.  Ég hringdi í þjónustudýralækninn sem býr við Hvammstanga, hún benti mér á hvaða dýralæknir væri á vakt. Þannig er nefnilega kerfið hér að fjórir dýralæknar skipta með sér kvöld- og helgarvöktum á norðvesturlandi og eina viku í senn.  Ég hringdi í vaktdýralækninn, en þar kom símsvari sem sagði að hún yrði komin í frí frá og með 14.des. Það sem enn var 13. des. talaði ég inn á símsvarann hennar í þeirri trú að hún hringdi til baka áður en hennar vakt lyki. En ekkert gerðist. Eflaust hefur hún bara verið upptekin og á kafi í vitjunum. Seinna um daginn fór sonur okkar heim til hennar til að reyna að ná sambandi en þar var enginn heima og því ekki hægt að nálgast lyf eða læknisþjónustu þannig.  Kýrin var orðin mjög veik og brugðum við á það ráð að fá lánaðar gamlar restir af pensilíni hjá nágrönnum okkar enda allir alltaf boðnir og búnir að reyna að gera eitthvað ef hægt er. Það skrapaðist saman glas af penovet sem við notuðum þá um kvöldið og á sunnudagsmorgni. Samt sem áður hrakaði kúnni.  Á mánudagsmorguninn hringdi ég í símatíma í Hvammstangadýralækninn okkar og hún brá snöggt við og kom. Kýrin var þá alveg lögst fyrir og greinilega mjög kvalin. Það að keyra frá Hvammstanga og til okkar tekur klukkutíma í góðu veðri en þarna var veður bara frekar slæmt. En það stóð heima að þegar dýralæknirinn mætti á svæðið var kýrin dauð.  Það var því lítið að gera fyrir blessaða kúna. Það var ekki dýralækninum að kenna sem öll er af vilja gerð. Það var ekki okkur að kenna þó að við hefðum kannski átt að reyna að ræsa út einhvern sem var ekki " á vakt". Það var heldur ekki vakthafandi dýralækni að kenna sem örugglega hefur verið önnum kafin í alltof stóru umdæmi. Ég vil allavega ekki trúa því að neinn fari af sinni vakt. Það er einfaldlega því að kenna að það eru reglugerðir sem banna okkur bændum að eiga lyf til að bjarga skepnunum okkar. Varaglas af engemycin hefði örugglega haldið lífinu í Hosu.  Einhver hugsar kannski ein kú hvað? Þetta er bara ekki þannig. Það að missa kú er stór biti, en þetta er samt miklu stærra mál. Við bændur erum alltaf að berjast við þetta, að missa dýr vegna þessa. Sum lifa af en verða ónýt til allrar framleiðslu og eru búin að líða óþarfa kvalir. Þetta er ekki dýravernd og þetta er óþolandi. Við búum í landi þar sem allra veðra er von. Við búum við það að næsti dýralæknir er í 30-100 km. fjarlægð eftir því hver er á vakt. Í okkar sýslu er enginn starfandi dýralæknir. Hvaða vit er þetta?  Sumri vilja kannski segja, af hverju kvartaðu ekki á rétta staði? Svar, ég er búin að því. Við lentum í svipuðu dæmi fyrir tveim árum þar sem fárveik kýr lá hjá okkur í fjóra daga og ekki séns fyrir nokkurn að komast til okkar. Það var einfaldlega brjálað veður. Hún lifði en varð auðvitað ónýt til mjólkurframleiðslu. Algjörlega að óþörfu vil ég meina. Þá skrifuðum við MAST og vildum fá svör við því hvað bændur ættu að gera í svona tilfellum. Svarið kom afar seint og ekki fyrr en við höfðum gengið verulega eftir því. Jú, alvörubændur eiga sko að hafa vit á því að vera bara með heita bakstra í fjósinu þar til dýralæknirinn getur komið. Nákvæmlega og við erum sem sé bara fávitar, eða hvað?  Í gær þegar ég minntist á þennan kýrmissir á facebókinni fékk ég mörg og góð viðbrögð. Bændur þekkja þetta og við erum öll að glíma við sömu vandamálin. Einn ágætur nágranni minn, Ægir Sigurgeirson, skrifaði t.d." Hef lent í svipuðum aðstæðum, kýr fékk háann hita að kvöldi um helgi í slæmu veðri, hringi í dýralækni á vakt í næstu sýslu sem sagðist ekki komast og myndi athuga þetta á morgun. Kýrin reyndar lifði, en þurfti margfaldan lyfjaskammt, missti lystina og hætti nánast að mjólka, hlaut varanlegar skemmdir á júgri þannig að henni þurfti að farga. Það er alveg ljóst að því lengur sem dregst að hefja meðhöndlun því meiri líkur eru á varanlegu tjóni. Sé meðhöndlun hafin um leið og sjúkdómurinn greinist má oft ráða niðurlögum hans á tiltölulega auðveldan hátt, en það er nánast útilokað eins og kerfið er í dag. Maður má ekki eiga lyf, enginn dýralæknir í héraðinu, tekur oft langan tíma að fá lækni úr öðrum héruðum. Það er eins og kýrnar viti ekki af því að það ætlast til að þær veikist aðeins á morgnanna á virkum dögum, en ekki á kvöldin eða um helgar og að ekki sé talað um ef færð er slæm.  Hvað svo með þá vanlíðan og heilsutjón sem gripirnir verða fyrir vegna þess að meðhöndlun hefst of seint? Hvar eru allir eftirlitsaðilarnir og dýraverndunarsamtök?"  Ég veit um svo mörg svona dæmi og þess vegna er ég að skrifa þetta. Ég er ekki að skrifa þetta til að kenna einhverjum sérstökum um ástandið. Dýralæknar verða að vinna samkvæmt ákveðnum reglugerðum og geta ekki annað. Þau eru heldur ekki öll hrifin af þessu fyrirkomulagi, enda er hæpið að nokkur geti verið hrifinn af slíku sem lætur sér velferð dýra varðar.  Ef til vill finnst einhverjum að ég ætti ekkert að vera að rugga bátum, ég gæti verið skoðuð meira fyrir vikið, fylgst með hvort "ég" standi mig í stykkinu sem bóndi. Mér er bara alveg sama, ég er ekki að standa mig í stykkinu og standa með því sem mér er treyst fyrir ef ég segi aldrei neitt.  Ég veit að mörgum finnst ég öfgafull hvað skepnur varðar. Ég vil að öll dýr hafi nóg að borða, ég vil að þeim líði vel og ég geri það sem ég get en örugglega ekki alltaf nóg. Ég veit að ég gef hrafninum og banna að láta skjóta hann á mínu landi. Ég veit að ég er mjög sérvitur og ég vil geta treyst því að þeir sem með skepnurnar mínar höndla geri það af virðingu og á sem bestan hátt fyrir þær, þá er ég að tala um flutningsaðila og starfsmenn sláturhúsa. Ég vil eiga möguleika á að hjálpa skepnunum mínum í nauð ef þarf, þó að ég sé ómenntuð bóndakona og búi í dal norður í landi. Fyrir utan það að halda vöku minni og taka ábyrgð þá þarf ég að fá að hafa lágmarks lyf í fórum mínum. Að sjálfsögðu mundi ég alltaf tala við dýralækninn minn áður en ég notaði þau og skrá allt sem ég geri. Það er ekkert mál og finnst öllum sjálfsagt. En hvað er þá að?  Á árum áður þegar aldraður faðir minn og einn góður aldraður vinur bjuggu hjá mér var mér treyst til að sprauta þá "gömlu mennina" með ýmsum lyfjum og sumum frekar vandmeðförnum. Ég fékk morfín og ýmis lyf sem þeir áttu að taka til að líða betur. Mér var treyst fyrir því og var mjög þakklát fyrir það. Mín skoðun er að fólk eigi að fá að vera heima hjá sér eins lengi og það getur, en það kallar auðvitað á að aðstandendur höndli með alskonar lyf. Þetta sparar líka fyrir heilbrigðiskerfið, sem er gott. EN af hverju er mér ekki treyst fyrir pensilínglasi, til að bjarga nautgrip eða kind?  Það eru starfandi mjög góðir dýralæknar á norðurlandi vestra, en reglugerðir frá MAST gera þeim erfitt fyrir og bændum enn erfiðara. Það er mergurinn málsins. Ef einhver verður fúll út af þessum skrifum mínum, þá er mér alveg sama. Þetta er ekki presónulegt á neinn hátt, þetta er dýraverndunarmál. Allir bændur sem eru með heilbrigða hugsun og hafa ekki brunnið yfir af einhverjum orsökum, hljóta að láta sig þessi mál varða. Við erum þau sem eigum að standa með og standa upp fyrir skepnunum okkar. Það er okkar skylda. Þau eru okkar lifibrauð og við erum baklandið þeirra. Hlutir eiga að virka í báðar áttir, alltaf.                                                         </description>
Nýjasta nýtt
      <description>Kæru þið sem lesið.Langt síðan ég hef bloggað enda búið að vera í mörgu að snúast. Allt er samt gott og blessað eins og þar stendur. Mig langar að koma með fréttir af Töfrakonum, mér og mínum kæru vinkonum. Við erum alltaf að pjakka í okkar málum og als ekki búnat að leggja upp laupana þó að við höfum kannski ekki verið mjög ábernadi uppá síðkastið. Það þýðir samt ekki að það hafi verið lognmolla yfir okkur.Hér fyrir ofan er ein af fallegu peysunum með Laxamunstrinu sem hún Jóhanna okkar gerði svo meistaralega. Mig langar til að setja hér smá sýnishorn af því sem við eigum til og við erum að selja einmitt núna.Hér er til dæmis ein falleg og björt. Við eigum dálítið magn af tilbúnum peysum og einnig tekur Jóhanna niður pantanir, prjónar og hannar það sem hver og einn vill. Hefur hún verið að gera töluvert af því undanfarið. Hrafnhildur er alltaf að framleiða skart fyrir okkur og má nefna skemmtilega íslenska hugmynd sem hún þróaði og gerði en það eru hálsmen úr kindahornum og hreindýrshornum. Eigum við það til á lager.Hér má sjá hálsmen úr hreindýrshorni, tilvalinn verndargripur.Auk þessa er Hveravallagull (silfurlauf) alltaf í smíðum, við erum með rúnirnar okkar og steina og bækur til sölu en erum nú að losa okkur við lager af eldri bókum. Erum við því að selja þær á hlægilegu verði. Þess má líka geta að nýjar vörur og sögur eru í smíðum en of snemmt að upplýsa það.Vildi bara lata vita af okkur vinkonunum sem erum hressari en nokkru sinni fyrr  </description>
Sumarið er tíminn ..........
      <description>Ágætu vinir.Ákvað að setja inn eina góða mynd af okkur Jóhönnu þar sem við erum í miklu spá og kennslustuði þessa dagana. Heilunarbekkurinn er kominn á sinn stað, spilin eru við hendina og reikibjallan notuð mikið. Þuríður er svo væntanleg norður og verður með okkur meira og minna í sumar. Við erum búnar að setja vörurnar okkar á Laxasetrið á Blönduósi, en þar munum við líka vera þegar mikið er um að vera og alveg ákveðnar í að búa þar yfir Húnavökuna og hafa gaman með hinum ýmsustu uppákomum. Það er ekki amarlegt að vera í félagsskap Valla, Alla og Huldu, yndæla fólksins á Laxasetrinu.En það er fleira í farvatninu. Mig langar til að segja frá því að ég er tilbúin að koma, allavega hér á norðurlandinu og kenna reiki, taka í heilun eða spá, ef næg þáttaka er. Það er upplagt að nota þessa þjónustu fyrir  þá sem hafa áhuga, t.d. saumaklúbba sem eru að fara í bústað, kvenfélög, ættarmót, bænahópa, alskonar félagsskap eða taka sig saman vinir og vinkonur og fá spádóma eða reiki, eða bæði.. Svo er bara um að gera að slá á þráðinn eða senda póst og fá nánari upplýsingar. Það eru líka upplýsingar um reiki á síðunni minni hér sem hægt er að skoða.Þeir sem hafa einhverntíman lært reiki og langar að dusta rykið af kunnáttunni eru líka hvattir til að hafa samband, ég er til í að aðstoða þá gegn vægu gjaldi, bara um að gera að nýta sér allt það góða sem í kringum okkur er og hjálpa okkur sjálf.Annað sem mig langar til að biðla til ykkar með. Nú hef ég tekið að mér að sjá um vísnaþáttinn í hinu þjóðlega tímariti "Heima er bezt" og þætti mér afar vænt um ef þið vilduð deila með mér vísum og ljóðum eftir ykkur eða ættingja ykkar sem ég mætti setja í blaðið. Vinsamlegast sendið mér á netfangið langamyri@emax.is og þar er alltaf hægt að ná í mig.Annars verð ég að segja að sumarið er okkur gott á Löngumýri, styttist í heyskap og okkur líður vel. Lilja Gunnarsdóttir er hjá okkur eins og síðastliðin sumur, svo við erum vel sett með hana og Guðbjörgu okkar til að hjálpa okkur eldri deildinni. Halldór Ingi vinnur hjá Bessa í Hofstaðaseli og því lítið sem við sjáum af honum en gott sem það er. Hér eru komin heilmörg folöld og við spennt að spá i þau sérstaklega afkomendur Hnokka frá Dýrfinnustöðum. Tíu hestar eru komnir á járn og tveir í tamningu hjá Írisi frænku í Húnaveri. Það er eldseig stelpa og ég hlakka til að deila myndum af henni á klárunum seinna. Sú skvísa á eftir að ná langt á hestbaki ef ég er einhver spákona.Í lokin ein gömul Húnavökumynd, rétt til að minna á að taka þá helgi frá:)Hafið það sem allra best!!!</description>
Ótitlað
      <description>Gleðilegt ár 2013. Ég vona að árið verði okkur öllum gæfuríkt og gott. Megi friður ríkja í hjörtum okkar og hamingja flæða um sálirnar :)Nú þegar nýtt ár er komið skoðum við oft stundatöfluna og skipuleggjum eins og vert er að gera í Steingeitarmerkinu. Hef ég því ákveðið að halda fyrsta 1. stigs reikinámskeiðið á árinu 19. og 20. janúar, helgarnámskeið, ef næg þáttaka fæst. áhugasamir hringi í síma 4527119 / 8977119 eða sendi mér póst á langamyri@emax.is. Einnig geta hópar haft samband og við getum fundið tíma sem hentar.Stefni á 2.stigs námskeið 15. og 16. febrúar, en er til viðræðu um aðra tíma.Einnig býð ég uppá sex vikna sjálfsstyrkingarnámskeið/ sjálfsskoðun og heilun. Námskeiðið er einu sinni í viku og síðan vinnur fólk heima þess á milli. Er tilbúin að koma með námskeiðin mín á nærliggjandi staði sé þess óskað, t.d. Blönduós, Skagaströnd, Hvammstanga, Varmahlíð eða Sauðárkrók.Þeir sem hafa áhuga á þessum námskeiðum, efri stigum reikissins, heilunartímum eða fyrirbænum geta alltaf haft samband. Endilega sláið á þráðinn eða sendið póst ef einhverjar spurningar vakna og skráðið ykkur sem fyrst ef þið ætlið að vera með.     Gæfan fylgi ykkur inn í nýja árið :)</description>
Haust, gott og slæmt
      <description>Óneitanlega kom haustið aftan að okkur. Þetta andstyggðarskot sem hefur gert margri skepnunni lífið óbærilegt og mörgum manninum tjónið stórt, eitthvað sem hefur orðið að svefnlitlum nóttum og sorta í sálinni. En fólkið sem vann við björgun á sauðfénu um allar jarðir á svo sannarlega heiður skilið. Undarlegt hvað sumar skepnurnar eru lífssegar og aðdáunarverðar . Það var auðvitað ömurlegt til þess að vita að tófan væri að éta skepnurnar lifandi, en vonandi verður þessi hræðilega kvöl þeirra til þess að stjórnvöld togi uppum sig buxurnar og horfi með opnum augum á hvað er að gerast. Við friðum ekki varginn. Það er enginn að hafa á móti viltum dýrum og jafnvægi í náttúrunni, en að friða ref er stórhættulegt enda virðist fuglalíf vera að þurrkast út á þeim svæðum sem tófan ræður ríkjum. Engir mófuglar segja þeir sem þarna búa. Ég held að það sé alltaf skynsamlegast að hlusta á þá sem búa á hverjum stað, bæði hvað varðar nýtingu lands og framkvæmdir. Við þekkjum okkar heimabyggðir og vitum hvað þær bera og þola. En þrátt fyrir kuldakast og lélegar heimtur ennþá get ég ekki annað en glaðst yfir því sem komið er. Það var verið að velja líflömb hér í dag, ráðunautar að ómæla og nágrannar og vinir að hjálpa. Slíkir dagar eru óneitanlega skemmtilegir og gefandi. Gimbrarnar okkar eru bara nokkuð góðar og fyrri slátrunin kom vel út. Ég er því alsæl með það og allt gott á að þakka. Þannig er það. Og hreppaskil eru ekki komin hjá okkur og einhver svæði ósmöluð svo enn er von. Það er lengi von á einu. Gaman að segja frá því að þetta par eignaðist 6 hvolpa sem eru  hjá mömmunni í Húnaveri, 5 tíkur og 1 hund. Glókollur mun sennilega taka eina dótturina í uppeldi enda hefur honum tekist vel með stelpuna sem býr hér hjá honum. Hún á örugglega eftir að verða eins og hann, dúndur smali og sérfræðingur í að tína upp eftirlegukindur. En ég held að það séu ekki allar tíkurnar lofaðar hjá Þórhalla og Turid ef einhver hefur áhuga.Þetta er Vala Glókollsdóttir eftrlæti allra á Löngumýri :)En fyrst að ég er að tala um hunda þá brá bóndi minn út af vananum og hlýfði Glókolli við seinni göngurm, enda var hann haltur eftir erfiða daga, og tók Bolla með sér. Bolli minn stóð sig vel og er afburðahundur, en það er erfitt að búa í sama búri og goðsögnin. En við erum einstaklega heppin með hunda. Þó að við höfum ekki farið með þá í keppnir þá eru þeir að skila okkur afburðavinnu og ómetanlegri hjálp. Ef við ættum ekki nothæfa hunda, þá einfaldega værum við ekki að þessu.En þarna er karlpeningurinn, en eins og sjá má er Bolli með hjarta á höfðinu og fullkomið border collie  útlit :) Sumarið var talsverð törntókst mér þó að sanna,að heppin er með hunda og börnhjásvæfu og granna.Vona að við eigum öll gott haust og gleði í hjarta  </description>
Ótitlað
      <description>Nú er komið að því að hugsa dálítið inn í veturinn þó að enn sé sól og sæla og gangnastúss og réttir rétt að hefjast. Það er nú einu sinni þannig að allar árstíðir hafa sinn sjarma og allt er þetta gott hvað með öðru. Mann langar alltaf að sjá uppskeruna sína þó að það sé ekki gaman að senda lömbin í sláturhúsið. Þá er allvega gaman að sjá líflambahópinn og spá í hvar sé gáfulegast að fá hrút til að kynbæta. En eftir að ég klára að vera veiðiverja, sem er um næstu mánaðarmót og líður á haustverkin hef ég hugsað mér að halda reikinámskeið, sjálfsstyrkingarnámskeið og fara aftur að taka fólk í heilun og lestur. Vil samt endilega minna ykkur á að ég er alltaf að vinna með fjarheilun og fyrirbænir, hvað svo sem ég er annað að bauka.  En þið ykkar sem hafið áhuga á námskeiðum hjá mér endilega hafið samband sem fyrst, ég er að skipuleggja tímann minn. Einnig þið sem viljið panta einhverskonar aðra tíma eða koma og rifja upp, bara hafið samband. Ég er með fólk sem bíður eftir 1. stigi í reiki og ég reikna með námskeiði í október og ef til vill 2. stigs námskeiði þá líka.Bara svona að minna ykkur á Töfrakonur í leiðinni. Við erum að uppfæra síðuna okkar og brátt verður hún mjög flott sölusíða þar sem þið munuð getað verslað í körfu og skoðað í rólegheitum hvað við höfum í boði. Þetta verður mikil bylting fyrir okkur, þá munum við alltaf getað haft inni það sem er óselt en tekið hitt jafnóðum út.En af því að ég er mikið að hugsa um reiki þessa dagana og vil minna ykkur á sem hafið lært það að nota það vel. Munið hvað þið hafið í höndunum fyrir ykkur og aðra. Ég hef ákveðið að setja hér inn reikiblessun sem allir geta notað sem hafa tileinkað sér reiki. Þetta er gjöf mín til ykkar í dag og vona að þið njótið :)Reiki-hreinsun-heilun-blessun.     Sitjið í stól eða sofa, algjörlega slök. Verið berfætt og látið iljar nema við gólf. Í lófa ykkar liggur blað þar sem þið hafið skrifað á óskir ykkar og þrár, nákvæmlega niðursettar. Hafið bænirnar hnitmiðaðar og ekki fleiri en svo í einu að þið náið að hugsa um það sem er á blaðinu.     Þið slakið vel á og opnið fyrir reikiorkuna á bænirnar. Segið upphátt eða í huganum eitthvað á þessa leið: Ég bið um algjöra hreinsun, heilun og blessun á allt það sem á þessu blaði stendur, á allar mínar bænir og ég bið um að þetta virki fullkomlega fyrir mig og fjölskyldu mína á öllum sviðum lífsins, við allar aðstæður og á öllum tímum. Ég bið um að allar bænir sem upp í hugann koma á meðan á hugleiðslunni stendur fái einnig alla þá hreinsun, heilun og blessun sem þær þurfa á öllum tímum og við allar aðstæður á öllum sviðum. Ég bið um að öll sárarbrot og sálarkrækjur sem ég kann að hafa séu hreinsuð frá mér og einnig þær sálarkrækjur og sálarbrot sem ég hef krækt í aðra séu afturkölluð og endurleyst á öllum sviðum svo að ég sé algjörlega laus undan öllum áhrifum nema mínum eigin. Ég bið um fullkomna jarðtengingu fyrir mig og fjölskyldu mína sem virkar á öllum sviðum nú í fortíð og framtíð, við allar aðstæður alltaf. Ég bið um fullkominn kærleika á öllum sviðum lífsins við allar aðstæður og á öllum tíma. Ég bið um fullkomana hreinsun, heilun og blessun.     TAKK FYRIR, ÞAÐ ER GERT, ÞAÐ ER GERT, ÞAÐ ER GERT.     Nú skuluð þið taka nokkrar mínútur í að hugsa um bænablaðið ykkar og allt sem á því stendur. Njótið stundarinnar og leyfið einnig upplýsingum að flæða til ykkar hvort sem er í myndum, setningum inní höfðinu eða hugsun. Gott er að hafa blað við hendina og punkta niður ef upplýsingar koma því að þær vilja oft hverfa um leið og við förum úr alfaástandinu.     Sitjið og njótið eins lengi og þið viljið og þakkið síðan fyrir.      </description>
Ljúft og blautt líf
      <description>Þar sem ég ek um dali og sveitir og stunda veiðivörsluna mína er nú allt í einu allt blautt, pollar á vegum og rúðuþurrkurnar hafa varla við. Kærkomið fyrir jörðina held ég hljóti að vera. En það er pínulítið skrýtið eftir allt sólskinið og hitann að fá rigningu. Er samt als ekki að kvarta og líður vel. Við þurfum þá ef til vill ekki lengur að keyra vatni í hólfin sem ekki liggja að Blöndu eins og Ingi hefur gert í mestallt sumar. Þetta er allt saman gott held ég. Gangnamenn eru lagðir af stað eða að leggja af stað og eflaust blotnar í þeim. Ég vona samt að þeir njóti sín á heiðunum og blotni bæði að utan og innan þá sem langar það  Hlakka auðvitað til næstu helgar að sjá lömbin koma af fjalli og hitta vini og vinkonur bæði tví- og fjórfætt í réttunum.Þessar dásemdar frænkur voru þarna á Hveravöllum í sólinni í sumar en nú koma gangnamennirnir okkar þangað í kvöld og allavega ættu þeir að njóta þess að komast í pottinn góða :)Er pínúlítið húkt á Hveravöllum núna og hugsa til ganganamanna. Hlakka líka til að fá Lilju sætu í réttirnar. Veit að þessar vinkonur munu njóta sín þar.En svona í lokin ein mynd af sólstrandargæjanum mínum :)Vona að þið eigið ljúft líf :)</description>
Sumarið 2012
      <description>Það verður ekki með ofsögum sagt að sumarið er búið að vera sólríkt og sannarlega gott hjá mér. Við heyjuðum fyrri slátt á fáum dögum loksins þegar við byrjuðum, enda var ekki hægt annað en að bíða til að fá meira gras. Þessi bið, sem mér fannst nú frekar löng á meðan ég horfði á hina heyja var vel þess virði og við fengum ágæta uppskeru. Svo er bara að vita hvernig rest sumarsins skilar sér og hvernig seinni slátturinn kemur úr, alltaf spennandi þessi blessapur búskapur,Langar líka að sýna ykkur hvað fallegu börnin okkar eru orðin stór. Alveggullfallegir einstaklingar og ég rifna úr monti í hvert skipti sem ég hugsa um þau  Eins og einhverjir vita þá er ég búin að vera að vinna við veiðivörslu í sumar fyrir Veiðifélag Blöndu og Svartár. Þótti nú sumum undarlegt að ég væri veiðivörður þar sem kalinn minn blessaður er orðinn formaður félagsins. Verð ég nú að segja eins og er að hann kom ekki að þessu máli og ég veit ekki einu sinni hvað honum fannst það gáfulegt. En staðreyndir var samt sú að ég bauð lægst í þessa vörslu og fékk vinnuna. Það er búið að vera mjög skemmtilegt og fræðandi að hitta alla veiðimennina, gætana, starfsfólk Lax-ár og alla hina sem ég hef hitt og spjallað við í sumar. Fyrir svo utan það að þá veit ég svo miklu meira um veiði og veiðimenn en áður. En það er nú ekki öll nótt úti enn, veiðitíminn er til 20 september í Svartá svo að ég held áfram að rúnta hér um dali glöð og ánægð. En Ágúst vinur minn á Geitaskarði kallar mig nú veiðiverju í hvert skipti sem við hittumst. Ekki svo slæmt að vera verja..............eða hvað............Hér kemur svo ein sólarlagsmynd sem var tekin á Torfalæk þar sem við vorum eitt kvöldið að kíkja á væntanlega kornuppskeru.En eins og venjulega þá liggur nokkuð vel á okkur á Löngumýri. Okkur tíkst að klára stétt við húsið sem reyndar er búin að vera í vinnslu í fjögur ár. Þetta er svona til að setja punktinn yfir þá er við steyptum undir húsið. Gamla góða húsið okkar var nefnilega nokkurskonar flothús en nú er búið að steypa það niður, skipta um jarðveg og núna síðast setja hellur við tvær hliðar á húsinu. Það mun verða mikið snyrtilegra að ganga um og á sólríkum dögum verður örugglega gott að setjast á hellulagða stétt og reka nefið upp í sólina. Við fengum líka yndislega hjálp við þetta :)Hér má sjá stéttina góðu þar sem þessir knáu piltar, Ingi og bræður mínir tveir, Þorbjörn og Þórhalli velta eflaust fyrir sér hve margir gætu dansað þarna í einu :)Svo eru það auðvitað vinkonurnar Guðbjörg og Ljósbrá í hlýju og fallegu sumri.Vona að lífið sé ykkur gott :)</description>
Löngumýrarfréttir í apríllok
      <description>Hér má sjá Guðbjörgu heimasætu með reiðmerina Ljósbrá og Brúnblesa. Heldur vígaleg mynd þar sem má búast við hverju sem er af þessum þrem ;) En Guðbjörg er á reiðnámskeiði á Blönduósi þar sem hún mætir með Ljósbrá og þær nema fræði hjá Barböru á Höllustöðum. Guðbjörgu finnst þetta mjög skemmtilegt og á morgun 1.maí mun hún taka þátt í Æskulíðssýningu á Blönduósi. Guðbjörg er öll á kafi í hestamennskunni og keypti sér sjálf hest um daginn. Sá heitir Valíant og er brúnsokkóttur 6. vetra með strýpu í faxinu. Allt útlit er á að þeim skötuhjúum muni semja vel enda fórum við fjölskyldan suður á land að skoða gripinn um leið og við fórum í fermingu Gests Daníelssonar og á árshátíð sauðfjárbænda. Það var rosagóð ferð og Valíant flutti til okkar í framhaldinu.Annars er allt gott af okkur. Búskapurinn gengur sinn vanagang og sauðburður í undirbúningi. Sjálf fór ég á bráðgott námskeið um daginn á Löngumýri í Skagafirði sem heitir "Sauðburður og burðarhjálp". Það var fróðlegt og fínt námskeið. Gemlingarnir okkar eru að komast á tal en hinar eldri munu ekki eina tal fyrr en 10.maí. Samt líður tíminn hratt og áður en varir verða lömbin farin að skoppa út um tún. Þetta er frábær tími. Sá allra besti, vorið þegar allt lifnar við . Ég má auðvitað ekki gleyma því að aðal töffarinn í lífi mínu er orðinn formaður Veiðifélags Blöndu og Svartár. Það gerðist á aðalfundi félagsins í fyrradag og minn fékk afar rússneska kosningu. Ég er að sjálfsögðu glöð yfir því og er viss um að hann á eftir að vera flottur í þessu. Hver segir svo að það séu engar fréttir:)</description>
Allt getur nú gerst
      <description>Tíminn líður hratt...........og ég ætla að vera svo dugleg að blogga, svo dugleg að ríða út, svo dugleg að skrifa en svo líður bara tíminn. En þrátt fyrir að mér finnist lítið hafa gengið hef ég samt lokið við að skrifa nýju væntanlegu barnabókina mína "Ævintýri tvíburanna á Spáni" og gert margt fleira skemmtilegt.Eitt af því skemmtilega sem ég er nýbúin að afreka er að vera á málningarnámskeiði hjá Guðfinnu Hjálmardóttur, sem kom norður fyrir tilstilli Kristmundar Valberg og kenndi okkur yfir helgi. Ég hef verið hjá henni áður og finnst þetta alveg dásamlegt. Við vorum þarna nokkur saman og þarna sköpuðust hin skemmtilegustu listaverk. Á strigann spruttu fram alskyns myndir en hún vinnur með olíu. Ég sem áður hafði búið til mynd frá Thailandi handa Halldóri ákvað að gera eitthvað Indverskt fyrir Guðbjörgu. Hér fyrir ofan er hún svo myndin sem ég færði dóttur minni eftir helgina. Ég er alsæl og ætla að halda áfram að mála (milli þess sem ég skrifa, blogga, ríð út, gef út, heila og er fyrirmyndar bóndi, móðir og eiginkona:) En án gríns þá vona ég að eitthvað fleira skapist á strigann sem ég á til. Ég verð að segja ykkur frá því að Gunna vinkona okkar á Kúlu eldaði fyrir okkur alla helgina og ég bókstaflega rúllaði heim.Hér má svo sjá stelpuskottin á bænum á leið í hesthúsið að knúsa Ljósbrá og Baron. En til nánari útskýringar þá er Ljósbrá hryssan mín sem Guðbjörg notar alltaf og er frá Magna í Árgerði. Þær stöllur fara á Blönduós á reiðnámskeið einu sinni í viku og taka þar tilsögn Barböru á Höllustöðum.Baron er hins vegar gullfallegt folald sem Halldór gaf Magneu í haust.Af þeim skötuhjúum Halldóri og Magneu er það að frétta að þau eru búin að leigja sér íbúð á Skagaströnd, alveg ljómandi góða íbúð. Við gömlu ásamt Guðbjörgu eru búin að fara tvisvar í matarboð til þeirra og vitum nú (sem við vissum fyrir líka) að Magnea er alveg frábær kokkur. Við erum líka búin að hitta fjölskyldu hennar, sem var frábært, enda hlaut svona frábær stelpa að eiga frábæra fjöskyldu. Það hefur sem sé ýmislegt gengið mjög hratt hjá þeim og það er bara gott.Þetta eru sem sé Magnea og Baron.Það hefur nú ýmislegt fleira gerst sem ekki er eins skemmtilegt. Við fengum algerlega óboðna gesti á  heimilið og hefði ég frekar búist við því að ég myndi detta niður steindauð en að ég myndi finna LÚS í sjálfri mér. Það gerðist sem sé.Það kom upp lús í Húnavallaskóla í fyrsta skipti svo ég muni eftir frá því að skólinn tók til starfa 1969. Uppi varð auðvitað fótur og fit og þá kom í ljós að við höfðum sko ekki haldið vöku okkar og engum dottið í hug að við gætum fengið svona heimsóknir. Ég fann eina lús í hárinu hennar Guðbjargar og aðra í mér. Svo var þvegið með viðeigandi efnum og húsbóndinn á heimilinu rakaði af sér allt hárið. Ég get alveg viðurkennt að hér hefur þvottavélin og þurrkarinn gengið dag og nótt og frystirinn fylltist af púðum og böngsum. En þetta er auðvitað bara verkefni eins og annað en ég get ekki sagt með sanni að mér hafi fundist þetta skemmtilegt. Allvega hef ég oft fengið gesti í mitt hús sem hafa verið velkomnari.  En búskapurinn gengur sinn vanagang. Þetta er holdakýrin mín Stella með son sinn Jón Mána sem dafnar vel.Hér eru svo krakkakrílin Halldór á Tígli og Guðbjörg á Ljósbrá.Svona af því að ég nefndi það í síðasta bloggi sem var fyrir lööööööööööngu síðan að við Ingi værum að fara að skemmta okkur á árshátíð karlakórsins og þorrablóti, þá langar mig að segja ykkur að þessar skemmtanir tókust alveg frábærlega vel. Við gömlu dönsuðum af okkur rassgatið svo ekki sé meira sagt. Eftir þorrablótið var ég með blöðrur á fótunum eftir að djamma á háu hælunum en það var sko þess virði. Get ekki beðið eftir að dansa aftur.........vonandi verður það fyrr en seinna.Þessi tvö hafa ekkert úthald í dansinum miðað við okkur eldra settið og sennilega myndum við líka mala þau í hsetamennskunni. En lífið er dálítið ljúft og ég er þakklát af öllu hjarta fyrir fólkið mitt og það að allir eru heilbrigðir og hraustir.</description>
Gleðilegt ár
      <description>Mín kæru, gleðilegt árið. Megi það færa okkur öllum gæfu og gleði.Tilvalið að setja inn nokkrar línur þar sem komið er nýtt ár og jólin að klárast í dag.Það er auðvitað allt að komast í frekar fastar skorður. Skólinn byrjaður, búið að strengja heit um að ná af sér jólakonfektinu og ég farin að skrifa. Þetta eru persónulegustu fréttirnar :)Hér má sjá dóttur okkar, fallegu sem nú er orðin 12 ára. Hvernig getur tíminn liðið svona hratt? Það getur bara ekki verið að það sé svona langt síðan við fengum þetta kríli í fangið þá 17 merkur og hálfs árs. Vá, hvað er skrýtið að hugsa um hvað tíminn líður hratt.Halldór sonur minn hefur nú líka elst og stækkað býsna hratt. Það er víst orðið dálítið langt síðan ég stóð á Thailandsgrundu, en mikið fjári vildi ég komast þangað aftur.Svo ég tíundi nú allt sem er að gerast þá er þetta sem sé Halldór Ingi með kærustunni sinni Magneu, sem býr á Skagaströnd. Hún vinnur hjá vinnumálastofnun og hann er í augnablikinu að baka með Valdemar í Sveitabakaríinu. Ekki amarlegt það og aldrei að vita nema hann fari þá að baka fyrir móður sína líka :)Við erum búin að taka dálítið inn af hrossum. Þrjú eru tamin svo að við ættum öll (Ingi, Guðbjörg og ég) að geta farið á bak fljótlega. Auk þess erum við með inni þrjú tamningartryppi sem við ætlum að spekja og teyma sjálf og folaldið sem ég gaf Inga í jólagjöf. Það skipti snarlega um nafn um leið og það skipti um eiganda. Meðan ég átti hana kallað Ingi hana alltaf Tindilfætt en nú heitir hún því virðulega nafni Eik sem er auðvitað ávísun á að eikin er sterkasta tréð og því gott til ræktunar :)Þessi mynd var tekin af Þórhalla í Húnaveri og Kristínu á Höllustöðum á nýársdag þar sem þau voru mætt með börn sín í afmæli Guðbjargar. Af svipnum að dæma er óhætt að trúa því að þau fari brosandi inn í árið 2012.En við áttum yndisleg jól og áramót og erum bara býsna spræk. Stefnum á vinnuár í búskap og skriftum og að sjálfsögðu Töfrakonuvinnu.Má til með að setja inn mynd af aðal afmæliskökunni, sem Magnea gerði svo snilldarlega. þetta er sko Ljósbrá eins og allir geta séð sem þekkja hryssuna:)Framundan er skrall á laugardaginn en þá er ásrhátíð karlakórsins, síðan kemur þorrablót 28.jan. Þar sem við erum í Þorrablótsnefndinni þetta árið er málið farið að liggja dálítið á mannskapnum en það verður örugglega allt gott, eins og alltaf ;)Set þessa inn svo að þið sjáið að við gömlu vorum alveg óskemmd um jólin, karlinn reyndar frekar gróskumikill :)En nóg um það, nú ætla ég að fara að semja fleiri sögur fyrir ykkur til að lesa.  Hafið það sem best og ég klára þetta með mögnuðu glitskýi sem var hér einn daginn. Njótið lífsins :)</description>
Gleðileg jól og gæfuríkt ár...
      <description>Hó,hó,hó.................Komið að jólum nánast. Á morgun Þorláksmessa og pottþétt enginn tími til að blogga nema núna, svo ég ætla að setja nokkrar línur niður á blað. Hef reyndar ekki haft mikinn tíma til að sitja við tölvuna mína og blogga heldur erum við Töfrakonur búnar að vera að skondrast á milli staða, selja, lesa upp, kynna og vera á mörkuðum. Að sjálfsögðu mjög skemmtilegt og nauðsynlegt þar sem við erum í bókaútgáfu og slíku. Þetta höfum við verið að bralla milli þess sem við mjólkum, skúrum, semjum og ölum upp.....ehemm.......smá mont ;)Þessi mynd er frekar skemmtileg af Jóhönnu Helgu og Önnu Kristínu þar sem við erum búnar að breiða úr okkur í Skagabúð núna fyrir jólin. Það var mjög skemmtilegt að koma þangað enda höfðum við ekki komið þangað áður en erum ákveðnar í því að fara að ári. Við tókum einnig þátt í markaði í Húnaveri, Hrímnishöllinni, Félagsheimilinu á Blönduósi, Dalsmynni og á Reykjarskóla. Þetta voru allt mjög skemmtilegar ferðir. Við kynntum einnig bækurnar okkar í Varmahlíð og lásum upp á Heimilisiðnaðarsafninu tvisvar, bókasafninu í Dalsmynni, Eyvindarstofu og gömlu kirkjunni á Blönduósi. Þetta var allt mjög skemmtilegt og við erum þakklátar þegar fólk man eftir okkur og vörunum okkar, því án þess verður ekki kröftugt framhald. En við erum bjartsýnar og glaðar og ætlum að halda ótrauðar áfram fram á veginn 2012, með nýjar línur í vörunum okkar og fleiri útgáfur ef allt gengur upp. En það er barningur að gefa út og framleiða það verður ekki annað sagt ef fullur heiðarleiki á að vera í frásögnum.En frá Töfrakonufréttum í búskapinn. Það er allt með kyrrum kjörum á Löngumýri. Holdakýrin Stella, sem einmitt er þriggja ára í dag fæddi naut og var það mikil gleði. Húsmóðirin, sem er og eigandi holdakvígunnar lætur sig dreyma um frægð og frama í framtíðinni, þar sem nú er fæddur nýr holdakálfur, sem ber nafnið Jón Máni. Hinn fyrri sem ég fékk viðurkenninguna fyrir og vóg 444 kg. var nefndur Jón Gíslason. Hann fæddist á Jónsmessu og þar sem Gísli sæðari kom við sögu í þessu máli þá fékk hann þetta nafn. Jón Máni fékk hins vegar sitt nafn þar sem hann fæddist þegar tunglmyrkvinn var en Ingi vildi endilega hafa Jónsnafnið með, það væri bara við hæfi. Sennilega verða allir mínir holdabolar einhverskonar Jónar. En þessi litli massaði gaur sem fæddist á dögunum er mjög efnilegur og gaman að fá einn svona líflegan snáða til að leika sér í kálfahúsinu.Hér má sjá heimasætuna á Gáska sem er nýjasta undrið í minni eigu. Það er þó ekki enn ljóst hvort ég muni geta riðið honum ein og sér og sjálf þar sem hann fór að verða viljugri en til stóð í tamningunni. Er þessi piltur búinn að vera hjá Elvari á Skörðugili í tilsögn og gengur vel. Ég fór í hestakaup við elskulegan eiginmann minn þar sem ég varð bókstaflega ástfangin af þessum pilti. Ég er eiginlega ákveðin í að þetta sé framtíðar hesturinn minn, spurningin er bara hvort ég þurfi að láta sprauta mig niður áður en ég fer á bak. Ef þið kunnið góð ráð við svona aumingjaskap þá eru þau vel þegin. Hestar eru yndislegir og ég vildi óska að ég væri jafn örugg með þeim þegar ég sit á baki eins og þegar við stöndum bæði í fæturna :)En eins og ég sagði, jólin nálgast, búið að skreyta og skúra, sleppa hrútunum, sem var gert 19.des. á þessum bæ, og sækja hangijkjötið í Kúlu til Maríu. Baksturinn gekk afar vel, nokkrar smákökusortir, plús kleinur og randalínur frá Sveitabakaríinu. Þetta er sem sagt búið að vera mjög ljúft. Halldór sonur minn skondrast á milli okkar og Skagastrandar sem hefur gríðarlega mikið aðdráttarafl. Guðbjörg Pálína komin í jólafrí og jólasveinarnir standa sig prýðilega enda engin kartöfluvöntun á mínum bæ. Ég iða í skinninu eftir að geta farið að skrifa aftur og kenna reiki sem hefur setið á hakanum en verður vonandi tími fyrir þetta allt eftir áramótin. Þá verður líka komið þetta langþráða á 2012 og stelpan mín orðin 12 ára. Allt að gerast.En ég vona að við munum öll eiga góð og gleðileg jól og að árið sem kemur núna 2012 verði okkur öllum einstaklega gott.Þórhallur miðill sagði við mig í vor að eins og sl. vetur hefði verið mér leiðinlegur yrði sá næsti góður, svo nú hlakka ég til. Ég er viss um að framtíðin verður skemmtileg, góð og full af hamingju. Við skulum allavega vera bjartsýn og jákvæð. Takk fyrir samfylgdina á þessu ári og Guð veri með ykkur alltaf.Gleðileg jól :)</description>
Til þeirra sem stunda reikiheilun.
      <description>Kæru vinir:)Mig langar til að deila með ykkur aðferð sem ég hef verið að nota í sambandi við reikivinnuna.  Við eigum öll okkar bænir, óskir og þrár sem við viljum vinna með, bæði fyrir okkur sjálf og einnig til að bæta heiminn. Staðreyndin er sú að alltaf gengur nú allt best þegar við vinnum saman, deilum hvort með öðru því sem okkur finnst gott og gerir okkur gagn. Það er ástæðan fyrir að ég ákvað að setja á heimasíðuna mína þessa reiki-hreinsun-heilun-blessun. Þetta kom til mín einn daginn og er svipað öðrum blessunum sem ég hef kynnst og mér finnst virka mjög vel inná öll svið í mínu lífi og vonandi þínu líka.Sumir eiga mjög erfitt um þessar mundir, einnig þeir sem eru andlegir og eru að vinna á þeim sviðum. Við verðum öll að muna að við erum mannleg og saman skulum við hjálpast að við að gera heiminn betri, hækka orkuna okkar og heila okkur sjálf. Við þurfum á hvort öðru að halda. Við skulum vera dugleg að vinna með heilun á hvaða sviði sem við erum að vinna, vera jákvæð í hugsun og muna að dæma ekki, það er venjulega einhver ástæða fyrir öllum hlutum. Verum góð hvort við annað, alltaf. Notum bænina, hún er sterkasta aflið.Ég ber fulla virðingu fyrir öllum heilunaraðferðum og einum hentar þetta og öðrum hitt. Í mínu lífi hefur reikið virkað mjög vel og því langar mig að deila þessari viðbót til þeirra sem stunda reikiheilun.     Reiki-hreinsun-heilun-blessun.     Sitjið í stól eða sofa, algjörlega slök. Verið berfætt og látið iljar nema við gólf. Í lófa ykkar liggur blað þar sem þið hafið skrifað á óskir ykkar og þrár, nákvæmlega niðursettar. Hafið bænirnar hnitmiðaðar og ekki fleiri en svo í einu að þið náið að hugsa um það sem er á blaðinu.     Þið slakið vel á og opnið fyrir reikiorkuna á bænirnar. Segið upphátt eða í huganum eitthvað á þessa leið: Ég bið um algjöra hreinsun, heilun og blessun á allt það sem á þessu blaði stendur, á allar mínar bænir og ég bið um að þetta virki fullkomlega fyrir mig og fjölskyldu mína á öllum sviðum lífsins, við allar aðstæður og á öllum tímum. Ég bið um að allar bænir sem upp í hugann koma á meðan á hugleiðslunni stendur fái einnig alla þá hreinsun, heilun og blessun sem þær þurfa á öllum tímum og við allar aðstæður á öllum sviðum. Ég bið um að öll sárarbrot og sálarkrækjur sem ég kann að hafa séu hreinsuð frá mér og einnig þær sálarkrækjur og sálarbrot sem ég hef krækt í aðra séu afturkölluð og endurleyst á öllum sviðum svo að ég sé algjörlega laus undan öllum áhrifum nema mínum eigin. Ég bið um fullkomna jarðtengingu fyrir mig og fjölskyldu mína sem virkar á öllum sviðum nú í fortíð og framtíð, við allar aðstæður alltaf. Ég bið um fullkominn kærleika á öllum sviðum lífsins við allar aðstæður og á öllum tíma. Ég bið um fullkomana hreinsun, heilun og blessun.     TAKK FYRIR, ÞAÐ ER GERT, ÞAÐ ER GERT, ÞAÐ ER GERT.     Nú skuluð þið taka nokkrar mínútur í að hugsa um bænablaðið ykkar og allt sem á því stendur. Njótið stundarinnar og leyfið einnig upplýsingum að flæða til ykkar hvort sem er í myndum, setningum inní höfðinu eða hugsun. Gott er að hafa blað við hendina og punkta niður ef upplýsingar koma því að þær vilja oft hverfa um leið og við förum úr alfaástandinu.     Sitjið og njótið eins lengi og þið viljið og þakkið síðan fyrir.Megi þessi ljóssins dagur veita ykkur kærleika og frið.  Guð blessi ykkur öll.      </description>
Bloggað á köldum degi
      <description>Það má með sanni segja að það hafi verið kalt í dag. Rigning, slydda, hríð, rok, þetta allt og eitthvað fleira var það sem veðrið bauð okkur uppá í dag. Dagurinn var nú samt um margt ánægjulegur þrátt fyrir ömurlegt veður. Ráðunautarnir komu og skoðuðu lömbin hjá okkur og mældu hátt og lágt :) Okkur til aðstoðar voru Litladalshjón og Höllustaðasettið hið yngra svo að við vorum nú ekki illa stödd. Anna Magga og Kristján mættu svo hér og það var glatt á hjalla og frábært að fá þau öll. Þetta gekk allt alveg ljómandi vel og nú erum við búin að taka frá lífgimbrarnar hjónin og þá er nú mikið frá. Það er aldrei gaman að velja úr þessum elskum sem eru allar svo fallegar og fínar. Svo eru heimkomnir tveir Strandagaurar sem trúlega reyna að ganga í augun á stelpunum þegar líður að jólum.En þó að kalt sé í veðri hafa þeir félagarnir Ingi og Glókollur nú brugðið sér út úr húsi stöku sinnum til að finna eftirlegukindur og sinna hinum ýmsustu verkefnum en það hefur gengið heldur hægar með "sólpallinn", eins og sést á meðfylgjandi mynd. Það er mun notalegra að leggja sig í skjóli og spjalla í símann við fjallskilastjórann en smíða enda margt að ræða. Myndin er allavega góð ;) Myndgæðin minnka greinilega með aðdráttarlinsunni en tommustokkurinn er á sínum stað.Annars ganga hauststörfin vel. Halldór sonur okkar vinnur á Sláturhúsinu á Blönduósi og gengur vel. Það er brjálað að gera þar enda verður slátrað um 100þúsund fjár hef ég heyrt. En strákurinn er að vinna á frystinum með úrvals liði og ber sig vel. En Halldór Ingi varð 19 ára á dögunum. Af því tilefni tók ég myndir af eldri gullmolanum á bænum þar sem hann var kominn heim í afmælismat til móður sinnar og föður klæddur vestinu góða sem hann fjárfesti í á Flóamarkaði Leikfélags Blönduóss.Nítján ára, vá ég sem held enn að ég sé nítján :)Engin smá forréttindi að eiga svona snilling :)En eins og ég hef sagt þá erum við bara nokkuð góð. Ánægð með það sem komið er í sláturhús, ljómandi vikt og ágæt gerð. Við þurfum sko ekki að kvarta yfir lömbunum, þau standa sig.Það gengur líka vel í skólanum hjá Guðbjörgu. Hún var að koma úr afmæli hjá Sóley Maríu í Húnaveri rétt í þessu. Það er búin að vera afmælishrota á bæjunum. Í gærkvöldi var 1 árs afmæli Emilíu frænku okkar í Brúarhlíð og kvöldið áður tvöfalt afmæli í Húnaveri. Við Löngumýrarfólk erum enn stútfull af kræsingunum af báðum bæjum, enda konurnar þar sérlega góðir kokkar.Löngumýrarliðið er sem sé frekar bratt en það mætti vera hlýrra ..............Þrátt fyrir kulda hefur Ingi bóndi ekki slakað á veiðiskapnum og er hér ein sönnun þess. Það var frekar kalt í Friðmundarvatni nú á dögunum er þessi kom á land enda fjandans vöðlurnar farnar að leka.......................Farið vel með ykkur :)</description>
Löngumýrarfréttir
      <description>Má til með að setja inn eina mynd af þessum yndislegu vinkonum sem voru hér saman sl. laugardag. Það var heldur betur góður dagur enda hafði Alma okkar ekki komið í heimsókn um tíma. Það verður að segjast eins og er að það má ekki líða of langt á milli hittinga hjá þeim tveim til að heimilislífið hér finni fyrir því :)En af okkur er allt gott. Ingi og Halldór eru komnir úr seinni göngum en þeir fóru ásamt Glókolli og mér skilst að þeir hafi allir staðið sig ljómandi vel. Glókollur var reyndar búinn að vera lasinn, fékk beinflís uppí góminn eða var stunginn og þurfti stera og sýklalyf en Stefán dýralæknir og hans frábæra aðstoðarkona voru okkur innan handar með hundinn enda erum við á sér hundasamning hjá Stebba, sem við bókstaflega trúum á að öllum öðrum dýralæknum ólöstuðum.En leitin gekk vel og niður komu eitthvað um 800 kindur sem réttaðar voru í gær. Veðrið lék við gangnamenn í seinni göngum og allt var eins og það átti að vera nema að gangnastjórinn féll af baki og laskaði á sér handlegg, vonandi ekki alvarlegt. En svona hlutir geta alltaf gerst.Guðbjörg er sem betur fer orðin hress en hún var sl. viku veik heima og fékk ælu og magapest sem var alveg ferlega vond. Vona að það verði ekki margir sem fá þetta.En það er alltaf nóg að gera, ég er að skrifa og við erum líka að lesa yfir smásögur og handrit sem Töfrakonur eru að fá í hendur þessa dagana og vonandi komast út fyrir jólin. Má til með að láta eina mynd af Halldóri mínum fykgja með, svolítið spes :) En ég læt fylgja með gamalt ljóð um Halldór hestamann ;)Hestamaðurinn.     Hestamaður  helst vil vera,  heiðar smala,  margt að gera.  Þeysa eftir þægum  skjátum,  á þýðum hesti  eftirlátum.  Ríða frjáls um  fagran geim.  Fara síðan   Aftur heim.     Eiga fáka,  alla stóra,  eftirláta  fyrir Dóra.  Klára þenja á  keppnisvöllum,  komast síðan  fram úr öllum.  Stelpur munu  brosa breitt.  Bregðast mun þá  ekki neitt.     Birgitta H. Halldórsdóttir.</description>
Haust
      <description>Nú líður að hausti og þá kemur bæði þessi leiðinlegi tími þegar maður verður að ákveða hver á að lifa og hver ekki, en líka skemmtilegi tíminn sem maður á með lömbum og folöldum sem "voru valin". Hef ykkur að segja aldrei verið æst í að leika Guð.En folöld eru bara einfaldlega dásmleg og ég bara verð að setja inn einhverjar myndir frá því í sumar.Þessar elskur eru nú öll staðsett í Tungunesi og verða vonandi eitthvað áfram en fyrsta mál á dagskrá er að ná heim sauðfénu.Vonandi telst heyfengur þetta árið þannig að ekki fari öll strax til himna og voandi getum við líka selt einhver. Hver veit?</description>
Sjálfsrækt er sjálfsögð
      <description>Hæ,hæ.Ákvað að setja hérna inn eldgamla þýðingu sem á alveg heima hjá okkur í dag,svona sannleika sem er okkur alltaf nýtilegur :)Þú getur breytt lífi þínu.                 Þinn heimur er eins og þú skynjar hann alveg eins og minn heimur er eins og ég skil hann. Þú getur breytt þínum heimi eða útliti hans ef þú raunverulega vilt það. Í rauninni ertu alltaf að gera það í undirvitundinni. Það er samt sem áður mun meira sannfærandi og ánægjulegra ef þú getur gert það meðvitað. Það er hægt og það eru ýmsir möguleikar til að gera það. Það er þinn eigin sannleikur sem ákveður hvernig þú skynjar heiminn. Hugsanir þínar gera þig að því sem þú ert. Hugsanir eru mjög voldugar og áhrifameiri eftir því sem þú hefur meiri orku.                 Ef þú ert óhamingjusamur með líf þitt af einhverjum ástæðum, þá verðurðu vonandi ánægður að heyra að þú getur breytt lífi þínu á hvern hátt sem þú vilt. Fljótlegasta og áhrifamesta leiðin til að gera þetta er að vera í sambandi við andlegan leiðbeinanda sem vill vinna með þér þar til þú hefur lokið að breyta öllu sem þú vilt. Þú getur sjálfur gert þessar breytingar, en það er auðveldara ef þú hefur aðstoð. Hér er kenningin um hvernig þetta virkar. Það eru vissir frasar og setningar sem þú endurtekur sífellt þar til skynjun þín meðtekur efni frasanna og setninganna. Þetta eru kallaðar yfirlýsingar og venjulega skýra þær sig sjálfar. Þær eru alltaf jákvæðar og hafa áhrif á orkubirgðir á jákvæðan hátt til að breyta lífi þínu. Til dæmis: "ÉG ER JÁKVÆÐUR" Þessi frasi gerir hugsanir þínar jákvæðar ef þú endurtekur hann í sífellu með reglulegu millibili. Ef þú hefur neikvæðar hugsanir eða tilfinningar getur þú losnað við þær með þessari yfirlýsingu                 Eftirfarandi listi hefur að geyma gagnlegar, almennar yfirlýsingar.                 ALLT ER ANDI.              ÉG ÞIGG FYRIRGEFNINGU ÞEGAR ÉG FYRIRGEF.              ÉG ER.              ÉG ER LJÓS.              ÉG ER FARVEGUR ANDANS.              ÉG ER LEIÐTOGI.              ÉG HEF ANDLEG YFIRRÁÐ YFIR ÖLLUM HLUTUM              ÉG ER EILÍF SÁL Í EFNISLÍKAMA              ÉG ER FORDÆMI FYRIR AÐRA              ÉG ER EINS OG GUÐ SKAPAÐI MIG              ÉG LIFI Í FRIÐI              ÉG ER MEÐVITAÐUR              ÉG ER LOGN              ÉG ER HÆFUR              ÉG ER ÁHYGGJULAUS              ÉG ER HREINN              ÉG ER HEILL, ALGER              ÉG ER ÖRUGGUR              ÉG ER SKAPANDI              ÉG ER ÁKVEÐINN Í AÐ SJÁ Á ANNAN HÁTT              ÉG ER KRAFTMIKILL              ÉG ER ORKA              ÉG ER KALLAÐUR TIL KRAFTAVERKA              ÉG ER DYGGUR              ÉG ER FRJÁLS              ÉG ER FULLUR AF LÍFSÞRÓTTI              ÉG ER FULLUR UNDRUNAR              ÉG ER HAMINGJUSAMUR              ÉG ER HEILBRIGÐUR              ÉG ER BJARTSÝNN              ÉG ER Í JAFNVÆGI              ÉG ER GLAÐUR              ÉG LIFI Í TVEIM HEIMUM Á SAMA TÍMA              ÉG ER ÁST              ÉG ER ELSKAÐUR              ÉG ER HEPPINN              ÉG ER ALDREI EINN              ÉG ER EKKI ÞESSA HEIMS              ÉG ER EITT MEÐ ÖLLUM ANDLEGUM BRÆÐRUM              ÉG ER EITT MEÐ ÖLLU              ÉG ER JÁKVÆÐUR              ÉG ER ÞRÓTTMIKILL              ÉG ER STOLTUR AF ÞVÍ SEM ÉG HEF AFREKAÐ NÚ ÞEGAR              ÉG ER TÆR              ÉG ER AFSLAPPAÐUR              ÉG ER SJÁLFSÖRUGGUR              ÉG ER EINLÆGUR              ÉG ER ANDLEGUR              ÉG ER ANDLEGA OG VERALDLEGA RÍKUR              ÉG ER STERKUR              ÉG ER FARSÆLL              ÉG ER TILBÚINN AÐ VEITA STUÐNING              ÉG ER VISS              ÉG ER SANNFÆRÐUR UM KÆRLEIKA GUÐS              ÉG ER ÞAÐ SEM ÉG ER              ÉG ER LÍFIÐ              ÉG ER LJÓS HEIMSINS              ÉG ER MIKILVÆGASTA PERSÓNA Í HEIMINUM FYRIR MIG              ÉG ER VEGURINN, SANNLEIKURINN OG LÍFIÐ              ÉG ER ÓVIÐJAFNANLEGUR              ÉG ER ÁSTRÍKUR              ÉG ER ÞAÐ SEM ÉG HUGSA              ÉG ER HEILD              ÉG ER REIÐUBÚINN              ÉG ER FÚS AÐ SJÁ ÞAÐ SEM ÉG LEITA AÐ               ÉG ER VITUR              ÉG ER LAUS VIÐ SYND              ÉG ER UNGUR              ÉG GET RÁÐIÐ VIÐ HVAÐ SEM HENDIR MIG              ÉG GET GERT HVAÐ SEM ÉG VIL              ÉG GET HEILAÐ SJÁLFAN MIG OG AÐRA              MÉR MISTEKST EKKI              ÉG GET SÉÐ              ÉG KÝS AÐ SJÁ              ÉG ÞARF EKKI SEKTARKENND              ÉG NÝT ÞESS SEM ER FYNDIÐ              ÉG FYRIRGEF VERÖLDINNI OG SENDI HENNI ÁST              ÉG HEF SKÝRLEIKA              ÉG HEF STEFNU              ÉG Á VINI              ÉG HEF HEILANDI ORKU              ÉG HEF ENGAR TAKMARKANIR              ÉG HEF TILGANG              ÉG ELSKA LÍKAMA MINN              ÉG OPNA HUG MINN              ÉG DEILI FRIÐI MÍNUM MEÐ ALLRI JÖRÐINNI              LÍFIÐ ER FULLT AF ÁSKORUNUM              ÁST ER ALLT SEM ER              HAMINGJA MÍN BLESSAR JÖRÐINA              ÍMYNDUNARAFL MITT ER ÞAÐ SEM ÞARF              INNBLÁSTUR KEMUR FRÁ MÍNU HÆRRA SJÁLFI              SKOÐANIR MÍNAR ERU MIKILVÆGAR              AÐEINS FYRIRGEFNINGIN GERIR KRAFTAVERK              ANDLEGAR OG EFNISLEGAR ALSNÆGTIR ERU NÚ ÞEGAR MÍNAR              ÞAÐ ER ENGINN DAUÐI TIL              ÞETTA ER VERÖLD MÍN              ÞAÐ SEM ÉG HUGSA, ER                 Sumar staðhæfingarnar eru sérstaklega fyrir sjálfsheilun. Ég ætla ekki að taka þær fram sérstaklega en vil benda þér á  bók sem heitir "Heal Your Body" eftir Louise L. Hay. Það er frábær lítil bók notuð af þúsundum fólks í mörg ár.                 Ég hef verið tilætlunarsamur við þig að ætlast til að þú vitir hverju þú vilt breyta í þínu lífi, afleiðingar breytinganna, hvað þú vilt hafa í staðinn fyrir það sem þú hefur og hvaða tími er réttur fyrir þessar breytingar. Það eru margir hlutir sem ráðgjafinn (leiðbeinandinn) getur fundið út fyrir þig. Samt verður þú að vinna vinnuna sjálfur. Ráðgjafinn stýrir þér og hjálpar þér að þokast nær markinu. Það hjálpar alltaf að hafa einhvern sem hvetur þig og segir þér sitt álit. Ef þú sameinar orku þína við einhvern annan  þá hefurðu orku á við fjóra svo árangurinn kemur fyrr í ljós. Leiðbeinendur eða andlegir ráðgjafar er alltaf mjög meðvitað fólk og þess vegna eru þeir kraftmeiri en þú einn. Orkan sem þú getur nýtt á þennan hátt, ef þú nýtur aðstoðar leiðbeinanda, eykur árangur þinn gífurlega.                 Þú getur búið til þínar eigin yfirlýsingar um allt sem þú vilt breyta í þínu lífi en mundu að hafa þær alltaf jákvæðar og láttu þær aldrei fela í sér neitt sem getur verið slæmt fyrir þig eða neina neikvæðni. Til dæmis máttu ekki segja: "Kvefið er að batna". Þú mátt ekki nefna orðið kvef, vegna þess að það gefur til kynna að þú sért raunverulega með það. Segðu heldur: "Nefið á mér er hreint" eða " Andardráttur minn er hreinn og tær" Notaðu þetta hversu slæmur sem þú ert af hósta og trúðu því sem þú segir. Í fyrstu er erfitt að gera þetta, en þegar þú upplifir kraft þinn þá eykst traust þitt og þess vegna verðurðu enn kraftmeiri.                 Vinkona mín hafði verk í kviðarholinu. Hún fór til læknis sem sendi hana á sjúkrahús til rannsóknar. Henni var sagt að hún væri með blöðrur á eggjastokkunum og ætti að koma eftir mánuð í skoðun og láta fjarlægja þær. Hún fór til andlegs leiðbeinanda. Með hjálp frá honum og með ákveðnar yfirlýsingar sem hún þurfti til að láta blöðrurnar hverfa, voru þær horfnar þegar hún kom aftur á sjúkrahúsið mánuði seinna. Hún hafði ekki lengur þörf fyrir uppskurð og hún hafði sjálf losað sig við blöðrurnar. Þetta er bara eitt af mörgum dæmum þess sem hægt er að gera. En fjölda fólks skortir einlægni og hugsanir þeirra eyða tíma þeirra. Fáir rithöfundar segja frá mistökunum en þau eru mörg. Flestir segja eingöngu frá velgengninni. Mín ráð eru að þú sért algerlega viss um hvað þú ert að gera. Ef þú ert ekki viss leitaðu þá ráðlegginga hjá einhverjum sem hjálpar fólki á þennan hátt.                 Ef heilsa þín er góð þarftu ekki að leita hjálpar á þennan hátt. En það eru kannski aðrar hliðar lífsins sem þú vilt breyta. Ef þig langar í eitthvað, sjáðu þá sjálfan þig fyrir þér, að þú hafir hlutinn, notir hann og njótir hans. Því skýrari sem myndin er í huga þér, því fyrr kemur hún til þín. Oft á tíðum þarftu að hafa mikið fyrir því að öðlast það sem þig langar, en eftir því sem þú þráir það meira, þeim mun auðveldara er það. Ég skal segja þér bjánalegt dæmi en það er satt. Ég var að borða Kit Kat súkkulaðikex og þá mundi ég eftir því að sem barn hafði ég einu sinni fengið Kit Kat sem var bara súkkulaði. Það var ekkert kex inní því. Ég hugsaði um þetta lengi og óskaði þess að ég gæti aftur fengið eitt slíkt. U.þ.b. tveim mánuðum seinna keypti ég mér Kit Kat og fann að það var hreint súkkulaði. Ég vissi hvað ég hafði óskað og treyst því að það gerðist. Ég hafði séð sjálfan mig í huganum borða svona súkkulaði. Tveim vikum seinna fékk ég aftur eitt af þessum sjaldgæfu Kit Kats súkkulaði. Það kvöld sagði ég vinkonu minni frá þessu og hún sagðist aldrei hafa lent á svona súkkulaði. Ég lofaði að leyfa henni að smakka næst. Viku seinna lenti ég á einu og gaf henni með mér.                 Einföld dæmi sýna okkur hvernig þetta virkar og einnig aflið sem við búum yfir. Afl sem við getum notað okkur til farsældar. Þetta gallaða kex er fágætt en það er til. Margir fá aldrei neitt í sínu lífi og líkurnar á að fá eitt tveim mánuðum seinna eru litlar. Líkurnar á að fá annað tveim vikum seinna eru enn minni og að fá þriðja súkkulaðið viku eftir það. Það eru stjarnfræðilega litlar líkur á því. Margar bækur hafa verið skrifaðar  um afl jákvæðra hugsana og ég er viss um að það er hægt að prófa þetta á margan hátt. Það skiptir ekki máli hverju þú vilt breyta í þínu lífi svo framarlega að það sé jákvætt. Ég hef breytt mínu líkamlega útliti oft og jafnvel breytt litnum á hárinu á mér án þess að lita það. Þú getur gert það sama en ég ráðlegg þér að tryggja þér hjálp andlegs leiðbeinanda.                 Ert þú, að eigin áliti, of þungur? Hefur þú hæfileika til að líta á rjómaköku eða súkkulaði og bæta á þig kílói? Þú ert ekki einn um það. Það eru miljónir manna um allan heim sem hafa sama hæfileika. En þó að þú vildir losna við þetta þá er fjöldi fólks sem vildi hafa þennan eiginleika. Horað fólk vill þyngjast en feitt fólk vill losna við kílóin. Fólk með slétt hár vill hafa liðað og fólk með liðað hár vill hafa slétt. Andlegur leiðbeinandi getur hæglega hjálpað þér með viktina. Þar sem ég gat breytt andlitslögun minni þá getur þú lært að breyta hárinu á þér eða hverju öðru sem þú vilt breyta.                                           Sálarhugsanir.                 Hvað sem þú segir, hugsar, skrifar, málar, teiknar og svo frv. kemur vegna þess að þú hefur tjáningarþörf. Þú ert algjörlega, þá á ég við líkamlegt ástand þitt, eins og þér líður á sálinni. Ég kalla þetta "Sálarhugsanir". Þú ert algjörlega eitt með alheiminum og sál þín er ekki aðskilin frá öðrum sálum. Þess vegna hefurðu nákvæmlega sömu sálarhugsanir og aðrir og þú ert einungis frábrugðinn að því leiti hvernig þú lætur hugsanir þínar í ljós.                 Eins og þú veist þá skrifa ég ljóð og söngva, það er mín leið til þess að láta mínar sálarhugsanir í ljós. Hvert ljóð eða söngur hefur að minnsta kosti eina sálarhugsun sem liggur að baki og hver sál hefur sína túlkun á hugsuninni. Það getur verið flókið, vegna þess að túlkunin sem ég hef fyrir sálarhugsanir er sannleikur fyrir mig, en ekki endilega fyrir þig. Það getur verið margföld túlkun sem er sönn fyrir ólíkt fólk. Það er einnig erfiður eiginleiki í þessum sálarhugsunum. Fyrir einn getur túlkunin  breyst samkvæmt staðreyndum. Svo að einn daginn getur túlkunin verið á þennan hátt en á annan hátt næsta dag.                 Þú spyrð kannski: Hvernig notarðu þessar sálarhugsanir? Það eru nokkrar leiðir til að nota þær. Þú getur notað þær sem innblástur í djúpri sköpun þinni, þú getur notað til að skilja sannleikann um sjálfan þig og þú getur notað þær sem yfirlýsingar. Hér er aðferð sem þú getur notað til að afhjúpa sannleikann um sjálfan þig.     1) Sittu á stól með hörðu baki og hafðu augun lokuð.     2) Slakaðu á og andaðu inn um nefið og út um munninn.     3) Biddu leiðbeinendur þína um númer frá 1 til 27.     4) Taktu fyrsta númerið sem kemur í hugann.     5) Lestu sálarhugsunina sem er samsvarandi númerinu.     6) Spurðu leiðbeinendurna um merkinguna sem er sannleikur fyrir þig.     7) Eftir um það bil þrjár mínútur skaltu opna augun og skrifa niður eins mikið niður af merkingunum og þú getur. Reyndu ekki að skrifa samkvæmt skynsemi þinni, taktu aðeins það sem kemur frá tilfinningunum.     8) Lestu yfir það sem þú hefur skrifað.                 Þú getur aðlagað þessa tækni að yfirlýsingum um ákveðinar spurningar í huga þér þegar þú biður leiðbeinendurnar um númer. Túlkunin sem þú færð er trúlega svar við spurningu þinni. Hér fylgir listi með 27 sálarhugsunum. Sumar hafa úrtak túlkana til að tengja en sumar standa einar og sér. Þú getur prófað að semja ljóð eða söng með þessar sálarhugsanir að leiðarljósi eða þú getur hugsað um þær þegar þú ert að krota eða teikna.                 Þessar sálarhugsanir eru frábærar.     1)"ÉG ER HÉR FYRIR MIG"     Ef þér finnst þú vera hér fyrir einhvern eða eitthvað annað þá hugsaðu málið betur.     2)"ÁST ER STERKASTA TILFINNINGIN"     Ástin þekkir engin mörk.     3)"TREYSTU TILFINNINGUM ÞÍNUM"     Fólk reynir að blekkja þig með orðum en sannleikurinn er það sem þú finnur.     4)"SKOÐAÐU HVATIR ÞÍNAR, JÁTAÐU SANNLEIKANN"     Augljós hegðun í kærleika og ást er túlkað sem sjálfselska. En þetta er eins og það á að vera.     5)"ÞÚ VEIST MEIRA EN ÞÚ HELDUR"     Stundum segirðu eitthvað sem þér finnst vera ósatt, aðeins til að finna hvernig það var, er eða getur verið sannleikur.     6)"ÉG ER HÉR TIL AÐ LÆRA, ÞAÐ GETUR VERIÐ SÁRT".     Þú ert hér til að læra sannleikann og sannleikurinn særir oft.     7)"AÐGÆTTU HVAÐ ÞAÐ ER SEM GERIR ÞIG RAUNVERULEGA HAMINGJUSAMAN"     Þú þarft aldrei að vera óhamingjusamur. Líttu á vandamálin sem reynslu til að læra af, hvað sem öðru líður, þú valdir þetta.     8)"HVAÐ ÞÝÐIR ÁSTIN FYRIR MIG"     Þú getur verið viss um að ástin þýðir ekki það sama fyrir alla.     9)"FYLLSTA HOLLUSTA MÍN ER FYRIR MIG"     Ef það er erfitt fyrir þig að treysta sjálfum þér, hvernig geturðu þá treyst öðrum?     10)"ÉG GET HAFT ALLT EINS OG ÉG VIL, VILJI ÉG ÞAÐ RAUNVERULEGA"     Ef þú vilt eitthvað í raun þá áttu þér markmið og ef þú beinir allri þinni orku til að ná settu marki þá geturðu það     11)"MÓÐURÁSTIN ER ENGU LÍK"     Hugsaðu um samband þitt við móður þína, geturðu hugsað þér slíkt samband við einhvern annan?     12)"ORÐ ERU MJÖG ÁHRIFAMIKIL"     Eitt orð, sagt á réttum tíma getur breytt öllu þínu lífi. ósagt orð getur einnig breytt öllu lífinu.     13)"EF EITTHVAÐ ER ÞESS VERT AÐ FÁ ÞAÐ, ÞÁ ER ÞAÐ ÞESS VERT AÐ BÍÐA EFTIR ÞVÍ"     Til þess að fá það sem þú óskar þarftu stundum að leggja hart að þér. Eins og öldungurinn sagði:  Það sem er fyrir þig, fer ekki frá þér. Við skulum bæta við ... nema þú látir það fara.     14)"SÆKIR SÉR UM LÍKAN"     Ef þú ert neikvæður dregurðu til þín neikvæðni. Ef þú ert jákvæður munt þú uppskera jákvæða hluti.     15)" HVAÐ FINNST MÉR UM AÐ VERA ELSKAÐUR?"     svarið við þessari spurningu breytist með tímanum.     16)"HVAÐ LÆRI ÉG AF LÍFINU?"     Það eru margar leiðir í lífinu til að læra en venjulega hafa þær í för með sér vandamál inn í líf þitt. Þú getur aðeins séð í öðrum hvað þú hefur eða hefur haft í sjálfum þér.     17)"AÐ GEFA ER AÐ ÞIGGJA"     Þetta er samkvæmt lögmálum alheimsins - allt kemur til baka.     18)" ÉG ÞEKKI FJÖLSKYLDU MÍNA"     Oft sé ég manneskju, kannski á ókunnum stað, og ég veit að þarna er eitthvað sérstakt, fyrir mig, um þessa menneskju.     19)"TREYSTU TILFINNINGUM ÞÍNUM FYRST"     Oft er það sem þú sérð ekki það sama og þú finnur. Þú getur séð grímu en tilfinningarnar eru raunverulegar.     20)" SPÁMAÐUR VEIT"     Þú veist ekki hvernig þú veist en þú veist.     21)"ÞÚ ERT ALDREI EINN"     22)ÞÚ HUGSAR ÞAÐ Í HÖFÐINU, FINNUR ÞAÐ Í MAGANUM.     23) ÁÐUR EN ÞÚ LÆRIR AÐ VERA EITT MEÐ ÖLLU VERÐURÐU AÐ LÆRA AÐ VERA EINN MEÐ SJÁLFUM ÞÉR.     24) NÚIÐ ER RAUNVERULEIKI, ÁN FORTÍÐAR OG FRAMTÍÐAR, ÞAÐ ER UPPHAFIÐ AF HINUM EILÍFU ÞAKKLÁTU LYGUM.     25) HUGSANIR MÍNAR GERA MIG AÐ ÞVÍ SEM ÉG ER.     26) FULLKOMNUN ER RAUNVERULEG, ÓFULLKOMNUN ER ÓSÖNN.     Raunveruleiki er alltaf til og hefur sínar ástæður.     27) EKKERT RAUNVERULEGT ER ÓGNANDI, EKKERT ÓRAUNVERULEGT ER TIL.                 Þegar þú ert að hugleiða inn á þessar sálarhugsanir finnurðu ef til vill þörf til þess að hugleiða lengri tíma, kannski fimm, tíu, fimmtán mínútur eða meira. Það er margt líkt með sálum hvort sem þær eru í efnislíkama eða ekki. Þetta hjálpar þér til þess að hugsa með lengra komnum sálum vegna þess að raunverulega er enginn aðskilnaður milli þinnar sálar og þeirra.                 Það er margt fleira í þessum sálarhugsunum en sést við fyrstu sýn, fleiri og fleiri eiginleikar eftir því sem þú hugsar meira um þær. Ég hef enn ekki afhjúpað allt um tilganginn. Eins og aðrir sem eru andlega sinnaðir viltu skoða þær fyrir þig. Að sjálfsögðu eru langtum fleiri sálarhugsanir en á þessum lista og þú getur skemmt þér við að finna sálarhugsanir fyrir þig til að nota á sama hátt og ég lýsi hér.                                         Vandamál í lífi þínu.                 Allir eiga við einhver vandamál að stríða í sínu lífi en þessi vandamál hafa öll sinn tilgang. Sum eru smá sem er auðvelt að leysa úr, sum eru ekki svo lítil og ef til vill erfiðara að leysa úr og sum eru svo stór að það virðist vonlaust að leysa þau. Þessi risastóru vandamál eru stundum svo erfið að þig langar helst að flytja í annað hérað eða annað land. Ef þér líður þannig þá staldraðu við og hugsaðu áður en þú flytur.                 Öll vandamál sem þú hefur hafa verið sett þarna af sjálfum þér, oft af undirvitundinni, en sum meðvitað. Hugsanir þínar, tilfinningar og geðshræringar eru mjög kraftmiklar og hafa áhrif á líf þitt. Þarna er ekki á ferðinni nein fánýt hugsun. Þær hafa allar form og að minnsta kosti eina hlið. Vandamálin eru til staðar til þess að þú lærir um sjálfan þig og þroskist andlega. Vandamálin eru þarna til að kenna þér og þegar þú hefur lært lexíuna þarftu ekki á vandamálinu að halda, en þangað til verður vandamálið til staðar í þínu lífi. Ef þú flytur í annað land þá fer samt sami tími í sama vandamál, eða svipað. Það verður skapað það ástand að þú getir lært það sem þú átt eftir af lexíunni.     Þegar þú gerir þér grein fyrir hve öflugar hugsanir þínar eru, þá skilurðu að þú getur gert allt sem þú vilt. Þú munt sjá hve frábæra sköpunargáfu þú hefur og frjórra ímyndunarafl en þú hélst að væri mögulegt. Þú getur breytt öllu í þínu lífi ef þú getur breytt hugsunum þínum, löngunum og trú. Sálarhugsanir þínar geta opnað allan heiminn fyrir þig. Vandamál í lífi þínu eru til að kenna þér um sjálfan þig og hvernig þú þroskast andlega og þau eru sköpuð af sjálfum þér til þess arna.                                         Lauslega þýtt úr bókinni "THIS IS MY WORLD"                                       eftir Kenny Ensor.         </description>
Reiki og fleiri fréttir
      <description>Ég verð að segja ykkur þau gleðitíðindi að þann 28. sl. útskrifaði ég tvo nýja reikimeistara. Það var að vonum kátt í höllinni eins og sagt er og mikil gleði í mínu hjarta. Alltaf dásamlegt þegar stórum áfanga er náð og ég hlakka  mikið til að fylgjast með þeim stöllum Hólmfríði Ástu Steinarsdóttur og Ingibjörgu Jónsdóttur sem nú eru stokknar af stað að kenna þessa frábæru heilunaraðferð. Það var svo gaman hjá okkur að við steingleymdum að taka myndir en þær koma bara seinna.  Guðrún Pálmadóttir, vinkona mín, sagði af þessu tilefni: Ég vildi að það væru þúsund reikimeistarar að útskrifast í dag og ég er henni hjartanlega sammála. Við þurfum að vinna sem aldrei fyrr, hjálpa hvort öðru og sjálfum okkur, jörðinni okkar og öllu lífi. Það er sannarlega þörf.Verð að setja hér mynd af fallegu töfrastelpunum okkar Jóhönnu, sem núna eru byrjaðar í skólanum alsælar.Já, skólasetningin var mjög flott. Við erum ákveðnar í því mæðgur að hafa þennan vetur sérstaklega skemmtilegan. Sigga skólastjóri er ljómandi fín og kennir á tölvur og Áslaug er umsjónakennari Guðbjargar. Það fellur í góðan jarðveg hjá minni fyrst að Magdalena kennir íslensku og kristinfræði, en hún hefði als ekki viljað missa alveg af henni enda sannaði Magdalena á síðasta ári að hún er algjör gullmoli. Þetta er svona það sem við mæðgur erum sammála um:) Hitt er svo allt bara fínt líka og hefðbundið, Sonja í ensku og samfélagsfræði, Milan í íþróttum og Jóhanna í náttúrufræði. Þetta eru nú aðal lærimeistarar dóttur minnar þennan veturinn að ógleymdum skólaliðum og Binna bílstjóra. Og ekki má gleyma Grími sem kennir smíðar og er frekar harður í því að láta fólkið vinna sjálft ;)En eins og ég segi, við erum bara glöð með haustið. Það líður senn að réttum og spenningur í kringum það. Alltaf nóg að gera og nóg framundan. Við töfrakonur vorum að koma með ný orkusteinaarmbönd sem virka svona glimrandi vel. Hvert armband hefur sína verkun fyrir eigandann eins og steinarnir segja til um. Spennandi og líka mikið í tísku núna, sem sé bæði til gagns og gleði.En Töfrakonur eru alveg á fullu að safna smásögum, lesa handrit, semja, búa til smyrs og seiði og margt, margt fleira.En af okkur á Löngumýri er þetta að frétta. Lífið gengur upp og niður eins og alltaf, Ingi meiddi sig í hendinni fyrir dálitlu og var heppinn að missa ekki tvo fingur, dráttarvélin bilaði og er nú á verkstæði KS og ég krossa bara fingur og vona það besta, svo misstum við eitt naut í dag en að öðru leyti er allt gott. Það þýðir ekkert að væla og vola heldur vera bjartsýnn og glaður. Við erum að byrja á seinni partinum á hánni enda víst eins gott að klára þenna heyskap áður en hríðin kemur sem spáð er í næstu viku ;) Heyfengurinn er minni en venjulega en við þurfum ekkert að kvarta, þetta er bara búið að ganga vel miðað við allt og allt. Barnabókin mín hefur fengið góðar viðtökur enda þurfum við Töfrakonur svo sannarlega á því að halda að hún seljist hratt og vel. Ég er farin að skrifa framhald á milli þess sem ég mjólka kýr og kenni reiki. Það er sko eitt sem víst er að það skortir ekki verkefni þessa dagana frekar en venjulega.Ég er búin að vera frekar duglega að ríða út miðað við mig og finnst það alveg geggjað. Set eina gamla í lokin af puttalingnum mínum :)Klikkar ekki á gallanum og gúmmískónum ;)Eigið góða daga :)</description>
Reiki
      <description>         Mín kæru. Þar sem mikil andleg vakning er í landinu okkar, sem betur fer, og ég finn að það er vaxandi áhugi á að læra reiki og hjálpa sjálfum sér langar mig að deila með ykkur þessari grein sem ég skrifaði einu sinni og vona að einhver hafi gagn af. Í gær 15. ágúst var Usui, fyrsti reikimeistarinn fæddur og því tilvalið að minnast hans með þessu :)   Þessi grein er á öðrum stað hjá mér en mig langar að vekja athygli á henni núna. Til gamans má geta þess að Þuríður vinkona mín, reikimeistari og grasalæknir er einnig fædd 15. ágúst.                                       Reiki                                        Heilun, með alheimsorku.              Mig langar með nokkrum orðum að tala um Reiki, þessa einstöku heilunaraðferð sem ég var svo heppin að fá að læra hjá Guðrúnu Óladóttur reikimeistara. Mig langar til að byrja á að segja ykkur dálítið frá minni reynslu, en síðan fjalla um Reikið, sögu þess og nokkrar staðreyndir sem gott er að vita.           Það eru fjórtán ár síðan ég kynntist Reiki í fyrsta sinn. Einhver hafði sagt mér frá þessari heilunaraðferð, en þá hafði ég verið að kynna mér ýmislegt og farið á mörg námskeið sem tengjast andlegum eða dulrænum efnum. Öll þessi námskeið voru góð og gild og margir góðir punktar sem sátu eftir. Samt var ég ekki búin að finna það sem ég hafði verið að leyta að. Eitthvað sem ég gæti gert að hluta af mínu daglega lífi mér og mínum til góðs. Það fann ég síðan í Reikinu.           Fyrst fór ég í þriggja daga meðferð hjá karlmanni sem hafði tekið I. og II. stig í Reiki. Hann vann með meðferðir á fólki og ég var svo heppin að komast til hans. Ég var ekki líkamlega veik, en orkukerfið var í ólagi, ég reykti mjög mikið á þessum tíma og hóstaði mikið. Ég veit núna að ég var líka algjörlega ójarðtengd og var alltaf kalt á fótunum. Blóðrennslið var ekki í lagi. Í þessari þriggja daga meðferð lagaðist fótkuldinn, ég fann mikinn mun á jaðtengingunni og næstu daga á eftir hóstaði ég upp úr lungunum þvílíkum sora að mér var bara ekki sama. En að sjálfsögðu leið mér miklu betur eftir. Þessi ágæti maður útskýrði eðli Reikissins fyrir mér og sagði mér að með því að læra I.stig gæti ég haldið sjálfri mér í jafnvægi og unnið með mig og mína.           Eftir þessa reynslu bókstaflega varð ég að komast á námskeið í Reiki. Það gekk nú ekki átakalaust, enda bý ég úti á landi og erfitt að finna út úr því. En ég skildi seinna að það var einfaldlega verið að beina mér til rétts meistara og er ég óendanlega þakklát fyrir það. Það var svo á endanum að ég komast á námskeið hjá Guðrúnu Óladóttur og það breytti lífi mínu mjög mikið. Nú var ekki aftur snúið, ég varð að halda áfram. Það var eitthvað sem rak mig áfram. Ég komst á mikið skrið, leið mjög vel og fann hve vinnan með þessa tegund heilunar hjálpaði mér að ná líkamlegu og andlegu jafnvægi. Ég tók síðan á næstu árum II.og III. stig í reiki og fór síðan í meistaraþjálfun hjá Guðrúnu. Þó svo að ég sé að segja ykkur frá reynslu minni megið þið ekki halda að það sé nauðsyn að taka allt námið, öðru nær. Fyrsta stigið er nægjanlegt fyrir mjög marga og hægt með þeirri þekkingu að vinna með alla þá sem eru hjá manni, sjálfa sig og aðra. Margir taka líka I. og II. stig til þess að geta einnig unnið með fjarheilun.           Það var mér mjög lærdómsríkt að vera í þessu námi. Ég lærði margt til þess að vinna með aðra, fór að setja lífið í annað samhengi og síðast en ekki síst, ég lærði heilmargt um sjálfa mig. Guðrún hjálpaði mér að skilja hvers vegna ég væri með brjósklos einmitt á þeim stað sem ég var með og heila það. Hún sýndi mér samhengi minnar andlegu líðanar og líkamlegu. Ég fór að skilja orsakir veikinda og líf mitt var sem nýtt. Með því að læra um orkustöðvar líkamans og hvernig allt spilar saman, opnaðist mér nýr heimur.           Ég var mjög heppin með það að fá "fórnarlömb" til að vinna með. Þegar ég kom heim af I.stiginu var strax fólk sem vildi koma í meðferðir til mín og einnig var fjölskyldan mjög dugleg að nýta sér þessa nýju aðferð. Ég hef á þessum árum unnið mikið með Reikið bæði fyrir sjálfa mig og aðra og tekist það sem ég óskaði að gera það hluta af mínu daglega lífi. Í starfi mínu sem bóndi nýtist þessi þekking afar vel og bæði dýr og börn eru óhrædd við að nýta sér orkuna sér til hjálpar. Það er til dæmis mjög gott að nota Reiki þegar dýr eru að fæða og reyndar við hvað sem er eins og hjá mönnum.           Eftir að ég útskrifaðist sem Reikimeistari fór ég strax að kenna. Vinir mínir hér fyrir norðan biðu eftir að ég kæmi heim. Það var mjög mikil hvatning að vita að mín biðu strax námskeið, fleiri en eitt og fleiri en tvö. Námskeiðahaldið hefur gengið vel. Ég er alltaf að kenna öðru hvoru, en þar sem ég er líka, móðir, bóndi og rithöfundur verð ég skiljanlega að skipta tíma mínum og mér hentar mjög vel að hafa þetta allt inni í mínu lífi. Ég hef líka notað Reiki mjög mikið á börnin mín og hefði ekki viljað missa af að hafa það eftir að ég eignaðist þau. Reyndar get ég í dag als ekki hugsað mér lífið án þess að hafa aðgang á þennan hátt að alheimsorkunni. Nú hef ég einnig sjálf þjálfað meistara og finnst það dásamlegt að hafa fengið að taka þátt í að breiða Reikið út. Fyrsti meistarinn sem ég þjálfaði var Þuríður Guðmundsdóttir grasalæknir. Það er frábært að sjá hvernig hún nýtir sér þessa aðferð við smyrslin sem hún er að búa til, sem og annað. Það sýnir glökkt hve vel er hægt að nýta sér alheimsorkuna í allri vinnu, ekki einungis við heilun manna og dýra  heldur allt sem er lífrænt.           Á Íslandi eru í dag starfandi margir reikimeistarar og hefur Guðrún Óladóttir þjálfað þá flesta, enda var hún fyrsti reikimeistarinn hér og má segja að það séu hennar verk að innleiða Reiki á Íslandi. Fyrir mér er það mjög jákvætt og því fleiri því betra. Reiki er orka sem allir geta unnið með óháð trúarbrögðum, aldri, búsetu eða hverju sem er. Reiki er eitthvað sem allir geta nýtt sér. Þetta er aðferð þar sem allir sem hafa lært geta nýtt sér hvenær sem er, hvort sem ástundunin er mikil eða lítil.           Síðustu fjögur ár hef ég verið með færri námskeið og gefið börnunum mínum meiri tíma. Þó hef ég unnið geysilega mikið með Reikið og finn að eftir því sem tíminn líður næ ég að halda mér og mínum í enn meira jafnvægi, en það skiptir öllu máli. Ég á því láni að fagna að Jóhanna Halldórsdóttir, annar reikimeistari sem ég þjálfaði býr hér rétt hjá svo að nú hafa Húnvetningar okkur tvær. Það er óskaplega gott að geta vísað á aðra líka vegna þess að Reiki snýst ekki um að gera allt sjálfur, heldur virkja fólkið sjálft og vinna saman.           Þó svo að ég sé að mæla með Reiki þá veit ég að til eru ótalmargar heilunaraðferðir og misjafnt hvað hentar hverjum og einum. Hver og einn verður að finna sína leið, en öll þörfnumst við aðferða til að losa okkur við stress og halda okkur í jafnvægi. Ég hef alltaf haldið því fram að hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar fari afar vel saman. Þó að ég sé að vinna með heilun er ég als ekki að fara inn á svið læknanna, sjúkdómsgreina eða gera neitt það sem fagaðilar í þeim fögum eiga að vinna, öðru nær. Við sem vinnum með Reiki bendum fólki á að fara til læknis, fá sjúkdómsgreiningu, vera dugleg að taka lyfin sín o.s.frv. Hins vegar getur það nýtst fólki vel að fara í heilun með hefðbundnum lækningaraðferðum.           Það sem skiptir mig kannski mestu máli í minni reynslu, fyrir utan það að hafa getað verið tengiliður alheimsorkunnar, er að með því að byrja að læra Reiki fór ferli af stað, sem mér finnst mjög jákvætt. Ég einfaldlega fór að þroskast á annan hátt, fór að kunna að meta það sem ég átti, gat, heilsuna mína, lífið sjálft og allar þær dásemdir sem það hefur uppá að bjóða. Ég fékk líka aukið sjálfstraust og betri líðan. Áður en ég fór í þetta nám hefði ég aldrei ímyndað mér að ég myndi nokkru sinni kenna nokkuð, eða standa fyrir framan fólk og tala. Ég hafði mjög lítið sjálfstraust og sjálfmynd. Það hefur breyst og ég er mjög ánægð í dag.                                            Almennt um Reiki.              Reiki er japanskt orð og þýðir "Alheimsorka"           Alheimsorku er fyrst getið í 2500 ára gömlum Tíbenskum ritum og var enduruppgötgvað af Dr. Mikao Usui í Japan á nítjándu öld. Þessi náttúrulega lífsorka virkar á öllum sviðum einstaklingsins. Reiki er hreinsandi, orkugefandi og stuðlar að almennri vellíðan og þroska einstaklingsins.           Orkan flæðir í gegnum hendur iðkandans og viðkomandi getur beint henni að sjálfum sér, öðrum einstaklingum jafnt sem dýrum og plöntum.           Við fæðumst öll með Reiki, það sem þarf til að virkja þessa endalausu alheimsorku er viljinn til að læra og vígslurnar sem gefnar eru á námskeiðum.           Það er ekki krafist nokkurrar forvinnu, þjálfunar né þekkingar, einungis löngunarinnar til að vera ómengaður leiðari hreinnar lífsorku.           Að gerast Reiki iðkandi hefur djúpstæð áhrif á viðkomandi. Það færir aukinn þroska, breytingar og blessun inn í lífið.           Fólk verður fært um að:  -   Miðla heilunarorku gegnum hendurnar.  -   Upplifa hærra orkusvið.  -   Þroska sálar og innsæisvitund.  -   Jafna lífsorkuna, m.a. orkurásir, orkustöðvar(chakra), eitlakerfi, vinstra og hægra heilahvel.  -   Eykur sjálfstraust.  -   Fólk verður sáttara við sjálft sig.  -   Lærir að virða/meta annað fólk eins og það er.  -   Að tala sannleikann án þess að dæma aðra eða kenna um.  -   Að meta/vera þakklátur fyrir það sem maður er.  -   Að taka ábyrgð á sínum eigin gjörðum og lífi.  -   Treysta sínu innra sjálfi fullkomlega.  -   Að hafa kærleikann ávalt að leiðarljósi.                                               Nokkrir punktar um Reiki.     -   Reikiorkan fer í gegnum hvað sem er. Þess vegna er allt í lagi að orkuþegi sé í fullum klæðum og jafnvel með þykkt teppi yfir sér.  -   Það þarf ekki að fara í sérstakt ástand til að vinna með Reiki.  -   Reikiorkan er dregin gegnum gefandann af þiggjandanum og það er sjálf þiggjandans sem stjórnar orkuflæðinu.  -   Í þessu felst að gefandinn læknar ekki aðra. Hann getur aðeins gefið öðrum aðgang að orkunni til þess að lækna sjálfan sig.  -   Við getum öll læknað okkur sjálf og/eða unnið fyrirbyggjandi vinnu á heilsufari okkar með því að  gefa okkur Reiki daglega á orkustöðvar líkamans.  -   Hægt er að nota orkuna á veik svæði eða þar sem verkurinn er.  -   Ef gefið er Reiki á allar orkustöðvarnar eins og lært er á námskeiðunum þá verðum við að gera það þrjú skipti í röð til að byrja með, þ.e. einu sinni á dag í þrjá daga. En þetta gildir bara um fyrsta skipti sem unnið er með viðkomandi.  -   Eftir þessi þrjú skipti getur meðferðin verið eins og hver vill, t.d. einu sinni í viku eða nokkurra daga/vikna fresti.  -   Ef unnið er með manneskju sem er með alvarleg veikindi þá er mælt með meðferð sem oftast, jafnvel tvisvar á dag.                                                        5 lífsreglur í Reiki.                                         Í dag mun ég vera þakklátur.                                         Í dag mun ég vera laus við áhyggjur.                                         Í dag mun ég ekki reiðast.                                         Í dag mun ég sinna störfum mínum af heiðarleika.                                         Í dag mun ég sýna öllum lífverum ást og virðingu.                                                        Saga Reiki.              Um miðja 19. öld var maður að nafni dr. Mikao Usui skólameistari í litlum kristnum háskóla í borginni Kyoto í Japan. Nemendur hans vildu fá að vita hvers vegna enginn gæti læknað sjúka eins og Jesú gerði, fyrst hann hafði sagt: "Sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig mun einnig gjöra þau verk, sem ég gjöri; og hann mun gera enn meiri verk en þessi".( Jóhannes 14.12.). Heiðurs síns vegna ákvað Usui því að fara og finna svarið. Hann hóf leit sína í Chicago, en þar var lítið um svör. Usui vissi að Búdda hafði læknað líkt og Kristur. Því hélt Usui aftur til Japans og gekk á milli klaustra og spurði: "Hafið þið einhver skjöl sem segja frá hvernig Búdda læknaði?" Svörin voru alls staðar á svipaða lund. "Nú einbeittu menn sér að því að auðga andann".           Loks kom Usui til Zen klausturs og hitti þar gamlan ábóta. Hann sagði við Usui: "Það sem einu sinni hefur verið gert er hægt að gera aftur". Usui tók því til við að kynna sér japönsku lótus sútrurnar og kínversku sútrurnar en til þess að geta það varð hann að læra kínversku. Næst fór Usui til Norður Indlands, til Himalayafjalla. Þar fékk hann að sjá gömul tíbensk handrit, þar sem segir frá St. Isa, sem talið er að hafi verið Jesú. Með þessa vitneskju og tíbensku sútrurnar taldi Usui sig hafa komist að kjarna málsins, en hann fann að hann vantaði kraftinn. Hann fór því aftur í Zen klaustrið til að spyrja vin sinn ábótann ráða. Með hugleiðslu komust þeir sameiginlega að þeirri niðurstöðu, að Usui skyldi fara til hins helga fjalls, Kuri Yama, 17 kílómetra frá Kyoto. Þar skyldi hann fasta og hugleiða í 21 dag.           Þetta gerði hann, en í 20 daga gerðist ekkert. Á 21.degi sá hann ljós í fjarska sem bæði óx og færðist hratt í áttina til hans. Hann varð hræddur og ætlaði að hlaupa í burtu, en áttaði sig svo á því að þetta gæti verið svarið sem hann hafði leitað svo lengi. Ljósið kom sífellt nær og varð skærara, loks skall það á miðju enni hans. Usui hélt að hann væri dáinn, fyrir augum hans svifu ljóskúlur og í hverri þeirra var tákn á sanskrít. Kúlurnar fóru það hægt framhjá honum að hann náði að nema tákn.           Þegar hann kom til sjálfs síns á nýjan leik sá hann sér til mikillar undrunar að það var kominn bjartur dagur. Hann hljóp niður fjallið, en gáði ekki að sér, datt og reif upp á sér tánögl. Ósjálfrátt greip hann með höndunum yfir sárið og sér til mikillar furðu sá hann nokkrum mínútum seinna að sárið var gróið. Hann fór beint á sveitakrá og pantaði sér fulla máltíð og borðaði hana án þess að verða meint af þrátt fyrir 3ja vikna föstu. Hann læknaði einnig tannverk dóttur kráareigandans. Eftir þetta hélt Usui til klaustursins að finna ábótann, sem var illa haldinn af liðagikt. Hann sagði ábótanum frá reynslu sinni, fékk að leggja hendur yfir hann og þeir fundu báðir fyrir lækningakraftinum.           Usui fór að vinna með Reiki. Hann byrjaði í betlarahverfinu í Kyoto. Árangurinn var ótrúlegur. Á skömmum tíma tókst honum að lækna og hjálpa fjölda utangerðsmanna að ná fótfestu í lífinu á nýjan leik. Eftir u.þ.b. 7 ár fóru þeir sem hann hafði hjálpað fyrst að snúa aftur og sögðu að þeir hefðu ekki verið tilbúnir til að gerast ábyrgir borgarar, þeir vildu heldur vera betlarar áfram. Usui áttaði sig á því  að það var ekki á hans valdi að breyta lífi þessa fólks, það yrði að velja sitt hlutskipti sjálft.           Usui ferðaðist um allt Japan og kenndi Reiki. Hann vildi að fólk bæri sjálft ábyrgð á eigin heilsu og með því að kenna fólki Reiki gat það einnig þroskað sjálft sig. Hann kenndi mörgum en vígði einungis einn meistara, Dr. Chujiro Hayashi, sem stofnaði fyrstu reikimiðstöðina í Tokyo.           Árið 1935 kom til Hayashi ung, mjög veik kona, sem hét Hawaya Takata. Í reikimiðstöðinni fékk hún á skömmum tíma bót meina sinna. Á þessum árum var ekki til þess ætlast að konur í Japan fengjust við svona lagað, en um síðir fékk hún að taka I. og seinna II. Stig í Reiki. Hún flutti svo til Bandaríkjanna.           Hayashi vissi vegna innsæis síns að stríð var yfirvofandi og einnig hvernig því mundi lykta. Því fór hann að gera ráðstafanir til að koma reikiþekkingunni frá Japan. Hann fór 1938 til Bandaríkjanna ásamt dóttur sinni og heimsótti Takötu og vígði hana til meistara. Að því loknu snéri hann aftur til Japan og þar sem hann vissi að stríð var á næstu grösum ákvað hann að nú skildi hann ljúka þessari jarðvist. Umvafinn ástvinum sínum fékk hann þrjú hjartaáföll sama daginn og kvaddi þennan heim.           Takata hélt áfram að vinna með Reiki á Hawaii. Það var þó ekki fyrr en árið 1970 að hún hóf að vígja meistara og þegar hún kvaddi þennan heim í desember 1980 hafði hún vígt 21 meistara. Barnabarn Takötu, Fyllis Lei Fuoromoto tók við af henni og er nú yfirmeistari í Reiki.           Í byrjun árs 1989 kom Dr. Paula Horan, bandarískur reikimeistari til Íslands til að halda reikinámskeið. Það ár vígðist, Guðrún Óladóttir til reikimeistara og varð fyrsti reikimeistari á Norðurlöndum. Síðan þá hefur hún þjálfað marga reikimeistara hér á landi og nemendur hennar sem eru orðin reikimeistarar hafa sum hver einnig þjálfað meistara. En þúsundir íslendinga hafa lært I. stig í Reiki eða meira.                                                                               Að lokum.              Ég vona að með þessum línum hafi mér tekist að fara nokkrum orðum um Reiki, þannig að þeir sem ekki þekkja fái örlitla innsýn. Ég vil taka það fram að það sem ég hef skrifað er Reikið eins og það kemur mér fyrir sjónir og sú reynsla sem ég hef, sem er mjög jákvæð. Mér hefur tekist að lækna sjálfa mig af ýmsum kvillum og það hef ég einnig séð annað fólk gera. Staðreyndin er að ég lækna auðvitað engann nema sjálfa mig. Hver og einn læknar sig og þeir sem vinna með Reiki eru einungis tengiliður til þess að þyggjandinn geti nýtt sér orkuna. Hver og einn læknar sig sjálfur og ræður hvernig orkan notast. En það er ekki hægt að gera neitt rangt. Það var það sem gladdi mig mest í upphafi, ég þurfti ekki að vera hrædd um að skaða eða skemma, ég er einungis eins og framlengingarsnúra, farvegur fyrir orku sem fólk, dýr eða plöntur geta nýtt sér.           En ég var heppin. Ég fann leiðina mína, ég fann Reiki. Ég vona að þú lesandi góður finnir þér hentuga leið til að vinna með sjálfan þig og halda þér í jafnvægi. Við eigum svo margt gott sem við getum nýtt okkur, dásamlega náttúru, hreint loft og vatn, heilbrigða fæðu og aðgang að alheimsorku. Við erum öll skipstjórar á eigin skipi og höfum val í okkar lífi. Ég óska ykkur öllum góðs gengis og hamingju í framtíðinni.                                                                         </description>
Ný sýn með mínum augum 2
      <description>2. grein.              Í fyrstu grein minni fór ég yfir nokkur atriði sem við getum notað til að bæta líf okkar og verða jákæðari í hugsun. Þá var ég að fjalla um bænina, fyrirgefninguna og kærleikann. Nú langar mig til að halda áfram að fjalla um fleiri atriði sem hjálpa okkur í því að líða betur. Við þurfum á því að halda að elska sjálf okkur, virða og gefa okkur tækifæri.            Frelsi er eitt af því sem við verðum að hafa í okkar lífi til þess að okkur geti liðið vel. Það frelsi sem ég er að tala um er einmitt undir okkur sjálfum komið og við ein getum veitt frelsi inn í okkar eigið líf.                                                     Frelsi.              "Öll eigum við skilyrðislausan rétt á því að hafa fullkomið frelsi í okkar lífi. Frelsi til þess að vera hamingjusöm, láta gott af okkur leiða. Frelsi til þess að birta það sem við viljum. Frelsi til þess að velja þá leið sem við kjósum í þroskagöngu okkar. Guð gaf okkur frjálst val. Það er stærsta gjöf sem við getum fengið. Guð gaf okkur algert frelsi. Skoðum þá staðreynd og hugsum vandlega um það hvernig við nýtum þessa stórkostlegu gjöf.           Hvað er það sem veitir okkur frelsi? Frelsi okkar felst fyrst og fremst í því að vera hverja stund við sjálf. Við getum átt og nýtt okkar fullkomna frelsi án þess að hefta frelsi annara. Við meigum ekki taka valið af öðru fólki. Þá erum við að taka af því möguleika til þroska og þá erum við að taka af því frelsi sem hver og einn á. Það er eitt að leiðbeina og vera til staðar fyrir fólk og annað að þröngva vilja sínum inn á aðra.           Hugsum um það munstur sem viðgengst hjá okkur sjálfum og fjölskyldum okkar. Sú manneskja sem sviptir okkur oftast frelsi, erum við sjálf. Við viljum að sjálfsögðu breyta rétt, Það gerum við með því að hlýða kalli hjartans og hlusta á okkar innri rödd. En oft á tíðum erum við að taka burt okkar eigið frelsi vegna þess að við höldum að öðrum líki ekki við okkur ef við erum við sjálf. En er það ekki einmitt fólkið sem við dáumst að sem gefur sjálfu sér frelsi?           Það er frelsi að segja skoðun sína, birta þá sköpun og tjáningu sem við þurfum, hverju sinni. Við eigum einnig að muna að orð geta sært og brotið fólk niður. En þó að við viljum muna þennan sannleik, þá er ekki þar með sagt að við eigum að tala gegn sannfæringu okkar einungis til þess að aðrir heyri það sem þeir vilja heyra. Verum ávalt sönn í því sem við birtum, þá mun vel fara. Þannig getum við hjálpað hvert öðru til þess að öðlast sitt frelsi. Frelsi til þess að birta það sem hver og einn getur og vill hverju sinni.           Ef til vill finnst okkur stundum að annað fólk svipti okkur frelsi, vilji hafa okkur eftir sínu höfði. Skoðum þá hvernig við komum fram við annað fólk, t.d. börnin okkar. Við eigum að kenna þeim allt það besta til þess að þeim gangi vel í lífinu og finni sig í samfélagi okkar. En við erum þess einnig megnug að gefa þeim stórkostlegt frelsi. Við getum gefið þeim frelsi til að elska, vera þau sjálf, komast í snertingu við náttúruna, hreyfa sig, velja fötin sín, liti í herbergi og taka þátt í sameiginlegum ákvörðunum. Um leið og við gefum öðru fólki frelsi erum við að gefa okkur sjálfum frelsi um leið.           Í gegnum frelsi er hægt að kenna svo ótalmarga hluti. Segjum að barnið þitt þrái að eignast gæludýr. Gott og vel, ef allir á heimilinu eru sáttir. En við getum um leið kennt barninu að bera ábyrgð á því sem það velur. Það þarf sjálft að hugsa um dýrið, gefa því að borða, þrýfa eftir það, sinna félagslegri þörf þess og sjá því fyrir hreyfingu og auðsýna því ástúð. Það getur verið leiðigjant og þreytandi að bera ábyrgð, þó ekki sé nema á einni lítilli mús. En með þessum yndislegu dæmum úr okkar daglega lífi getum við kennt svo góða hluti. Við lærum að velja fyrir okkur sjálf, taka ábyrgð á vali okkar og því sem við gerum.           Það er yndislegt að hafa frelsi, en margt fólk er alið uppí því að aðrir taki fyrir það allar ákvarðanir. Vant því að aðrir axli ábyrgð sem það sjálft ætti að axla. Við berum ábyrgð á okkur sjálf og við erum þau einu sem getum notað frelsi okkar, sem Guð gaf.           Leyfum okkur að vera frjáls. Leyfum okkur að láta okkur dreyma. Leyfum okkur að njóta augnabliksins og leyfum öðrum að vera þeir sjálfir. Með frelsinu hjá okkur  kennum við öðrum að gefa sjálfum sér frelsi. Þannig getum við komið meiri jákvæðni inn í líf okkar og annara.           Gefið ykkur líka frelsi til þess að gera það sem ykkur hefur alltaf langað. Þó að við séum fullorðin þá eigum við kannski drauma sem við sjáum ekki að geti ræst. Til dæmis í sambandi við nám. Við heftum okkur sjálf með alskyns afsökunum. Við getum ekki farið að læra af því að við erum of langt frá skólanum, af því að við eigum ekki næga peninga, höfum of stóra fjölskyldu eða erum of gömul. Þið vitið að við erum oftast að búa þessar ástæður til. Við ákveðum oft fyrir aðra, hluti sem eru kannski ekki einu sinni í huga þeirra sem hlut eiga að máli.           Höldum áfram að tala um námið. Nú er hægt að stunda fjarnám mjög víða, kannski er fjölskyldan meira en tilbúin til að hjálpa til, kannski er hægt að draga saman útgjöld og þetta með aldurinn er lélegasta afsökunin. En þá er spurningin. Er þetta það sem við viljum eða erum við að láta aðra halda að ef við værum í betri aðstæðum þá nýttum við líf okkar á annan hátt? Skoðið þetta vel. Því að þetta dæmi á við svo margt, sambönd, vinnu, félagslíf og margt fleira.           Stundum erum við hrædd við breytingar og viljum kannski ekki breyta okkar lífi. Það er allt í lagi. Við eigum okkar val og það er engin sem segir að eitthvað starf sé betra eða mikilvægara en annað. Skoðum vel í hugskoti okkar hvað það er sem við viljum og leyfum okkur að vera frjáls. Við þurfum ekki að fela okkur á bak við neitt: Ég get ekki af því að ...                     Við eigum val og frelsi til að breyta okkar lífi eða halda því í þeim skorðum sem það er. Við ráðum þessu sjálf, fyrir okkur sjálf. Verum frjáls og njótum þess sem við höfum. Leyfum okkur að svífa um í huganum og sjá fyrir okkur allt það góða og fallega sem við óskum. Óskum als hins besta fyrir okkur sjálf, fyrir aðra og fyrir jörðina okkar. Okkur er frjálst að biðja um allt gott okkur til handa. Munið það.           Gefið ykkur frelsi til þess að losna við það sem þið viljið úr ykkar lífi. Þannig gefið þið einnig öðrum tækifæri. Gefið ykkur einnig frelsi til þess að öðlast það sem þið þráið og ná þangað sem þið viljið ná. Þannig gefið þið einnig öðrum frelsi. Lærið að njóta. Þið eruð frjáls og möguleikarnir eru óþrjótandi.                                         Frelsishugleiðsla.              Sitjið með lokuð augun og slakið á. Líkaminn er afslappaður og þið andið rólega og kyrrið hugann. Ykkur líður dásamlega vel. Mikill friður fyllir sál ykkar og þið finnið að þið getið gert allt sem þið viljið. Allt sem áður hefur truflað ykkur gerir það ekki lengur. Þið slakið enn betur á og hver fruma er fullkomlega afslöppuð og í jafnvægi.           Sjáið fyrir ykkur eða finnið að út úr bakinu ykkar spretta vængir. Um leið og það gerist léttir af ykkur öllum áhyggjum, ef einhverjar hafa verið. Þið eigið þessa vængi. Þið hafið alltaf átt þá en nú ætlið þið að fara að nota þá, því að þið vitið að þið eruð fullkomlega frjáls.           Breiðið út vængina og finnið hvernig frelsistilfinning flæðir um sál ykkar. Þið lyftist hægt og rólega og nú getið þið svifið um á vængjunum ykkar hvert sem þið óskið, frjáls og óheft.           Öll gömul höft hverfa á braut. Það er ekkert sem bindur ykkur nema það sem þið hafið sjálf valið og getið breytt hvenær sem er.           Þið svífið upp í bláan himininn, finnið hvernig friður fyllir hjörtu ykkar, gleði og eftirvænting þyrlast um ykkur. Þið eruð frjáls og þið getið flogið hvert sem er.           Leikið ykkur um himingeiminn. Svífið á milli stjarnanna og njótið þess að finna kærleiksorkuna sem umvefur ykkur. Alheimurinn er sneisafullur af kærleik. Það er nóg til. Þið getið alltaf náð ykkur í alla þá orku sem þið óskið, allan þann kærleik sem þið viljið. Þið eruð frjáls, umvafin af hamingjutilfinningu og þið vitið að ekkert verður eins og áður.           Þar sem þið svífið um himingeiminn, leyfið ykkur þá að biðja um það sem þið viljið. Bænir ykkar eru heyrðar. Ef til vill hittið þið aðra sem einnig eru að gefa sér frelsi og svífa á vængjunum sínum til þess að ná sér í kærleik og frið.           Þegar þið hafið svifið um eins og þið viljið skuluð þið koma til baka og setjast í sætin ykkar. Þið eruð frjáls og þið eigið þessa vængi sem þið getið notað hvenær sem er. Frelsið gerir vængina ykkar virka. Með ykkur kemur til baka þessi frelsistilfinning sem í senn vekur gleði og hugljómun. Þið eruð fullkomlega frjáls.           Nú skuluð þið opna augun. Frjálsar guðlegar verur í heimi frelsis".              Hugleiðslur eða æfingar eins og þessar getið þið notað ein og sér eða í hóp, sem þá er gott að einhver leiði hugleiðsluna í rólegheitunum, þannig verður slökunin meiri og þið finnið einnig samkenndina með hinum sem einnig eru að vinna þessa dásamlegu vinnu.                                                     Draumar.                 Það er svo ótalmargt sem við veltum fyrir okkur dag hvern og ótalmargar leiðir til þess að finna svörin innra með sér og fá hjálp. Eitt af því eru draumar okkar. Öll dreymir okkur og ef við tökum eftir draumunum okkar og skrifum þá niður geta þeir sagt okkur mjög margt um okkur sjálf, ótta okkar og það sem koma skal. Þeir sem eru með okkur, leiðbeinendur og andlegir meistarar gera allt sem þeir geta til að fá okkur til að hlusta og ná athygli okkar. Ein af þeim leiðum er einmitt draumarnir. Stundum eru draumar okkar martraðir og ástæðan er yfirleitt sú að við erum að nýta draumana til að hreinsa út hjá okkur og því ekkert að óttast. Eftir að ég komst að þessu hef ég átt betra með að umbera vonda drauma. Eftir vondan draum, þakka ég bara fyrir og hugsa með mér að það sé gott að þetta hreinsaðist burt frá mér. Síðan sleppi ég hugsuninni og gleymi honum sem fyrst. Þetta finnst mér gott, vegna þess að það sem er neikvætt hjálpar mér ekkert til þess að komast þangað sem ég ætla. Aftur á móti eru aðrir draumar sem takandi er mark á.           Ef þig langar til að ráða draumana þína, þá skrifaðu þá niður. Búðu síðan til þína eigin draumaráðningabók. Það getur verið mjög skemmtilegt að taka eftir þeim táknum sem koma fram hjá hverjum og einum. Það sem þýðir eitt fyrir mig getur þýtt allt annað fyrir þig. Með því að læra að muna draumana sína og halda draumadagbók getum við orðið margs vísari og fengið ótrúlegar upplýsingar er við erum farin að geta ráðið okkar eigin drauma.           Ef það eru einhverjar spurningar sem brenna á okkur, getur verið ráð að skrifa niður spurninguna og stinga síðan miðanum undir koddann. Biðjum síðan um svar og vitum hvaða svör við fáum. Ef draumur fyrstu næturinnar svarar okkur ekki, skulum við ekki gefast upp, heldur biðja um nákvæmara svar. Þetta getur verið skemmtilegt og einnig gagnlegt.           Það er svo ótalmargt skemmtilegt sem við getum gert í okkar andlegu vinnu, bæði ein og sér og einnig saman. Við getum stofnað hópa, bæði hugleiðslu og bænahópa, eða lestrarhópa þar sem fólk les sömu bókina og kryfur hana síðan, hver með sínum skilningi. Það að gera líf sitt jákvæðara er ótrúlega gott en á einnig að vera skemmtilegt. Við eigum að njóta als þess sem við gerum og finna okkar eigin leiðir til að njóta.                                                                 Framtíðin.              Öll veltum við framtíðinni fyrir okkur. Hvað er það sem koma skal? Hvernig mun líf mitt verða eftir ár eða tíu ár? Allir hugsa fram á veginn, sumir með ótta í huga en aðrir með gleði. Við skulum velja gleðina og óska sjálfum okkur og öðrum dásamlegrar framtíðar.           "Við vitum það og finnum í hjörtum okkar að í náinni framtíð munu margir hlutir breytast. Miklar og stórar hreinsanir munu eiga sér stað. Til þess að jörðin okkar geti orðið að því friðarríki sem okkur hefur verið lofað, þarf margt að laga og mikil uppbygging síðan að eiga sér stað.           Við erum hér á þessari jörð til þess að hjálpa til við að skapa þessa nýju framtíð. Við eigum alla möguleika til þess að taka þátt í þessu yndislega starfi og síðan að njóta þess að vera hér þegar jörðin okkar verður orðin friðsæl, laus við sársauka og þjáningu. Það verður yndislegt.           En áður en til þess kemur verðum við að breyta miklu og hreinsa út neikvæða hluti. Það sem við gerum fyrst er að byrja á okkur sjálfum. Við viljum birta guðdómleik okkar. Reynum hverja stund að vera þær manneskjur sem við viljum vera, njótum augnabliksins. Lærum að sjá fegurðina allt í kringum okkur, látum streyma frá okkur jákvæðar hugsanir og kærleik. Sjáum einnig í huga okkar hvernig allt breytist til hins betra í okkar lífi, annara lífi og lífi jarðarinnar okkar í heild.           Það besta sem við getum gert fyrir móður jörð er að biðja fyrir henni og heila hana með kærleik okkar. En það er eins með jörðina okkar og okkur sjálf. Við viljum þyggja kærleik en við viljum einnig gefa frá okkur allt hið besta. Þannig er einnig með jörðina. Hún þráir það heitast að við græðum sárin hennar og einnig þráir hún að við þyggjum gjafir hennar.           Takið eftir því þegar þið eruð úti í náttúrunni. Það er sama á hvaða árstíma er. Jörðin er full af orku sem hún vill gefa okkur, ómælda eins og við getum þegið og notað. Jörðin okkar vill einnig að við njótum ávaxta hennar, tökum það sem við þurfum, en sleppum allri græðgi. Við ættum einnig alltaf að muna að þakka fyrir okkur og allt sem við fáum. Þannig er flæðið rétt.           Notum tímann vel. Gefum jörðinni heilun og kærleiksríkar hugsanir í hvert sinn sem við hugleiðum. Biðjum fyrir jörðinni okkar í hvert sinn sem við biðjum. Þannig getum við áorkað óendanlega miklu.           Það að vekja aðra meðbræður okkar til meðvitunar um framtíðina og mikilvægi jarðarinnar er einnig stórt verkefni. Við verðum samt að muna að neyða aldrei fróðleik okkar og vitneskju til annars fólks, en ef fólk vill fræðast af þér þá notaðu milda kærleiksríka orku til þess að upplýsa fólk um það sem þú heldur að geri það kærleiksríkara og jákvæðara. Þú getur hjálpað mörgum sem eru óöruggir í dag. Sú vitneskja sem þú hefur og öðlast smátt og smátt gerir þig líka skilningsríkari.           Orka jarðarinnar er að hækka mjög mikið. Á meðan við erum að venjast henni og þeim breytingum sem eiga sér stað allt í kringum okkur þá getur okkur liðið skringilega. Fólk er slappt og druslulegt, án þess að hafa til þess neina ástæðu. Það getur skapað óöryggi, pirring og áhyggjur. En ef við gerum okkur grein fyrir að þetta er eðlilegt ástand og líður hjá, þá eigum við auðveldara með að halda okkur í jafnvægi, þó svo að orkusveiflurnar á jörðinni séu misjafnar.           Í framtíðinni mun enginn geta logið að þér. Nú strax ert þú farinn að skilja hvenær fólk er heiðarlegt og hvenær ekki. Það er ekki lengur hægt að plata þig eins og áður var. Finndu hvað það er gott.           Í framtíðinni mun enginn særa þig. Jörðin verður friðsæll staður og smátt og smátt eru fleiri og fleiri að verða meðvitaðir um hlutverk sitt. Fleiri og fleiri verða meðvitaðir um guðsneistann í brjósti sér. Eftir því sem fleiri vinna meðvitað, þeim mun auðveldara er fyrir þá sem á eftir koma. Hugsið ykkur hve gleðilegt það er ef vinnan með sjálf okkur skilar því að aðrir njóti góðs af. Við sjálf verðum þessi ljós sem lýsa upp jörðina og við munum hjálpa öðrum til þess að tendra ljósin sín. Hugsið ykkur hve það er stórkostlegt. Við meigum samt aldrei dæma þá sem ekki eru vaknaðir til meðvitundar. Þeir geta vaknað allt í einu, gefið sjálfum sér tækifæri og meðtekið ljósið á mjög skömmum tíma.           Orkan er að breytast, tíðnin að hækka. Það er þekkt staðreynd í vísindum að engir tveir hlutir geta verið á sama stað, annar verður að víkja. Það sama er að segja um orkuna. Ef ný orka hvolfist yfir okkur, verður sú gamla að hverfa. Svo lengi hefur mikil neikvæð orka verið á jörðinni okkar. En nú hefur þróunin snúist við. Fleiri og fleiri velja ljósið og myrkrið verður að hverfa á braut.           Oft erum við hrædd við hið óþekkta, jafnvel þó að við vitum að við þurfum að breyta. En þó er það svo að þegar við höfum ákveðið að arka af stað veginn okkar nær ljósinu, þá er ekkert sem stöðvar okkur. Við fáum alla þá hjálp sem við biðjum um. Við neyðumst til að taka til hjá okkur, hreinsa út og vinna úr bældum tilfinningum. Það getur verið erfitt, en það er sannarlega þess virði. Við viljum og munum undirbúa okkur undir dásamlega framtíð, því meira sem við gerum í okkar andlegu vinnu því betra. Við skulum hjálpast að við að gera jörðina að þeirri paradís sem hún á að vera. Fyrir okkur sjálf, ástvini okkar og alla jarðarbúa.           Við getum fundið fyrir hreinsunum í okkar efnislega líkama. Við getum einnig fundið fyrir hreinsun jarðar í efnislíkömum okkar. Stress, flökurleyki, andarteppa eða verkur fyrir hjarta eru einkenni fyrir samhyggð og samkennd með jörðinni og því sem móðir jörð fer í gegnum. Höfum ekki áhyggjur. Við verðum að læra eitt til þess að líða vel. Við verðum að venja okkur á að vera í jafnvægi. Með því að losa okkur við ótta og hleypa inn kærleik komum við jafnvægi á í lífi okkar. Óttalaus og kærleiksrík skulum við ganga mót framtíðinni. Framtíð sem við sköpum.           Við verðum að þora að taka ábyrgð á okkur sjálfum og okkar lífi. Við skulum hætta að varpa ábyrgðinni á aðra. Við erum tilbúin til að axla þessa ábyrgð. Við erum tilbúin til að lifa hamingjusömu lífi. Við erum tilbúin til að lifa í alsnægtum.           Trúum á yndislega framtíð og hjálpum til við að skapa hana. Við öxlum okkar ábyrgð og gleðjumst yfir öllu því góða sem kemur til okkar dag hvern. Sjáum heiminn með nýjum augum. Skuggarnir hverfa og ljósið skín í hvern afkima jarðarinnar og hvern afkima sálarinnar.                                      Framtíðin er ljós.                                      Framtíðin er kærleikur.                                      Framtíðin er hamingja.                                      Framtíðin er gleði.                                      Framtíðin er okkar allra."                                                     "Ný sýn.              Í lífi okkar eru oft einhver kaflaskil, einhverjar ákvarðanir sem að við tökum, eitthvað sem kemur óvænt uppá, eitthvað sem við veljum að breyta eða eitthvað sem við ákveðum að takast á við.           Það er geysilega stórt skref að ákveða að vilja takast á við sína veikustu punkta, vinna með það sem við ef til vill höfum svo lengi lokað á. Það er stór gjöf sem við gefum sjálfum okkur þegar við ákveðum það, þá leggjum við af stað í ákveðna ferð. Ferðalag með okkar eigin sál.           Á leiðinni lendum við oft í því að detta í sprungur og hrapa niður kletta. En áfram höldum við ótrauð. Það getur verið erfitt, býsna sárt og á stundum algerlega óþolandi. Við sveiflumst frá því að vera í hugljómunarástandi allt til þess að sjá ekkert nema erfiði, leiðindi og vonleysi. En við gefumst aldrei upp. Hver sveifla sem er að baki er reynsla sem við viljum ekki vera án. Smám saman vindum við ofan af kaðalhönkinni sem við áður lokuðum inni og vildum ekki skoða.           Það getur verið erfitt að skoða það sem er liðið. Það getur verið erfitt að fyrirgefa, losa sig við reiði, áhyggjur, sorg, slæmar minningar, vonbrygði og höfnun. Allar þessar tilfinningar sem byggðar eru á ótta. Óttinn sem hefur nagað okkur upp að innan og stundum fyllt sál okkar verður að víkja og kærleikur fyllir okkur. Við ýtum óttanum burt og fyllum sál okkar og vitund af kærleika og ljósi Guðs. Á þeim stundum sem við upplifum þessa frjálsu kærleikstilfinningu, sjáum við ekki eftir þeim stundum sem við erfiðuðum  með svita og tárum að moka óttanum út. Þetta er vinna sem enginn getur unnið fyrir okkur. Við fáum leiðbeiningu en vinnuna vinnum við sjálf. Því getum við verið stolt af okkur sjálfum fyrir vinnuna okkar. Fyrir hverja neikvæða tilfinningu sem við losum okkur við og breytum í jákvæða.           En þrátt fyrir stritið og uppgjöf á stundum, þá finnum við í þessari vinnu að með hverjum deginum verður okkur léttara um, við eigum auðveldara með að halda áfram og við verðum frjálsari og hamingjusamari.           Vissulega breytist lífið ekki á þann veg að við verðum verkefnalaus einn daginn. Aldeilis ekki, enda er það ekki það sem við óskum eftir. Við erum hér á þessari jörð til þess að þroska okkur sjálf og vera þeir gæslumenn jarðarinnar sem við eigum að vera. Við erum að taka þátt í ómetanlegu starfi og það eru forréttindi að fá að vera á jörðinni einmitt nú á tímum umbreytinga og framfara. Jörðin okkar er að upphefjast í ljósið. Það gerist með því að við hvert og eitt okkar hleypum ljósinu inn í líf okkar og breiðum það út. Lífið er stórkostlegt tækifæri og við skulum nýta hverja stund á þann veg sem við teljum best.           Við eigum val sem við eigum að nýta. Við getum valið að vera í jafnvægi og það er okkar eðlilega ástand. Við eigum að vera heilbrigð, hamingjusöm og lifa í friði. Við meigum það og þannig viljum við að framtíðin sé. Þeim mun fleiri sem kjósa ljósið og friðinn þeim mun fyrr verður það að veruleika.           Að vinna með sjálfan sig er ekki eingöngu að hjálpa sjálfum sér heldur hefur það ómetanleg áhrif á heildina. Þessu skulum við aldrei gleyma. Þeim mun betur sem okkur líður, hverju og einu, þeim mun betur líður heildinni. Skuggarnir verða að víkja og ljósið kemur í staðinn. Við birtum guðdóminn og meigum njóta þess sem Guð gaf okkur.           Um leið og við vinnum með jafnvægið í okkur sjálfum vinnum við með jafnvægi þess sem við höfum skapað í kringum okkur. Ef við komumst í jafnvægi og höldum því, þá kemst einnig jafnvægi á sambönd okkar við annað fólk, jafnvægi á aðstæður í lífi okkar, hvort sem við erum að tala um heilbrigði, fjármál, atvinnumál, eða eitthvað annað. Þó að ótrúlegt sé, þá hangir allt á sömu spýtunni. Ef þú elskar sjálfan þig og hefur vald á lífi þínu þá hefur þú einnig úr nægu að moða á hinu efnislega sviði.           Skoðum þetta aðeins. Kröfur okkar til okkar sjálfra eru jafn misjafnar og við erum mörg. Berum okkur aldrei saman við aðra. Berum okkur aðeins saman við okkur sjálf og hvað við viljum vera. Við getum orðið það sem við viljum vera og það hefur ekkert með það að gera hvaða kröfur aðrir gera til sín. Við verðum að vera sjálfum okkur samkvæm. Tökum dæmi: Sumir telja alsnæktir í sínu lífi ef þeir gefa keypt allt það sem þeim dettur í hug, aðrir telja sig hafa alsnægtir ef þeir hafa hrísgrjónaskál og járnplötu yfir höfuðið. Hvort tveggja er jafn gott, einnig allt þarna á milli. Við meigum velja fyrir okkur. Það er ein af gjöfum Guðs og við skulum þakka það.           Við getum líka talað um annað. Einhver telur það æðstu köllun sína að verða páfi í Róm, annar telur það æðstu köllun sína að vera valdalaus líknari í fátækrahverfi. Aðrir vilja vera efnaðir og hafa völd á sviði stjórnmála og telja það æðstu köllun sína. Hvað sem er er gott, ef það er það sem við þráum og teljum að með því getum við best birt guðdóminn. Dæmum aldrei. Verum við sjálf og fylgjum því sem hjartað segir okkur. En þrátt fyrir allt. Við erum öll að vinna með fólk og með fólki, hvað sem við erum að gera. Við höfum áhrif á aðra hvaða starfsheiti sem við höfum. Við getum því alltaf breytt út ljós og kærleika, hvort sem er með viðmóti, brosi, orðum eða athöfnum. Það er ekki lítið.           Það er erfitt að fyrirgefa, en ef til vill er erfiðast að fyrirgefa sjálfum sér. Hvað gerði ég, hvað gerði ég ekki? Ef til vill hefði ég getað gert eitthvað. Hve oft höfum við ekki hugsað eitthvað þessu líkt. Hættum því. Við skulum fyrirgefa sjálfum okkur ef okkur finnst við hafa gert rangt, en munum alltaf að þá (í fortíðinni) vorum við á öðrum stað í þroska og héldum ef til vill að við værum að gera okkar besta. Ef við höfum gert okkar besta þá, af hverju höfum við þá sektarkennd nú? Hið liðna er liðið og við verðum að læra að lifa í nútíðinni. Það er augnablikið sem skiptir máli. Þetta mikilvæga augnablik sem er einmitt nú og kemur ekki aftur. Reynum að njóta þess sem er hverja stund, þá mun lífið verða auðveldara og við eigum betra með að halda jafnvægi okkar.            Stundum fáum við okkur fullsödd af því að vera góð og jákvæð. Það koma stundir þar sem allt gengur á afturfótunum og margir hlutir áreyta okkur í einu. Á slíkum stundum er gott að komast út í náttúruna, reyna að eiga stund með sjálfum sér, tala við Guð og ná jafnvægi okkar á ný. Guð er alveg til í að hlusta jafnvel þó að okkur vanti að losna við pirring og leiða. Hann er svo sannarlega tilbúinn til þess að aðstoða okkur við að eyða burt óttanum og hann á óendanlega mikinn kærleik til handa okkur öllum. Guð getur og vill hjálpa okkur. Við skulum biðja um hjálpina.           Það getur líka verið mjög gott að reyna á sig líkamlega ef við erum andlega þreytt. Góður göngutúr getur breytt fúlum degi í ágætisdag. Ef við getum farið í verk þar sem við tökum á er það gott. Við getum til dæmis hamast á gólfunum okkar, skúrað og skrúbbað. Tvöfaldur árangur. Skíturinn fer og pirringurinn ríkur út í veður og vind. Eftir slík átök eigum við líka skilið að dekra við okkur sjálf of láta okkur líða vel. Það versta sem við getum gert er að velta okkur upp úr vandamálinu þegar við erum niðurdregin. Við verðum enn niðurdreignari og hreinsum ekki burt ótta okkar með því móti.           Það er auðvelt að segja, en erfiðara að framkvæma. En við getum valið og höfum valið. Við höfum valið leiðina til ljóssins og það er stórkostlegt. Enginn hefur orðið heimsmeistari án þess að reyna á sig, aga sig og þjálfa. Við erum í agaprógrammi hjá okkur sjálfum og við völdum það sjálf. En árangurinn mun heldur ekki láta á sér standa. Við höfum öll fundið það. Fundið hvað það er gott að losna úr viðjum vanans, brjóta hlekki, gefa sjálfum sér tækifæri og frelsi til að vera hamingjusamari og glaðari.           Við erum öll stórkostlegar verur sem búum yfir orku sem er sterkari og mátturgi en nokkuð annað í þessum heimi. Okkar eigin hugarorku. Með henni sköpum við alla hluti í okkar lífi áður en við birtum þá. Með henni getum við sent ljós og kærleik hverja stund og árangurinn er stórkostlegur. Því miður nota sumir þessa orku til að senda frá sér neikvæðar hugsanir út í umhverfi sitt, sem fyrst og fremst skaða þann sem sendir. En ljósið er sterkara en myrkrið og ljósið mun ávalt hafa vinninginn hvað sem á dynur."                                         Að rækta sjálfan sig.              Allan tímann er ég búin að tala um að vera jákvæðari, kærleiksríkari og glaðari. Það er mikilvægt. En það eru fleiri hlutir sem eru mikilvægir í sjálfsrækt sem hjálpa okkur að ná jafnvægi. Við þurfum að finna farveginn okkar, fá útrás fyrir sköpun okkar og þurfum að geta tjáð okkur.           Það eru mörg sköpunar og tjáningarform til og ég fullyrði það að öll þurfum við á því að halda að skapa og að tjá okkur. Sumir skapa með pensli, aðrir með penna, enn aðrir með handverki og svo mætti lengi telja. Ef þú finnur farveg fyrir sköpunarþörf þína og nýtir hana þér til gagns og gleði þá ertu vel staddur. Ekkert er betra en að skapa fallega hluti, tónlist, smíða hús, vinna flókið hugverk, hvað sem er. Ef það gefur okkur gleði og ánægju, þá er það okkur sjálfum og öðrum til góðs.           Það þurfa líka allir á því að halda að geta tjáð sig. Sumir gera það með því að tala, syngja, dansa, yrkja eða á einhvern annan hátt. Sköpun og tjáning eru af sama brunni en þó að ég geti skrifað hugsanir mínar á blað getur verið erfitt fyrir mig að tjá það frá sjálfri mér. Þetta fann ég best er ég fór að kenna reiki og fann hve óendanlega mikið ég hafði út úr kennslunni, að fá að kenna þessa heilunaraðferð með minni tungu og sjá að aðrir nutu góðs af. Áður en ég fann mig í þessari vinnu skalf ég af tilhugsuninni um að fara upp í ræðupúlt, jafnvel þó að ég væri einungis að lesa uppúr eigin verkum. Staðreyndin er sú að þegar þú finnur sannleika þess sem þú tjáir innra með þér þá bresta öll höft og feimni og minnimáttarkennd hverfa á braut.           Það að finna sér leið til andlegrar vinnu og þroska getur hjálpað okkur á svo margan hátt. Lengi vel var ég þess fullviss að ef ég færi að vinna við andleg mál þá þyrfti ég að ýta burt flestu úr mínu lífi. Ég trúði því ekki að ég gæti samtímis verið að skrifa glæpaskáldsögur og kenna fólki heilun. En ég komst auðvitað að því að þetta var alrangt. Það að skrifa glæpaskáldsögur er ákveðin útrás fyrir mig, ég er að skapa afþreyingu sem mér finnst skemmtileg og því er ekkert að því. Ég er ekki að fremja glæp.           Við getum öll fundið góðar leiðir sem gefa okkur mikið án þess að yfirgefa okkar fyrra líf. Við eigum valið. Auðvitað erum við alltaf að hreinsa út og losa okkur við það sem við viljum ekki hafa. Það er gott. En það er ekki fórn að stunda andlega vinnu, öðru nær. Það er dásamleg viðbót við þetta skemmtilega jarðarlíf okkar sem mér finnst að við eigum að njóta sem allra best. Njóta augnabliksins og finna hve lánsöm við erum að vera hér. Það sem okkur finnst neikvætt skulum við breyta og opna augun fyrir öllum möguleikunum sem við höfum. Þeir eru óþrjótandi.           Það sem skiptir máli er okkar eigin upplifun. Það eru ekki aðstæðurnar í okkar lífi sem skipta máli, það er hvernig við tökum á þeim. Höfum það hugfast og munum að ef við getum fundið eitthvað jákvætt við hvert og eitt atvik þá er það gott. Stundum eru slæmu hlutirnir góðir þegar til lengri tíma er litið og við sjáum oft að við hefðum ekki viljað missa af reynslunni sem við öðluðumst.           Ég hef nú fengið frábært tækifæri til að fjalla um nokkur atriði sem mér finnst skipta höfuðmáli í lífi okkar svo að okkur geti liðið vel. Þetta eru einfaldar staðreyndir sem við öll getum nýtt okkur hverja þá leið sem við veljum okkur til hjálpar og heilunar. Ekkert af því sem ég hef skrifað er nýtt, en ég veit að eigin reynslu að því oftar sem við erum minnt á, því betra. Það getur verið auðvelt að gleyma því góða sem maður hefur tamið sér, maður getur hreinlega gleymt að nota það í erli dagsins. En öll höfum við gott af því að staldra við öðru hvoru og gefa okkur tíma fyrir okkur sjálf.           Í næstu greinum mínum mun ég fjalla um óhefðbundnar lækningar og byrja þá á umfjöllun um grasalækningar og ýmsar heilunaraðferðir. Ég hef fengið fagfólk til að aðstoða mig, þar sem ég trúi að það verði ef til vill til þess að þú eigir auðveldara með að finna leið sem hjálpar þér. Það er svo margt gott sem fólk í kringum okkur er að vinna og dásamlegt að finna leiðir sem hjálpa manni hvort sem um er að ræða sjálfsrækt eða heilun á líkamlegum kvillur. Ég tel að best sé að vinna saman. Sem betur fer eigum við mjög færa og góða lækna á Íslandi og fagfólk í heilbrigðiskerfinu sem er að vinna ómetanlega vinnu. Ég tel að með því að nota óhefðbundnar lækningar með hefðbundnum séum við að gefa okkur stórkostleg tækifæri. Við getum gert margt ein og sér en saman getum við gert stórkostlega hluti.           Ég veit að það eru ekki allir sem trúa á Guð, þó að ég geri það. En öll trúum við á eitthvað, hið góða í lífinu, okkur sjálfum og köllum okkar alheimslegu verönd misjöfnum nöfnum. Ég trúi því að allt sé þetta sama uppsprettan og því getum við öll unnið saman, hvað svo sem við viljum kalla hina miklu uppsprettu ljóssins. Ég læt fylgja með bréf sem ég skrifaði fyrir mig, til að hjálpa mér að muna. Ef til vill getur hugmyndin nýtst ykkur á einhvern hátt.                                                     Ég trúi...              Ég trúi og finn að ég er guðleg vera. Ég trúi á Guð og trúi því að í mér búi guðsneisti sem lýsir upp líf mitt. Ég trúi á hið guðlega í hverri manneskju og ég trúi á hið guðlega í hverju lífi. Ég trúi að birting Guðs sé fullkomin í allri sköpun.           Ég trúi og finn að ég er falleg manneskja, full af kærleik og hlýju sem ég er reiðubúin að deila með sjálfri mér, samferðafólki mínu og sérhverri sköpun Guðs. Ég trúi og finn að í lífi mínu er allt af hinu góða og ég veit að sérhver reynsla mín færir mig feti framar í þroskagöngu minni sem ég hef sjálf valið.           Ég trúi og finn að ég get allt. Ég er frjáls, hamingjusöm vera sem ber ábyrgð á lífi mínu. Ég trúi og finn að ég á frjálst val í lífi mínu. Ég trúi og finn að ég hef valið LJÓSIÐ fyrir mig.           Ég trúi og finn að ég er elskuð. Ég trúi og finn að ég á skilið virðingu. Ég trúi og finn að ég mun eftirleiðis hafa fullt vald í mínu lífi. Allt sem ég vel er á mína ábyrgð og ég hef leyfi til að breyta vali mínu hvenær sem ég vil. Ég trúi og finn að ég treysti sjálfri mér. Ég trúi og finn að ég er traustsins verð.           Ég trúi og finn að ég er laus við alla reiði. Ég trúi og finn að engar áhyggjur eru lengur í mínu lífi. Ég trúi og finn að þar sem ég sinni störfum mínum af heiðarleik, mun aldrei framar verða sektarkennd í mínu lífi. Ég er þakklát fyrir hver ég er og allt sem ég hef. Ég mun ávalt hafa nóg. Í mínu lífi eru alsnægtir á öllum sviðum og ég á þær skilið.           Ég trúi og finn að ég færi hvern dag enn meira ljós og kærleik inn í líf mitt og annara. Ég trúi og finn að ég get lagt mitt af mörkum til þess að breyta jörðinni í þá paradís sem hún á að vera. Ég trúi og finn að ég er fullkomlega frjáls. Ég trúi og finn að ég get talað við Guð og beðið um það sem ég óska. Ég trúi og finn að ég er bænheyrð og ég þakka Guði fyrir allt sem hann færir mér.                                      Ég trúi og finn fyrir Guði.                                      Ég trúi og finn að ég treysti Guði fullkomlega.                                      Ég trúi og finn að ég er ljós Guðs.                                      Ég trúi og finn að ég er í fullkomnu jafnvægi.                                      Ég trúi og finn að ég er hamingjusöm.                                      Ég trúi og finn að ég er fullkomin vera, sköpuð af Guði.                                      Ég trúi og finn að allt er fullkomlega rétt.              Þetta er mín einlægt trú.                                                              Megi líf ykkar alltaf verða fullt af ljósi og friði.                                                                          i                                    </description>
Ný sýn með mínum augum
      <description>1.grein.              Öll leitum við sannleikans og leiða til að gera líf okkar betra. Það eru mýmargar ástæður fyrir því að við hefjum þessa leit, kannski vantar okkur lífsfyllingu, lífsgæðakapphlaupið tekur frá okkur orku en gefur of lítið í staðinn. Við getum verið að berjast við sjúkdóma andlega eða líkamlega, hjá okkur sjálfum eða einhverjum okkur nákomnum. Slæm reynsla fortíðar verður þess líka oft valdandi að við reynum að finna leiðir sem hjálpa okkur til betra lífs, þær eru margar til og misjafnt hvað hentar hverjum og einum. Annað er líka sem oft rekur fólk af stað, fróðleiksfýsn. Við viljum vita og kanna ýmislegt sem er ekki hægt að snerta eða horfa á með berum augum. Öll vitum við innst inni að hamingjan er ekki hið ytra, hún býr innra með okkur og þangað þurfum við að sækja hana sjálf.           Það er margt sem getur hjálpað okkur í þessari leit. Við getum fundið okkur andlega leiðbeinendur sem eru þjálfaðir til þess að aðstoða. Við getum lært ýmsar aðferðir til að heila okkur sjálf, bæði líkamlega og andlega. Það eru margar leiðir til þess og hver og einn verður að finna þá leið sem honum best hentar til þess að hjálpa sjálfum sér.           Þegar ég fór af stað að leita fyllingar í mitt andlega líf, þá sótti ég mörg námskeið og kynntist góðu fólki sem leiddi mig í ýmsan sannleik og opnaði mér dyr sem síðan hafa reynst mér afar vel. Alstaðar voru góðir punktar til að vinna með og nota. Það var þó ekki fyrr en ég kynntist reiki hjá Guðrúnu Óladóttur reikimeistara sem líf mitt tók heljarstökk. Ég var allt í einu komin með dásamlega hluti í hendurnar, mér og öðrum til góðs. Ég upplifði það sem mér fannst kraftaverk í mínu lífi og eftir það varð ekki aftur snúið. Þörfin til að læra meira og öðlast tækifæri til að uppfræða aðra um þessa frábæru leið var algjör og mér öðlaðist það lán að fá að verða reikimeistari sjálf. Þetta er einföld leið til að heila sjálfa sig og aðra, en um leið ferð til sjálfsræktar þar sem maður lærir svo marga nytsamlega hluti til að nota í lífi sínu. Reiki geta allir lært og hefur Guðrún kennt miklum fjölda fólks hér og erlendis þessa einföldu en áhrifaríku aðferð, auk þess sem hún hefur sjálf þjálfað reikimeistara sem eru að kenna hér og þannig veltur boltinn áfram.           Ég hef þó ekki hugsað mér að láta þessa grein fjalla um reiki en geri það síðar. Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta hér er að sýna frammá að með þessu móti getum við öll hjálpað okkur sjálfum til betra lífs. Við þurfum einungis að finna þá leið sem hentar okkur og nýta okkur hana til góðs. Með því kemst líf okkar í jafnvægi og við fáum notið þess að vera hér á okkar dásamlegu jörð. Ég er ekki að segja að ein leið sé betri en önnur, öll erum við að vinna að því sama, að finna hamingjuna, ná innra jafnvægi og friði, lifa sátt, láta okkur líða betur á okkar fallegu jörð og láta draumana okkar rætast. Við erum sjálf þess megnug að breyta okkar lífi. Það sem við þurfum að gera er að velja það og halda svo af stað. Öll vitum við líka að með því að vinna saman hefst margfaldur árangur miðað við að vinna einn. Öll viljum við örugglega frið á jörð og hamingju fyrir alla.           Í sjálfsrækt eru kenndar ýmsar aðferðir til að láta sér líða betur og breyta lífi sínu. Aðferðir sem hver sem er getur gert og notað í sínu lífi, þó að viðkomandi hafi ekki lært eitthvað ákveðið. Við vitum öll að það sem skiptir máli er að vera jákvæður, venja sig á að breyta því sem neikvætt er í jákvæða reynslu. Við getum að minnsta kosti verið viss um að hvað sem fyrir okkur kemur í lífinu, þá er það lærdómur sem færir okkur þroska. Hins vegar getur þessi lærdómur valdið okkur miklum sársauka og reiði, en það þurfum við síðan að vinna burt. Mikil reiði og vanlíðan getur valdið líkamlegum sjúkdómum, því staðreyndin er sú að allt hangir þetta á sömu spýtunni. Það er ástæða fyrir öllu og við verðum oft að leita djúpt til að finna rót þess sem er að.           Ein aðferð til þess að losa sig við sársauka er að skrifa. Fyrir mér er best að skrifa Guði, honum treysti ég best og veit að hann sér um mig, honum get ég sagt allt og hann skilur vonbrygði mín og þrár. Það er einungis ein leið, sumir skrifa líðan sína á blað, brenna það síðan og sjá fyrir sér að eldurinn eyði því sem veldur þessari vanlíðan. Það er líka ótrúlega gott að skrifa niður markmið sín. Sjá hvað það er sem maður vill fá út úr lífinu og hvaða markmiðum maður vill ná. Spurningin er hvaða árangri vil ég ná á næstu vikum, næstu þremur mánuðum eða á næsta ári. Það er gott að skipta þessu niður, skrifa það nákvæmlega og treysta því að okkur auðnist að ná þeim markmiðum sem við setjum okkur. Við verðum auðvitað að setja okkur raunhæf markmið. Ég get til dæmis ekki sett það í markmið næstu fjögurra vikna að ég vilji léttast um 12 kg.  Hins vegar get ég sett það á markmið næsta árs, vitandi það að með mínum viljastyrk get ég létt líkama minn á þessum tíma. Ég verð líka að vera tilbúin til að breyta um hugarfar og hlú betur að líkama mínum, með breyttu mataræði og meiri hreyfingu. Þetta er eitt af því sem svo margir eru að  glíma við en sprynga oft á vegna þess að þeir ætlast til að ná árangri of fljótt. Það er best að vera raunsær, leyfa hlutunum að gerast og vera glaður með hverja jákvæða breytingu sem við finnum. Þannig verður maður glaðari og um leið eykst árangurinn til muna. Ég þekki engan sem nær hámarks árangri með neikvæðri hugsun og vonleysi, það er gleði og vilji sem kemur okkur þangað sem við viljum fara.                                         Að breyta ótta í kærleik.              Það er tvennt sem einkennir sálarlíf okkar, kærleikur og ótti.  Einhverjum finnst það ef til vill einföldun á stórri tilfinningaflóru okkar mannanna, en ef grant er skoðað er það ekki svo flókið. Við getum alltaf skipt tilfinningum okkar í tvo flokka, þ.e.a.s. hvað það er sem orsakar tilfinningar okkar. Annars vegar er það kærleikur og hins vegar ótti.           Ef við skoðum þetta örlítið nánar þá getum við séð hversu mjög þessi skipting auðveldar okkur lífið. Galdurinn er sá að við viljum öll eyða óttanum burt úr lífi okkar og fylla það af kærleik. Við getum hugsað okkur að við séum vatnsflaska eða stór og falleg leirkanna. Þessi kanna er alltaf full, en er hún full af kærleika eða er hún full af ótta? Svarið er yfirleitt á þá leið að upp að vissu marki er kannan full af kærleik en restin er ótti. Hlutfallið er auðvitað mismikið en það sem við getum gert til að bæta okkar eigin líðan er að losa burt óttan og fylla upp með kærleik. Þannig getum við smátt og smátt losað okkur við óttan og lifað kærleiksfullu lífi.           Það er einfalt að segja, en erfiðara að framkvæma. Við getum byrjað á því að gera okkur grein fyrir í hvaða flokk tilfinningar okkar skiptast, hvað það er sem stjórnar þeim. Við getum gert tvo dálka og fundið nokkur atriði til að átta okkur á. Tökum dæmi. Afbrýðisemi fer í óttadálkinn og svo er einnig um reiði, eigingirni, áhyggjur og margt margt fleira. Sumum finnst kannski að áhyggjur séu byggðar á kærleika, en er svo? Ef við höfum áhyggjur af einhverjum eða okkur sjálfum er það þá ekki vegna þess að við treystum ekki viðkomandi til að sjá um sig og leysa sín mál. Traust er nefnilega byggt á kærleika, trú, gleði, og allar aðrar tilfinningar sem fylla okkur friði og ljósi.           Það er afar góð lexía fyrir okkur öll að skoða reglulega tilfinningar okkar og gera okkur grein fyrir hve mikið af þeim er byggt á kærleika og hvað mikið af ótta. Með því að slaka á og losa um óttann getum við unnið á bæði andlegri og líkamlegri vellíðan.            Það eru nokkur atriði sem er mjög algengt að við óttumst, að eitthvað komi fyrir ástvini okkar, að við séum svikin, að við veikjumst af hættulegum eða ólæknandi sjúkdómi og svo er það óttinn við dauðann. Auðvitað er mýmargt annað sem við óttumst, en þessi framantöldu atriði eru mjög algeng og vekja oft mjög mikinn ótta og myndir í huganum sem eru neikvæðar og einungis til að auka á óttann sem er fyrir. Það er mjög mikilvægt að breyta þeim myndum sem eru neikvæðar og koma inn í hugann. Tökum dæmi: Ef einhver nákominn ættingi er á ferð í óveðri og seinkar, hvað hugsum við þá? Hugsum við að viðkomandi hafi tafist vegna veðursins, sé að koma og við hlökkum til að hitta hann glaðan og kátan. Eða förum við að hugsa um að viðkomandi hafi ekið útaf, sé alblóðugur og hjálparlaus og jafnvel dáinn? Hvað er algengara?           Það er mjög algengt að óttinn nái yfirhöndinni í huga okkar og skynsemin víki til hliðar. Við sjáum fyrir okkur slæma hluti, sjáum í huga okkar ástvini bregðast eða okkur mistakast. Þetta gerist hjá flestum og er eitt af því sem við breytum til að láta okkur líða betur. Munum að sjá alltaf fyrir okkur að allt fari á besta veg. Ef við erum alltaf bjartsýn þá líður okkur vel og ef eitthvað kemur uppá þá erum við betur búin undir að takast á við vandann. Það bætir ekkert að vera búinn að búa til einhverjar hryllingsmyndir í huga sér eða kvíða fyrir. Við reynum alltaf að gera okkar besta og það skulum við einnig trúa að aðrir geri. Við skulum trúa á okkur sjálf og treysta okkur sjálfum, við skulum einnig trúa á og treysta ástvinum okkar, það gerir heiminn betri.           Tökum nú fallegu krukkuna okkar sem er við sjálf og fyllum hana smátt og smátt af kærleik. Í hvert sinn sem óttinn knýr að dyrum reynum þá að finna kærleiksríkar hugsanir til að ýta honum burt svo að krukkan okkar sé alltaf full af kærleik og við séum heilbrigð á sál og líkama. Það er lykillinn að hamingjunni.                                            Fyrirgefning.              Það sem skiptir sköpum í okkar andlegu líðan er fyrirgefning. Oft er ekki auðvelt að fyrirgefa, en munum eitt. Við getum fyrirgefið án þess að samþykkja það sem gert var á hluta okkar. Við fyrirgefum manneskjunni, okkur sjálfum eða hverjum þeim sem við berum  beiskan hug til, þótt við séum ósátt við gjörðir okkar eða annara sem við erum að fyrirgefa.           Það að fyrirgefa ekki er eins og eitur í sálina okkar. Það skaðar ekki þann sem við erum reið eða sár við heldur okkur sjálf. Hví skildum við skaða okkur sjálf vegna einhvers sem einhver gerði okkur?           Reynum að vera hlutlaus. Ef við berum frið í hjarta og engan kala til nokkurs þá líður okkur vel. Séum við full af reiði og hatri, þá líður okkur illa. Staðreyndin er sú að við verðum að losna við hatur og reiði úr huga okkar og ná sátt. Það getur verið mjög erfitt og er fullkomlega skiljanlegt, en hvernig sem okkur líður þá er gott að losna við þó ekki sé nema brot af biturð og reiði. Við vitum að þessar tilfinningar byggja á ótta og við viljum ekki vera full af ótta. Við viljum vera full að kærleik til þess að okkur líði vel og að við getum þannig látið öðrum líða vel líka.           Kona sem ég þekki vel, lenti í því á unga aldri að vera nauðgað af manni úr fjölskyldunni. Lengi var hún reið og sár. Þessi maður, sem hún hafði treyst, hafði rænt hana sakleysi bernskunnar, meydómnum og saurgað líkama hennar. Hann hafði gert gat á sálina sem erfitt var að lækna. Hún hataði hann, sjálfa sig og líkama sinn. Hún setti upp kæruleysisgrímu, lést vera svöl og var á næstu árum með karlmönnum án þess að fá nokkuð út úr því. Hún var að hegna sjálfri sér, líkama sínum og smána sjálfa sig. Vanlíðanin var mikil en engin vissi hvers vegna hegðun hennar og líf breyttist svo mikið. Þegar hún fór svo, þá orðin fullorðin kona, að vinna í sínum málum kom í ljós hve stórt hlutverk þessi atburður hafði á allt hennar líf. Hún lærði að fyrirgefa, fyrirgefa sjálfri sér fyrir að hegna sér fyrir það sem hún átti enga sök á. Hún fyrirgaf gerandanum og óskaði þess eins að aðrar stúlkur lentu ekki í því sama. Hún samþykkti að sjálfsögðu ekki verknaðinn en hún fann og vissi að með fyrirgefningunni var hún að heila sjálfa sig og gefa sér ný tækifæri. Hún hugsaði líka sem svo að þessi slæma reynsla gæfi henni tækifæri til að skilja aðra sem höfðu lent í svipuðu og til þess að geta leiðbeint þeim um að fyrirgefa, að hjálpa þeim burt frá þessari slæmu reynslu.           Sem betur fer þá höfum við ekki öll svona slæmar minningar en öll höfum við eitthvað, fólk hefur brugðist okkur, sært okkur eða meitt á einhvern hátt og einnig atburði sem við höfum sjálf gert og eigum erfitt með að sætta okkur við. Oft er erfiðast að fyrirgefa sjálfum sér. Staðreyndin er hins vegar sú að fyrirgefning er dásamleg leið til betra lífs og betri líðan.                                         Bænin.              Þegar ég var búin að kenna reiki í nokkur ár setti ég saman sjálfsræktarnámskeið sem ég kallaði "Ný sýn, með mínum augum", eins og þessa grein hér. Þar tók ég fyrir nokkur atriði, sem fólk gat á auðveldan hátt nýtt sér til hjálpar. Þessi námskeið gengu vel og því hef ég hugsað mér að nota hluta af því efni í þessum greinum. Það sem ég set innan gæsalappa er tekið beint uppúr þessu efni. Mig langar að fjalla nokkrum orðum um bænina, vegna þess að ég veit hve mikilvæg hún er og hversu mjög hún getur hjálpað okkur.           "Munið að biðja hvern dag af öllu hjarta þess sem þið óskið. Munið að biðja nákvæmlega um það sem hjarta ykkar þráir. Biðjið fyrir sjálfum ykkur og öllum öðrum sem þið viljið hjálpa. Munið einnig að biðja alltaf fyrir jörðinni okkar.           Verið óhrædd að biðja. Það er nóg til fyrir alla. Það er ekkert að því að vera heilbrigður, hamingjusamur og hafa alsnæktir bæði í efni og anda. Munið bara að vera viss um að það sem þið biðjið um sé ykkar einlægur vilji. Bænir ykkar og óskir eru heyrðar og þær munu rætast. Munið einnig að hugsanir ykkar eru hróp sem heyrast og hafa áhrif. Gætið því vel að hugsunum ykkar. Látið ekki neikvæðar og þungar hugsanir frá ykkur fara. Trúið því að þið eigið allt gott skilið og það mun koma til ykkar.           Hugsanir eru jafn raunverulegar og orð eða athafnir. Hugsanir eru orka alveg eins og orð og athafnir eru orka, Nýtið þessa óþrjótandi krfatmiklu orku hugsana ykkar og bæna til þess að gera líf ykkar að þeirri paradís sem þið óskið. Þið skapið ykkar eigin heim, fyrst og fremst með hugsunum ykkar, sem síðan birtast í orðum og athöfnum.           Hættið að vera bitur vegna þess sem var. Lítið á liðna erfiðleika sem kennsluefni, skref í þroskabraut ykkar. Þið sjálf hafið fullan rétt á að biðja um hið besta fyrir ykkur sjálf.           Þið eigið skilið hamingju.           Þið eigið skilið heilbrigði.           Þið eigið skilið gleði.           Þið eigið skilið alsnægtir.           Þið eigið skilið gott líf.           Þið eigið skilið farsæld á alla vegu.           Biðjið um það og allt annað gott sem þið óskið og þráið. Ekki velta ykkur uppúr einhverju sem var. Horfið fram á veginn og sjáið hve óendanlega möguleika þið eigið til þess að öðlast hamingju og gleði.           Ekkert er of smátt til þess að biðja um það. Ekkert er of stórt heldur. Hvert það smáatriði sem við viljum breyta eigum við að biðja um. Einnig hið stóra sem við þráum. Þannig sköpum við okkar eigin heim, eigin raunveruleika með hjálp Guðs.           Ef þið eigið við heilsubrest að stríða, þá biðjið um heilbrigði. Ef þið viljið eignast maka og börn, þá biðjið um það. Ef þið eruð skuldug og viljið  peninga, þá biðjið um þá. Hvað sem er sem er sett fram á jákvæðan máta ykkur og öðrum til góðs. Ekki vera hrædd við að biðja um það sem gerir líf ykkar betra. Hvort sem um er að ræða samskipti milli manna, vinnu, heimili, hvað sem er...           Treystið því að um ykkur sé séð. Þið verðið að biðja um það sem þið þráið og sjá fyrir ykkur að það gerist. Þakkið síðan fyrir og treystið og lífið mun koma ykkur á óvart. Fólk mun verða á vegi ykkar með ný tækifæri, ný sambönd. Munið að vera opin fyrir bænheyrslunni. Lítið atvik getur orðið til þess að velta af stað bolta sem rúllar hratt og verður ógnarstór. En þið verðið líka að vera tilbúin að taka við gjöfunum sem til ykkar koma. Hugsið ætíð vel hvers þið biðjið og hverju það muni breyta í lífi ykkar.           Það að vera á þessari jörð er stórkostlegt tækifæri til þess að þroska sig og láta gott af sér leiða. Nýtum það og njótum þess. Jákvæð hugsun skiptir öllu máli. Öll viljum við að hugsanir okkar séu jákvæðari og kærleiksríkari hverja stund. Byrjum á að biðja um það og reynum að vera meðvituð um það hvernig við hugsum og hvaða boð við erum að senda með hugsunum okkar.           Allir hlutir hafa einhverja jákvæða hlið. Reynum ávalt að finna hina jákvæðu hlið hvers máls og dreifa þeirri jákvæðni í kringum okkur. Hvert kærleikskorn sem frá okkur fer kemur ávalt til baka sem stór kærleikskúla.           Nú á þessari stund ætlum við að breyta því sem er neikvætt í jákvætt:           Við skulum loka augunum og slaka á. Í huganum er ringulreið af hugsunum sem stökkva til og frá. Reynum að kyrra hugann og sjá fyrir okkur lítið ljós. Ímyndið ykkur lítið ljós í hugskoti ykkar. Ef til vill er þetta ljós dálítið dauft. Það gerir ekkert til.           Þetta ljós er hugsanir ykkar, það sem þið sendið frá ykkur. Nú skulið þið þurrka burt alla skugga af ljósinu og leyfa því að lýsa bjart. Þegar skuggarnir fara eru allar neikvæðar og niðurdragandi hugsanir að víkja og í staðinn koma jákvæðar kærleiksríkar hugsanir. Stækkið ljósið eins og þið getið. Þið eigið nægan kærleik í hjarta ykkar, fyrir alla og líka fyrir ykkur sjálf. Líf ykkar mun eftirleiðis verða jákvætt og fullt af gleði og hamingju.           Þegar þið hafið horft um stund á ljósið, þá skuluð þið opna augun og þið finnið að einhverjar áhyggjur og vanlíðan sem voru í huganum hafa nú vikið fyrir jákvæðni og bjartara viðhorfi.           Þessa litlu æfingu getið þið gert eins oft og þið viljið. Gerið hana alltaf ef eitthvert hugarangur sækir að og smám saman stækkar ljósið uns engir skuggar eru til.           Þú ert í eðli þínu jákvæður, kærleiksríkur og hamingjusamur einstaklingur. Leyfðu þér að vera það. Leyfðu ljósinu þínu að skína".           Það getur verið mjög áhrifaríkt að gera hugaræfingar og hugleiða. Með bæninni tölum við við Guð og í hugleiðslunni hlustum við á hann. Ef til vill segið þið að það sé erfitt að kyrra hugann, en það er einungis æfing og með ástundun og þolinmæði kemur það og gefur ykkur ótrúlega mikið. Það að eiga kyrrðarstund er ómetanlegt og mikil slökun og heilun í okkar hraða þjóðfélagi. Við þurfum virkilega á því að halda til þess að týna ekki sjálfum okkur. Við búum við spennu og hraða sem allir hafa þörf á að komast frá öðru hvoru. Því er gott að gefa sér vissa stund hvern dag til að biðja, hugleiða og eiga fyrir sjálfan sig. Þannig getum við líka oft skýrt hugsanir okkar og séð hvað það er sem raunverulega skiptir okkur máli og hvað það er sem við raunverulega þráum.           Ef til vill segja einhverjir að ekkert af þessu sé nýtt og að þið vitið þetta allt saman. Ég veit að það er rétt, en það er nú einu sinni þannig að við þurfum á því að halda að vera minnt á. Það er svo auðvelt að detta úr jafnvægi inn í hraðann og gleyma þar með að gefa sér tíma, fyrir sjálfan sig og fyrir fólkið sitt. Það eru ómetanlegar stundir að vera t.d. úti í náttúrunni, finna jörðina undir fótum sér og teyga að sér hreint loftið sem við erum svo lánssöm að eiga. Á þannig stundum líður okkur vel og við eigum auðvelt með að senda frá okkur jákvæðar og kærleiksríkar hugsanir. Stundum höfum við ekki tíma fyrir stundir sem þessar, en þá er betra en ekki að loka augunum og ímynda sér náttúruna og hreina loftið. Hugsunin ein lætur okkur líða betur.                                                     Kærleikur.              Þó ég hafi talað um hér áður að breyta ótta í kærleik langar mig að tala meira um kærleikann. Hann er það sem við viljum hafa í okkar lífi og einnig það sem við öll nærumst á.           "Sterkasta aflið í lífi okkar er kærleikur. Hann getur sýnt sig í mörgum myndum. T.d. í ást okkar á maka og börnum, vináttu okkar, hlýjum hugsunum, bænum okkar. Allt hið jákæða og góða er sprottið frá kærleika okkar.           Það eru aðeins tveir þættir sem stjórna tilfinningum okkar. Til þeirra getum við alltaf rakið líðan okkar hverju sinni. Annars vegar er það kærleikur og hins vegar ótti. Það sem við þurfum að gera í okkar lífi til þess að verða hamingjusamri og glaðari einstaklingar er að útrýma óttanum í okkar lífi og fylla það af kærleika.           Það er hægara sagt en gert að losa sig við allan ótta og er ekki gert á einum degi. En það er fullkomlega þess virði. Við höfum ekkert að óttast fyrir okkur sjálf, við eigum val í okkar lífi. Við skulum velja það að vera hamingjusöm.           Við þurfum að horfast í augu við eigin ótta, skoða hann í stað þess að flýja frá honum. Örugg skulum við gera þetta saman og smám saman losa okkur við hann. Tilfinningar eins og hræðsla, kvíði, reiði, afbrýðisemi, vonbrygði og fleira sem plagar okkar eru byggðar á ótta. Það er ekkert óeðlilegt við að hafa þessar tilfinningar, en við þurfum að losa okkur við þær, til þess að þær geti ekki skemmt fyrir okkur ánægjulegt líf og heilsu.           Reynum að trúa því að við eigum allt gott skilið, að um okkur sé séð og að við séum örugg í hverju sem á gengur. Óttinn gerir okkur veikari og dregur til okkar sársaukafulla hluti. En kærleikurinn gerir okkur sterk og færir okkur hamingju og sátt.           Munum að dæma ekki aðra. Öll erum við á leið okkar til þroska, en við erum mislangt komin. Það sem mér finnst hræðilegt, getur öðrum þótt hið eina sanna. Við verðum að reyna að setja okkur í spor annara. Gera eins vel og við getum hverju sinni, það er nóg.           Þroski okkar breytist dag frá degi, sífellt öðlumst við nýja reynslu og víðari sýn á lífið. En þó svo að eitthvað sé í fortíðinni sem við í dag myndum ekki gera, þá meigum við ekki dæma okkur sjálf. Á þeim tíma vorum við á öðrum stað, þá þótti okkur það sem við gerðum rétt. Við verðum að auðsýna sjálfum okkur ást og þolinmæði. Sýnum öllum eins mikinn kærleik og við getum og kærleiksflæðið mun aukast jafnt og þétt.           Það getur verið erfitt að fyrirgefa eitthvað sem á hluta okkar var gert. Ef til vill eigum við slæmar minningar úr bernsku, einhver hefur brugðist okkur og við sjáum ekki hvernig við getum fyrirgefið. En það er erfitt að bera sárar tilfinningar í brjósti sér. Með kærleikanum skulum við reyna að vinna á slæmum minningum. Prófa að senda jákvæðar kærleiksríkar hugsanir til þeirra sem gerðu á hluta okkar og biðja fyrir þeim.           Það uppsker hver eins og hann sáir. Við skulum vinna úr sársaukanum og smám saman losa okkur við reiði, sársauka og allar þessar tilfinningar sem byggðar eru á ótta. Í staðinn koma tilfinningar eins og ást, fyrirgefning og friður í hjarta okkar. Smátt og smátt vinnum við á gömlum hnútum, uns þeir hverfa á braut. Leyfum kærleikanum að flæða um okkur og frá okkur. Það er kærleikur sem við viljum senda frá okkur og kærleikur sem við viljum fá til baka.                                         Kærleikskúlan.              Þú skalt setjast, loka augunum og slaka á líkamanum. Með hverri mínútu verður þú afslappaðri og friður fyllir hjarta þitt. Þér líður vel. Allt er svo rólegt, ekkert fær truflað þessa stund sem þú ætlar að eiga með sjálfum þér. Allar truflandi hugsanir hverfa á braut. Líkaminn er svo afslappaður að þú finnur varla fyrir honum lengur. Í kringum þig er umvefjandi kærleiksrík orka, svo mjúk og friðsæl.           Þú ert algjörlega afslappaður og nú ætlar þú að búa til kærleikskúlu í kringum þig, þar sem þú getur setið afslappaður og unnið kærleiksvinnuna þína í friði, án nokkurra truflana eða utanaðkomandi áhrifa.           Þú situr rólegur og utan um þig er risastór bleik kúla, full af kærleik og friði. Hjarta þitt er fullt af ró og þakklæti. Þakklæti fyrir líf þitt, allar góðar stundir og allt hið fallega sem þú átt og þér er kært.           Kærleikskúlan þín er skotheld vörn gegn öllu neikvæðu og hverju því sem þú vilt ekki hleypa til þín. Inn í kúluna getur aðeins flætt kærleikur og út úr kúlunni getur aðeins flætt kærleikur. Þér líður óumræðilega vel.           Þú slakar á, andar rólega og finnur hve tær orkan er í kringum þig. Í huga þínum og hjarta er ekki lengur neitt sem gerir þig dapran.           Þegar þú hefur um stund notið kærleikans fyrir sjálfan þig skaltu leyfa öðrum að njóta hans með þér. Sendu kærleik úr kúlunni þinni til allra á jörðinni sem þú vilt, allra sem eiga bágt og sendu einnig kærleik til jarðarinnar sjálfrar. Njóttu þess að sjá ást þína flæða. Það ert þú sem gefur þennan kærleik og það er nóg til.           Nú hefur þú sent kærleikann þinn og nú skaltu nota tækifærið og finna hve auðvelt þú átt með að fyrirgefa.           Hugsaðu um einhvern sem gert hefur á hluta þinn. Bjóddu þá manneskju velkomna inn í kærleikskúluna þína. Mundu að aðeins kærleikur kemst til þín svo að ekkert er að óttast. Sendu viðkomandi manneskju hvítt ljós í huga þér og segðu henni að þú fyrirgefir af öllu hjarta. Finndu hvað léttir á hjartanu þínu og þér líður betur. Á þessari stundu hefur þér tekist að breyta heilmiklum ótta í kærleika.           Nú skaltu kveðja manneskjuna og þú ert nú einn í kærleikskúlunni þinni. Sittu um stund og njóttu þess að finna hve mikinn frið og ró þú átt í hjarta þínu. Þegar þú kemur til baka úr kúlunni þinni, þá mun brjóst þitt vera fullt af ást og þú munt finna að hin innri ró helst í sál þinni.           Nú skaltu opna augun rólega. Þetta var yndisleg stund sem þú getur upplifað hvenær sem þú vilt. Hvenær sem er getur þú notað kærleikskúluna þína til að gefa þér kærleika, til að senda kærleika, til að hjálpa þér að fyrirgefa og til þess að öðlast innri ró. Mundu að innra með þér er fjársjóður sem þú átt og getur nýtt á allan þann hátt sem þú óskar. Njóttu þess að vera til. Leyfðu þér að flæða frá þér kærleika hverja stund. Leyfðu þér að vera glöð, örugg og hamingjusöm manneskja".           Það er hægt að gera svo ótalmargt til þess að láta sér líða betur og losa sig við kvíða og hræðsluhugsanir. Það er meira að segja hægt að gera þessa vinnu að leik og finna skemmtilegar aðferðir til að minna sig á. Eitt af því sem ég hef notað eru "Kærleiksorð". Það er svipað og þegar fólk dregur jákvæðar staðhæfingar, kannski eina á hverjum degi til að hugsa um. Allt skemmtilegt og jákvætt í þessa átt hjálpar okkur.                                                  "Kærleiksorð.              Fáðu þér harðan pappír og búðu til 12 spjöld. Á þau skrifar þú kærleiksrík orð. Á hverjum degi dregur þú eitt orð fyrir þig til að hugsa um og birta. Hugsaðu:           Hvað vil ég gefa mér í dag?           Hvað vil ég gefa öðrum í dag?           Hvað vil ég fá frá öðrum í dag?           Dragðu síðan eitt kort og hugsaðu um orðið. Gefðu sjálfum þér gjafir með því að láta þér líða betur, gefðu einnig öðrum sömu gjafir og taktu eftir þeim sem aðrir gefa þér. Þetta er yndislegur leikur sem getur veitt þér ómælda ánægju og jákvæðari hugsunarhátt.                                         Kærleiksorð:                                         Ást                                      Von                                      Trú                                      Heiðarleiki                                      Kærleikur                                      Falleg orð                                      Bros                                      Þakklæti                                      Virðing                                      Gleði                                      Hlýja                                      Umhyggja                                                              Gangi þér vel".              Það er ótrúlegt hvað sannfæring fólks og þrá getur áorkað. Mörg dæmi eru um að fólk hafi með jákvæðri hugsun og einlægum ásetningi tekist að breyta hlutum sem ekki er hægt að kalla annað en kraftaverk. Fólk hefur heilað líkama sinn af alvarlegum sjúkdómum, breytt lífi sínu á svo undraverðan hátt að sumir vilja meina að það sé varla hægt. Lykillinn að öllu þessu er vilji. Breytt hugarfar og einlægur ásetningur getur gert kraftaverk. Margir hafa látið stórkostlega drauma rætast og undirmeðvitundin okkar veit að það er hægt, við þurfum einungis að trúa og hleypa gleðinni inn í lífið.           Til að láta draumana okkar rætast er fyrsta skref að vita hvað við viljum. Við þurfum að vera nákæm og skoða alla þætti lífs okkar. Hvað er það sem við erum ánægð með og hverju viljum við breyta? Sumu er kannski ekki hægt að breyta nema það hafi áhrif á svo ótalmargt annað og þá er spurningin, viljum við þær breytingar sem fylgja? Þegar við svo vitum fyrir víst hvernig framtíðarsýn við viljum sjá getum við farið að skoða hvað það er sem við þurfum til að láta draumana rætast.           Okkur er öllum holt að eiga drauma og markmið til að stefna að. Hvort sem um er að ræða að fara í nám, fá draumastarfið, eignast fjölskyldu, flytja í annað hús, eignast fjármuni, hvað sem er. Við verðum auðvitað að losa okkur við ótta og finna í hjarta okkar að við eigum allt það besta skilið og við eigum skilið að láta draumana okkar rætast. Það er afar gott að sjá í hugskoti sínu mynd af því sem við þráum og halda fast við hana. Undirmeðvitundin okkar vinnur hörðum höndum í því að gera að veruleika þrár okkar og óskir, innst inni vitum við alltaf hvað er best.           Ef við tökum aftur dæmi um útlit, þá skuluð þið alltaf hugsa ykkur að þið lítið út eins og þið viljið líta út. Segjið aldrei við sjálf ykkur neikvæðar setningar. Ekki horfa í spegilinn og hugsa, ég er of feitur eða ég er með ljótt nef. Segið við líkamann ykkar að hann sé fallegur og þá er mun auðveldara að breyta honum eins og þið sjálf viljið. Segið: Ég er fallegur, ég er stæltur, eða hvað það er sem þið viljið vera. Ef þið getið ekki sagt jákvæða hluti um það sem þið viljið breyta finnið þá það sem þið eruð ánægð með. Ef þú hefur nef sem þú ert óánægður með en hár sem þú ert ánægður með, hugsaðu þá um hve hárið á þér er fallegt. Ekki draga fram neikvæða hluti um sjálfan þig, heldur jákvæða, þá munu einnig aðrir gera það.           Staðreyndin er sú að við fáum allt til baka sem við sendum frá okkur. Ef við sendum frá okkur jákvæðar hugsanir, þá fáum við jákvæðar hugsanir til baka. Þess vegna verðum við að hafa trú á sjálfum okkur, elska sjálf okkur og virða sjálf okkur. Ef við virðum okkur ekki sjálf, hvers vegna skyldu þá aðrir gera það?           Það er mjög gott að huga að því hvað það er í umhverfinu sem við eigum bágt með að þola. Ef við fáum viðbrögð hjá fólki sem okkur finnast neikvæð, t.d. að fólk sýni okkur ekki nægilega virðingu eða misbjóði okkur á einhvern hátt, skoðum á hvað við gerum sjálf. Erum við að virða sjálf okkur og gefa okkur það sem við eigum skilið? Við verðum að gera það sjálf, ef við viljum að aðrir geri það.           Þannig er einnig um drauma okkar. Ef við segjum alltaf að við séum blönk og eigum ekki fyrir reikningum, þá erum við að segja sjálfum okkur og öðrum að þannig sé staðan. Hvernig getum við þá búist við að eitthvað breytist? Hugsun eins og: Ég á alltaf nóg af peningum, dregur þá til þín á meðan hin hugsunin heldur þeim frá. Segðu aldrei neikvæða hluti um sjálfa þig eða við sjálfa þig og sjáðu þú munt upplifa lífið á annan hátt. Við viljum öll að okkur líði vel. Þannig á það að vera og við verðum sjálf að finna hamingjuna innra með okkur og birta hana síðan í okkar lífi. Þetta getum við og við skulum gera það.           Þolinmæði er eitt af því sem við þurfum að hafa. Sumir hlutir gerast eins og að smella fingri og sumir taka lengri tíma. Sumar breytingar taka jafnvel ár og þannig viljum við hafa það. Lífið er eins og við veljum það og við verðum að vera tilbúin fyrir breytingar hverju sinni. Stundum þurfum við einfaldlega tíma til að taka breytingum, þó að við viljum þær og höfum beðið um þær.           Stundum tökum við heldur ekki eftir bænheyrslunni. Við biðjum um peninga og einblínum á happdrættisvinning. Okkur er boðin betri og skemmtilegri vinna með hærri launum, en við tökum kannski ekki eftir tækifærinu, af því að við erum að bíða eftir stóra vinningnum. Bænheyrsla getur verið á svo marga vegu og gott fyrir okkur að venja okkur á að taka eftir í okkar lífi. Tækifærin eru til fyrir okkur og við getum látið draumana okkar rætast. Með betri líðan og jákvæðara hugarfari er hægt að færa fjöll.                                      Gangi þér vel að láta draumana þína rætast.                                                                                                                                                </description>
Júlí og grasið syngur
      <description>Skrýtið að hugsa til þess að nú sé kominn júlí. Mér líður frekar eins og það sé 3.júní og ég á frekar erfitt með að setja mig í gírinn með að sumarið sé nánast hálfnað. En hvað um það, grasið syngur af gleði yfir þessum regndropum sem komu, allar hryssur eru komnar undir fola og kindur á leið á heiði, svo ég verð líklega að trúa að það sé kominn júlí. Vonandi verður ekki langt í slátt og ef það er hlýtt og gott þá kemur þetta nú örugglega. Vinkona mín sem er flottur spámiðill segir að haustið verði frábært og við fáum  hitabylgju í september. Ég ætla að trúa þessu alveg eins og nýju neti og held mig við það.Má til með að setja inn eina mynd af básnum okkar á Vindheimamelum en Töfrakonur voru með bás þar og Þuríður stóð vaktina með stakri prýði. Hún kom norður ásamt vinkonu sinni Hrafnhildi sem einnig var að selja. Fyrstu dagana var mjög kalt á þeim stöllum en síðustu dagarnir hafa bætt það upp.Við Jóhanna heimsóttum aðeins básinn okkar á fimmtudaginn en þá fórum við allar á Skagaströnd að vera við opnun Spákonuhofsins. Það var mjög ánægjulegt og hofið á allan hátt glæsilegt og mikill sómi fyrir Skagaströnd og þá sem að því standa.Við erum að vinna að nýrri 123 síðu hér fyrir Töfrakonur. Það er tofrakonur.123.is en síðan er auðvitað enn mjög hrá þó að sé hægt að skoða hana. Við vonumst til að innan fárra daga verði hægt að panta þar og skoða vöruna okkar, panta og koma með ábendingar.Þessi mynd hér að ofan er líka mjög ggóð auglýsing fyrir vöruna okkar sem framleiðsla er hafin á. Það eru silfurkrossar á íslenskri hraunplötu, handunnið og enginn gripur eins.En búskapurinn kallar, girðingar og fjárflutningar á döfinni á mínum bæ, ætla að vera bjartsýn allavega á meðan grasið syngur ;)</description>
Eitthvað að frétta......
      <description>Jæja, við komumst sem sé heilu og höldnu heim á reiðskjótum okkar í dag. Er búin að komast að því að Ljósbrá, hryssan mín, er mikill eðalgripur og trasust mjög. Það besta við hana er þó hve Guðbjörg er óhrædd við hana. Hún er líka búin að fá hana lánaða til að fara á reiðnámeksið á Höllustöðum hjá þeim Helga og Barböru sem byrjar mánudaginn eftir Landsmót. Sem sé verður 4-9. júlí. Mér líst ljómandi vel á það og Lilja ætlar að sjálfsögðu líka á Byl sínum, en þau eru óaðskyljanleg og flott par.Guðmar Magni á Eyvindarstöðum fylgdi okkur heim í dag á flotta hestinum sínum, femingargjöfinni. Þeir eru ekki síður flottir saman, félagarnir.Má til með að setja inn eina gamla og góða til að minna vini og vandamenn á hvað ég var ung, grönn og hæfileikarík á árum áður, en þessi er tekin á Leifsstöðum á góðri stund :)Og svona var nú umhorfs á Sláturhúsinu í gamla daga, en nóg um það. Hætt í bili og passa :)</description>
Löngumýrarfréttir
      <description>Landsmót og gleði í Skagafirðinum. Svo sannarlega kominn þessi hrossatími sem er svo skemmtilegur. Við erum búin að sækja hryssurnar í Tungunes og skemmta okkur yfir að skoða litrík og falleg folöld. Verð endilega að manna mig í að taka myndir og setja inn af þeim. Við eigum til dæmis moldblesótt, jarpblesótt og brúnblesótt, aldeilis gaman það. Fór meira að segja á hestbak í gær og skemmti mér vel. Fékk þessa fínu hryssu í afmælisgjöf, Ljósbrá heitir hún og er frá Magna í Árgerði. Hentar mér alveg ljómandi vel, þar sem engin hætta er á að hún hlaupi langt eða geri ófyrirséða hluti ;) Er hrædd um að slíkt væri ekki alveg að mínu skapi.Reyndar var þessi hestatúr í gær frekar sögulegur þar sem mér tókst að skrapa mölina fram í Blöndudal að vestan dáfallega. Ég var nýbúin að skipta um hest við Guðbjörgu Pálínu, lánaði henni hryssuna en fór sjálf á hestinn hennar Baldur-Blesa. Okkur Baldri hefur alltaf samið sérlega vel enda er hann alveg steindauður þannig séð, en alger líkamsræktarhestur líka;) Málið var að hann datt svona ferlega á hné ,með þeim afleiðingum að ég skoppaði af og bar auðvitað fyrir mig hendurnar. Það logblæddi úr hnjánum á honum og ég er þannig að í morgun fékk ég að sofa út og þarf að nota hanska ef ég fer í fínni samkvæmi. En mikið skelfing er ég fegin að vera búin að skipta við stelpuna og að það var ég en ekki hún sem datt. Svona er nú vel séð um mann alltaf. Við riðum svo sem leið lá fram dal og yfir Blöndu og í Eyvindarstaði þar sem biðu okkar dýrindis hamborgarar og kaffi og meðlæti. Tek það fram að Fanney vissi ekkert að við værum að koma, svona eru bara alvöru húsmæður í sveit. Við munum svo leggja land undir hófa í kvöld og koma okkur heim, hvað sem sú ævintýraferð ber í skauti sínu. Allavega er alltaf gaman að vera með hrossunum og sennilega endum við gömlu þannig að vera að stússast í einhvejrum bykkjum og bordercolliehundum. Ekki amarlegt það.Annars er lífið bara ljúft, mætti vera hlýrra og vantar vætu. Kýrnar eru búnar að vera úti tíu daga og við erum nýbúin að setja út kvígur. Þó hefur þessi kúpeningur nú rúllur alveg að vild og reyndar hrossin líka enda sprettur nú ekki of hratt þessa dagana. Ætla samt að halda áfram að trúa því að við fáum gott sumar og mikla uppskeru, við verðum þá bara lengur að frameftir. Allavega eru Bólhlíðingarnir farnir að sleppa í Rugludalshólfið þannig að kannski mun sá dagur upp renna að við flytjum á heiði.Af Töfrakonum er það að frétta að Þuríður skvísa er á Landsmóti með alla okkar vörur og einnig snyrtivörur og hestasmyrslið góða. Hún og vinkona hennar ,Hrafnhildur, hófu stöðu sína í gær og munu vera alla dagana. Það er von okkar að vel seljist enda þurfum við að selja vel núna vegna þess að við erum að láta gera svo margt fyrir okkur. Barnabókin mín "Ævintýri Tvíburanna" er í prentun og kemur nú einhvern daginn. Allt skart og steinar eru nú komnar með möntrur á þýsku og fljótlega mun bæklingurinn okkar um Hveravallagull koma á þýsku líka, en við létum fyrst prenta hann á íslensku og ensku. Það eru komnar frá okkur á markaðinn nýjar alíslenskar rúnir( 16 stk. rúnirnar) sem voru notaðar hér á landi í gamla daga. Leiðbeiningarnar eru á ensku og með þeim fylgir ýtarleg bók. Þetta eru glæsilegar handunnar rúnir í leðurpoka. Svo eru komin í hús verndargripirnir okkar sem eru Höllu og Eyvindarmen. Þetta eru silfurkrossar á íslenskum hraunmola í leðuról. Alveg frábær vara, er raunverulega að finna á eign skinni að þetta eru verndargripir. Þetta er framleiðsla og hönnun frá Hrafnhildi okkar Halldórsdóttur sem einnig gerir laufin í Hveravallagullslínunni. Eins og þið sjáið erum við alveg á útopnu sem aldrei fyrr. Við erum líka að dæla út hestapeysum og fleira prjónlesi en þar eru margar hugmyndir í gangi líka. Málið er að dagurinn er alltaf of stuttur og svo margt skemmtilegt að gera en lífið er ljúft. Ég ætla líka að trúa að sumarið verði okkur Töfrakonum gott. Við þurfum á því að halda.Annað sem ég hlakka mikið til er næsti fimmtudagur. Þá munu vinkonurnar okkar , spákonurnar á Skagaströnd, opna Spákonuhofið sitt. Get ég varla beðið eftir því. Þær eru svo flottar og að gera svo góða hluti. Við Töfrakonur munum líka vera að spá með þeim í sumar í Spákonuhofinu, sem er bara alveg æðislegt. Magt gott framundan :)Þetta er nú það sem mig langaði til að deila í bili. Við Töfrakonur erum líka á fullu í að gera okkar eigin heimasíðu en þangað til heimsækið okkur á Facebook og skoðið þessa síðu og það sem ég hef sett inn um Töfrakonur hér. Alltaf hægt að panta og semja við okkur um heilun, spá og námskeið svo að eitthvað sé nefnt. Sendum vöru hvert sem er :)En annars bless í bili og knús í hús :)</description>
Langar í sól og hlýju
      <description>Mér finnst ennþá kalt og lítið að gerast í gróðri. Kindurnar mínar eru að verða brjálaðar að komast ekki af túni með lömbin sín, en ég held að það sé nú ekki mikið að hafa í magann utan þess. Ég trúi ekki að þetta séu ellimerki, mig langar í sól og hlýju, geta skoppað út á stuttbuxum og bol að taka til. Drekka kælidrykki í stað heitra itl að ylja sér og fá góðar fréttir.............. ég er sem sé að biðja um alvöru sumar og ég vona að það sé að koma.Svona er lífið, fjórar lopapeysur undir gallanum eða svo ;)Jæja, Halldór er allavega brosandi sem er gott.En Töfrakonur voru að fá nýjar vörur. Orkusteinahálsmen eftir Hrafnhildi hönnuðinn okkar. Hálsmenin eru ný lína og eyrnalokkar í stíl fyrir þá sem hafa áhuga. Vonandi koma nýjar myndir inn á facebooksíðuna okkar í kvöld svo að endilega skoðið og pantið :)Heimasætan :)</description>
Ó þetta er yndælt líf ............
      <description>Aldeilis frábært líf. Sit með próförk að "Ævintýri tvíburanna" og nýt þess að láta mig dreyma um þegar ég verð búin að fá hana í hendur. Þessi saga er barnasaga sem gerist í okkar góða Húnavatnshreppi og á Blönduósi en þar er framið rán í Samkaup, frekar skondið en upplýsist auðvitað. Ég vona sannarlega að þið kaupið bókina öll og gefið hana út og suður til barna sem ykkur þykir vænt um. Vonandi á hún líka heima í skólunum. Nú er verið að vinna bókina í Ísafoldarprentsmiðju og vonandi fæ ég hana í hendur fyrir mánaðarmót. Hún verður í sama broti og "Pöllusögur" sem ég vona að flestir þekki. Mér finnst alveg yndislegt að skrifa fyrir börn og vonandi fær tvíburabókin mín það góðar viðtökur að ég get haldið áfram, enda er ég byrjuð að skrifa annað handrit um ævintýri þessara skemmtilegu krakka. Svona til upplýsingar fyrir ykkur þá gefa "Töfrakonur" bókina úr. Jóhanna Helga vinkona mín á veg og vanda að prófarkalestir, yfirferð og áliti enda les þessi elska fyrir mig allan texta. Svo er það listakonan Erna Hrönn Ásgeirsdóttir sem teiknar í bókina og kápuna. Hún er frábær á þessu sviði og er systir Valdemars bónda á Auðkúlu. Svona er heimurinn skemmtilegur og víða leynast listamenn og konur, við þurfum bara að vera dugleg að segja hvort öðru frá og hjálpast að.Mig langar að segja ykkur aðeins meira frá áformum Töfrakvenna. Barnabókin mín er að koma út og við erum byrjaðar að safna í aðra kilju, smásagnasafn. Strax er komin fyrsta smásagan í hús og vonandi fara þær að koma í löngum bunum til okkar. Markmiðið er að gefa út 2-3 kiljur fyrir næstu jól, sem þá verða ásamt barnabókinni á jólasölu. Viljum við gjarnan fá handrit til yfirlestrar ef fólk treystir okkur fyrir efninu sínu og langar til að fá gefið út. Við erum alvöru útgafufélag og munum halda ótrauðar áfram í útgáfu eins og við lögðum upp með. Við eigum enn dálítið af kiljum síðasta árs og viljum gjarnan selja þær sem fyrst. Ljóðabókin "Konfektmolar" er þó að verða búin og hver að verða síðastur að eignast hana. Það er þó sannarlega skemmtilegt því að markmiðið er að koma hinu ritaða máli til sem flestra.Skartgripir eru að koma á sumarsölu og verið er að endurhanna "Töfrarúnirnar" sem er mjög spennandi. Við erum að sjálfsögðu að selja steina, kort, smyrsl, barnasett og lopapeysur og við sjálfar og fleiri með okkur erum að vinna á fullu fyrir sumarmarkaðina. Við stefnum á að vera með sölu og uppákomu í Dalsmynni þegar "Ævintýri tvíburanna" verða komin út. Við munum líka vera að spá með yndælu spákonunum á Skagaströnd. Sú samvinna er alveg ómetanleg og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir að drífa Töfrakonur með sér að spá. Stefnan er einnig sett á Landsmót hestamanna og fleira skemmtilegt í sumar. Við vonumst eftir að finna fleiri sölustaði og vinna lönd eins og áður. Við höfum mögnuð áform og höldum ótrauðar áfram. Við fengum hundrað þúsund krónur frá Menningarráði til að styðja við útgáfu barnabókarinnar og erum við líka mjög þakklátar fyrir það. Við þökkum öllum sem vilja okkur vel og styðja okkur - við þörfnumst þess -  en við ætlum líka að standa okkur í stykkinu. Langaði bara að minna á Töfrakonur, við erum á kústum sem aldrei fyrr  Af öðrum vettfangi er allt gott hjá mér. Þrjár ær eftir að bera svo hægt er að segja að sauðburðarlok séu að skella á. Það var kalt í vor, en ekki kvarta ég, hvorki aska eða kafasnjór svo að við sluppum nú vel. Það er samt gott að júní er kominn, skólinn búinn og hægt að slaka sér inn í sumarið sem ég vænti að verði okkur öllum gott. Við fengum mun fleiri hrútlömb en gimbrar sem er ávísun á gott heyskaparsumar var sagt, það eru auðvitað góðar fréttir.Hér er bjartasta vonin. Vala Glókollsdóttir, fullkomin inn í fjölskylduna okkar eins og pabbinn. Við erum alveg viss um að hún verði snillingur er fram líða stundir. Hún er að verða fjögurra mánaða og áhuginn er svo sannarlega fyrir hendi og tilburðirnir eins og á að vera.Læt þetta duga að sinni, en þarf samt margt að segja. Njótið þess að vera til og elskið hvort annað. Ég vona að sumarið verði okkur öllum gott. Knús í hús </description>
Snjórinn, vorið og vonin
      <description>Jæja, við erum sem sé komin undan snjónum, eins og þar stendur. Samt ekki yfir neinu að kvarta. Þó að hér væri fjandanum kaldara þá þurfum við ekki að kvarta, fyrir austan allt á kafi í snjó og fyrir sunnan aska og gos. Nei, svo sannarlega erum við heppin og hugur minn er hjá fólki og búfénaði fyrir sunnan, það hlýtur að vera hræðilegt ástand.Við vorum að taka myndir af nokkrum strákum sem mér datt í hug að setja inn.Þetta eru Keikur og Kyndill, frekar ánægðir með að vera lausir við snjóinn og hitastigið farið að síga örugglega upp. Keikur er fjögurra vetra og alveg hægt að gera tilboð ef fólk hefur áhuga á honum eða einhverjum öðrum eðalhestum á okkar búi  Keikur er undan Otra frá Geitaskarði og Galvösk frá Syðri-Löngumýri. Kyndill er undan Brúnblesa frá Nesi og Hendingu frá Syðri-Löngumýri. Svo verð ég nú líka að setja eina mynd af Glám sem er mjög sérstakur, tveggja vetra graðhestur  Annars er allt gott af okkur að frétta utan það að  maðurinn minn elskulegur kól á eyranu eina nóttina. Það skal tekið fram að þetta umrædda eyra er sérlega viðkvæmt og hefur kalið illilega á árum áður sértsaklega eitt sinn sem hann elti sauði á hálsinum hér lengi dags með derhúfu á höfðinu. Það hefur samt ekki öllum verið kalt þessa daga. Halldór sonur minn ásamt þrem frændum sínum tjölduðu og grilluðu á blettinum fyrir framan húsið hérna eina köldustu nóttina. Þótti mér nóg um. Þetta er auðvitað bara bilun  En nóg að sinni frá Löngumýrarliðinu </description>
Knús í hús
      <description>Ég lofaði að setja inn myndir af bolunum og hér er ein en eins og sjá má er merkingin mjög skemmtileg, endilega látið vita sem fyrst ef þið viljið kaupa.Þetta er sem sagt hinn eini sanni Töfrakonubolur "Knús í hús".Vil endilega minna ykkur á að við "Töfrakonur" eigum margt til gjafa í fórum okkar fleira en boli, skartgripi (Hveravallagull), rúnir, óska-,drauma- og heilunarsteina, lopapeysur, barnasett (peysu og húfu) húfur, íslenskar rúnir, kiljur, kort og smyrsl, einnig töfrasprey og sitthvað fleira t.d. dálítið af gömlu bókunum mínum. Allt þetta er á mjög góðu verði núna, enda þurfum við að rýma fyrir sumarvörunum sem koma vonandi áður en vorið gengur almennilega í garð.Í sumar verðum við komnar með  nýtt Hveravallaskart, hálsmen sem er tileinkað Höllu og Eyvindi og eru möntrur(ljóð) sem fylgja þeim. Þetta men er gert úr íslensku hrauni og með silfurkrossi. Þetta eru sem sé verndargripir þessara hálendishjóna sem eiga sér svo dásamlega sögu.  Þetta er skemmtileg viðbót við laufin okkar og orkusteinahálsmenin. Við höfum gefið út bækling um Hveravallagullið okkar og í vinnslu er barnabók eftir mig með teikningum eftir hina frábæru listakonu Ernu Hrönn Ásgeirsdóttur. Get ekki beðið eftir að fá hana í hendur :)Fallegu fyrirsæturnar mínar.Það er margt svakalega spennandi framundan og við vonum bara að við fáum góða sölu svo að allt gangi sem best :)</description>
Vorið komið
      <description>Nokkuð ljóst að vorið er komið. Allavega er allt annað hitastig hér þó enn sé örlítið hvítt út að líta, þá er óneitanlega komin allt önnur tilfinning í kroppinn bæði á mönnum og skepnum.Þessi skondna mynd var nú tekin í miklu frosti í vetur þar sem Halldór sonur minn var búinn að fá nóg af kuldanum og grillkjötsleysinu svo að hann tók til sinna ráða að grilla inni í hlöðu.Hérna sést svo árangurinn en á þessum tímapunkti var hann búinn að fæða okkur hin :)Af okkur er bara gott, ýmislegt hefur auðvitað gerst á þessum vetri og kem ég með meira um það síðar. Af Töfrakonum er það að segja að nú erum við með til sölu bráðfallega svarta boli sem á stendur "Knús í hús" með gylltum stöfum og rautt hjarta fyrir ofan, set fljótt inn myndir. Eigum nokkrar stærðir svo endilega pantið hjá okkur, upplagið er takmarkað. Ástæðan fyrir þessari bolahugmynd er sú að við Jóhanna fengum töluverða athygli á þorrablóti sveitarinnar,þar sem tveir ágætir góðbændur léku okkur og vorum við þá fljúgandi á kústum og á facebook með "knús í hús". Þótti okkur upplagt að grípa hugmyndina enda jákvætt að bera hjarta framan á sér með þessari áletrun.Af búskapnum er það að segja að allt gengur sinn vanagang. Við fórum eina helgi til Reykjavíkur, fórum á fimmtudagskvöldi og komum á sunnudagskvöldi. Vorum sem sé þrjár nætur á Radison Saga, sem var frábært eins og alltaf. Guðbjörg, Halldór og Dagrún voru með okkur, en fyrir þá sem ekki vita er Dagrún kærastan hans Halldórs. Var mjög gott að komast aðeins frá og allra besta var þó að við vorum með alveg frábæran afleysingarmann, Höskuld á Mosfelli. Allt var eins og þegar við fórum utan við það að umgengnin hafði batnað til muna og greinilega sópað oftar :) Aldeilis frábært. Hef hugsað mér að semja við þennan dugnaðarpilt oftar.Má til með að setja inn eina mynd af Guðbjörgu minni sem þarna er að bíða eftir skólabílnum. En þessa dagana bíður hún þó aðallega eftir Völu sem er Glókollsdóttir frá Dalsmynni og kemur væntanlega fljótlega til að alast upp hjá pabba sínum. Við erum eins og venjulega öll í hundunum. Við eigum enn tvo hvolpa úr haustgotinu hennar Skessu, en þeir eru nú sex mánaða og alveg tilbúnir til að temja þá. Þeir hlýða nöfnum og ýmsu fleiru en ekkert farið að segja þeim til. Þessa pilta vantar pláss á góðum smalaheimilum, svo hafið samband ef þið viljið :)</description>
Hugleiðing milli hátíða
      <description>Jæja, þá er heldur betur búið að taka á því í jólasteikinni, konfektinu og kræsingunum. Alveg frábærir dagar að baki, yndislegar stundir með fjölkyldunni sem eru svo nauðsynlegir á þessari jólatíð. Við vorum bara fjögur á aðfangadagskvöld, en það er í fyrsta skipti. Það var dálítið skrýtið að vera bara fjögur, engir afar eða amma, en fullkomið kvöld engu að síður. Við kveiktum bara á kertum fyrir þessar elskur sem nú halda hátið á öðrum stað og trúum að þau viti hvað við elskum þau mikið. Sem betur fer fengum við Brúarhlíðarfólk í krjónakökusmakk fyrr um daginn. Ég tel mig vera algjöran snilling að gera þessa Leifsstaðaættarköku og baða mig í hrósi um hver jóL;)Þarna er Guðbörg með Brúarhlíðarbörnunum. Alveg yndisleg öll. Halldór og Halli voru of uppteknir til að nást á mynd ;)Á aðfangadagskvöld gerði ég þá bestu purusteik sem ég hef nokkru sinni smakkað. Hún var eftir uppskrift úr Hagkaupsbók sem Munda hringdi yfir fyrir mig. Dásmleg frænka hún Munda mín, þvílíkur eldhússnillingur.Á jóladag var jólaboð hjá mér og komu þá Eyvindarstaðafólk, Auðkúlufólk, Húnaversfólk og Daníel með börnin sín. Það var yndislegt að fá þau. Í gær var fjölskyldan á Kúlu með sitt jólaboð þar sem við mættum ásamt Eyvindarstöðum og Stóru Giljá. Það var ekki síður frábært kvöld að öllu leyti og ekki skrýtið þó að ég brunaði í ræktina í dag. Þá hafði ég ekki haft tíma til að fara í viku og fékk heldur betur að finna fyrir því.Á aðfangadagskvöld.Mig langar líka að deila því með ykkur að bækurnar okkar gengu bara vel, allavega það sem við enn vitum. Við erum fullar bjartsýni fyrir komandi tíma og erum búnar að gera plan fyrir næsta ár. Við munum safna aftur í smásagnasafn og við höfum líka áhuga á að safna alskyns frásögnum, sögum, ljóðum, hverju sem ykkur dettur í hug. Endilega sendið okkur og það er aldrei að vita nema að efnið ykkar rati í næstu bók. Annars erum við tilbúnar með fleiri hjartabækur og barnabók sem mun koma út fyrir næstu jól. Við erum líka með það á planinu okkar að koma töfraspilunum frá okkur á næsta ári ásamt fleiri skemmtilegum hugmyndum. Nú er bara að vera duglegur og afla fjár, þannig gengur það:) Við erum auðvitað mjög ánægðar með allt sem hefur selst og það verður gaman að líta yfir farinn veg 14. febrúar, en þá verðum við ársgamlar.Verð að sýna ykkur mynd af búralega piltinum mínum kominn í gallann sem við gáfum honum.Mig langar líka að segja ykkur að ég ætla að halda nokkur reikinámskeið núna fljótlega eftir áramótin. Ég er að þjálfa meistara sem verða með mér á námskeiðunum og ég hlakka mikið til. Ég mun einnig vera með sjálfstyrkingarnámskeið ef næg þáttaka fæst. Það er svo margt spennandi framundan, vinna við búið, Töfrakonur, reikið og svo auðvitað að skrifa niður allar sögurnar sem eru að brjótast um í kollinum á mér. Ég veit að það er kreppa og margir eiga bágt, en við verðum að snúa vörn í sókn og vera bjartsýn, ef við geum okkar besta þá er það nóg. Við getum hjálpast að, gefið hvort öðru það sem við sjálf erum ekki að nota og svo frv. Ég veit að við getum svo margt og við verðum líka að halda í sýnina um frið á jörð og betri heim.Það var ekki hugmyndin að predika þó að ég efist ekki um að ég hefði orðið góður prestur:) Mér finnst bara svo notalegt að deila með ykkur því sem ég er að gera, kannski hefur einhver gaman af því. Ég hef gaman af að fylgjast með vinum mínum og ég vona svo ynnilega að þið hafið það öll sem best. Við þurfum að njóta þess sem er. Dagurinn í dag kemur ekki aftur en það kemur nýr og við skulum njóta hans líka.Knús til ykkar allra :)</description>
Gleðileg jól
      <description>Yndislega fólkið mitt!! Veit bara ekki hvað ég hef verið að gera að muna ekki eftir að blogga. Líklega bara hangið á facebook eða eitthvað....allavega ætla ég að óska ykkur gleðilegrar hátíðar núna. Það er sannarlega að koma hátíð, allir glaðir á mínum bæ, eftirvænting og gleði. Jólin á morgun, Brúarhlíðarfólk kemur og tekur út grjónakökuna, við skreppun í kirkjugarðinn með kerti og svo kvöldið maður....matur, pakkar, gleði og hamingja. Á jóladaginn verður svo jólaboð hjá okkur og vonandi hátíð í bæ. Annar í hátíð er svo hjá Gunnu frænku mannsins míns á Auðkúlu svo að við munum sennilega hafa nóg í okkur næstu daga. Milli jóla og nýárs eru svo tvö jólaböll ef næg orka er í það, heimsóknir og vonandi hreyfing og svo auðvitað 11 ára afmæli prinsessunnar á bænum 1.janúar eftir vonandi ljúft og gott gamlárskvöld. Hlakka svo sannarlega til næstu daga.Þetta er Guðbjörg og herra Sámur sem er yngsti meðlimur hundafjölskyldunnar á bænum. Halldór sonur minn á hann og hann og bróðir hans eru einu eftir af bordercolliehvolpunum sem fæddust hér 5.okt. sl. Þrír fengu nýjar fjölskyldur og það gladdi okkur mikið. Af okkar hundalífi er annars allt gott, Glókollur kominn í fullt fjör og farið að nota hann til undaneldis eftir aðgerðina. Hún tóks með ágætum og ekkert útlit fyrir annað en að Glókollur geti unnið vinnuna sína næstu tuttugu árin eða svo ;)Eins og sjá má eru þessi skötuhjú alveg tilbúin í jólin.Annars hefur aðventan á mínum bæ verið yndisleg. Að vísu fengu börnin í Húnavallaskóla aðeins hálf litlujól vegna veðurs en þetta slapp nú allt til. Skrýtið að fá allt í einu svona skítaveður. Maður er bara ekki vanur þessu og veit ekki alveg hvað skal gera.Af Töfrakonum er það að frétta að jólasalan gekk vel. Við erum að læra alveg á fullu og fyrir næstu jól munum við verða enn betur undir búnar að koma vörunum frá okkur og þá vonandi alveg búnar að koma okkur upp söluneti um allt land. Við lásum upp á nokkrum stöðum, tókum þátt í Markaði í Húnaveri, þar sem við líka létum spádómsgáfu okkar í ljós og spáðum fyrri þeim sem vildu.Við Jóhanna fórum að Löngumýri í Skagafirði þar sem var menningarkvöld á vegum kirkjukóra Glaumbæjarsókna. Kórinn er að safna fyrir utanlandsferð til Kanada næsta sumar. Vonandi gengur það vel, þetta er þrusugóður kór. Við kynntum vörur okkar þarna og ég las upp og einnig Gerður Kristný sem nú er að gefa út alveg sérstaklega athyglisverða ljóðabók sem heitir "Blóðhófnir". Þetta var mjög skemmtilegt kvöld.Það var líka skemmtilegt kvöld á Heimilisiðnaðarsafninu þegar við mættum þar. Frábært að sjá gróskuna í útgáfu á bókum hér í Húnaþingi og hjá fólki tengdu hingað. Berglind las úr bókinni okkar "Nokkur lauf að norðan" sem var alveg frábært. Reyndar var þetta bara að öllu leyti frábært kvöld.Smásasgnasafnið okkar hefur vakið athygli og er það vel. Lilja hennar Þuríðar las upp söguna sína á útvarpi Sögu og gerði það með stakri prýði. Gaman hvað smásögurnar sem við fengum voru margvíslegar og eftir fólk á öllum aldri. Við erum nú þegar farnar að safna í næstu smásagnabók og hlökkum til næstu jóla.Má til með að setja inn eina mynd af fallega stráknum mínum, honum Halldóri. Hann er hér í glænýrri lopapeysu sem Fanney á Eyvindarstöðum gaf honum. Frábær hannyrðakona hún Fanney, enda strákurinn ekkert smá ánægður eins og sjá má.En nú er komin nótt og aðfangadagur á morgun.Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól, gæfuríkra og fallegra framtíð. Takk fyrir allar góðar stundir. Verum bjartsýn. Kossar og knús Birgitta</description>
Loksins..........
      <description>Loksins.....loksins....mundi ég eftir því hvað mér finnst gaman að blogga.Kæru vinir, það er búið að vera geðveikt mikið að gera en bara skemmtilegir hlutir. Það er líka margt skemmtilegt á döfinni sem ég verð að segja ykkur frá.Í fyrsta lagi þá er ég búin að breyta í stofunni hjá mér, opna á milli og rútta til. Eitthvað sem mig hefur dreymt um að gera svoooooo lengi. Ég komst fyrir viku í einhvern gríðarlegan jólafíling og fór að mála eldhús, gang og bað( á eftir að mála slatta enda jólin ekki alveg komin). Ég var auðvitað alveg komin í keng eftir að bera allt á milli herbergja og þrífa en þetta fór nú allt vel, enda erum við gellurnar þrjár enn þrisvar í viku hjá Sunnu sem er alveg frábært. Það að fara í ræktina er alveg búið að kveikja á fíkninni í mér og svo erum við líka í svo góðum félagskap. Turid og Ingibjörg eru auðvitað miklu duglegri og ef þær fá þyngri æfingar þá er það sko vegna þess að ég er enn að þjálfa upp lungun mín en EKKI vegna þess að ég sé eldri. Svona er hún Sunna mín yndisleg og ég kann að meta það:)Til upplýsingar get ég sagt ykkur það að þessi gaur er ekki með okkur í ræktinni.Ýmislegt fleira gott hefur nú gerst. Guðbjörg kláraði prófin sín og hlakkar mikið til að fá einkunnirnar á þriðjudaginn. Hún lagði mikið á sig til að læra undir þau sem gerði það að verkum að móðir hennar var búin að læra uppá tíu í samfélagsfræði og kristnifræði. Eftir þessa törn er ég alfarið á móti því að hætt verði að kenna kristnifræði. Hef reyndar alltaf veirð meðmælt því að hún sé kennd. Þetta eru góðar og gildar sögur með miklum boðskap.Halldór keypti sér traktorsgröfu þegar hann varð 18 (og réð sér sjálfur) sem er hið besta mál. Held að hann hafi erft eitthvað af peningaviti Halldórs afa síns, enda hefur aldrei skort peninga á Löngumýri maður, eins og allir vita sem vel þekkja til ;) Þessa stundina er pjakkurinn að rýja kindur með Bjarka hjá frænku sinni á Syðri-Grund. Hann er búinn að taka lömb og veturgamalt hér heima og ég verð að segja að hann gerir þetta vel strákurinn. Ekkert slor heldur að fá að vera með manninum sem hneppti annað sætið í Íslandsmeistarakeppninni.Tíkin Skessa gaut fimm hvolpum 5. okt. sem eru hver öðrum sætari. Ein tík var í hópnum sem er nú pöntuð og svo fjórir héppar. Þeir eru bara yndislegir og frekar duglegir að borða og láta frá sér. Glókollur afinn er frekar þreyttur á þessum stubbum, en hann er óðum að ná sér en fær þó ekki að leika lausum hala fyrr en um jól. Við erum að verða alveg samvaxin, hundur og kerling, þegar ég er utandyra. Bolli, hins vegar, sem er pabbinn(eftir því sem börnin mín segja) verður alveg vita vitlaus þegar þessi fimm afsprengi hans koma hlaupandi og reyna að sjúga hann. Lái honum hver sem vill. Þetta eru krútt !!!!!!!!!!!!!!!En nú koma sko Töfrakonufréttir:Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur undanfarið að það er alveg met. Bókin okkar nýjasta: " Nokkur lauf að norðan" er komin í prentun og við bíðum nú spenntar eftir að fá hana í hendur. Þetta eru smásögur eftir  fimmtán höfunda sem allir hafa sterkar rætur hér norðanlands. Sögurnar eru margar og ólíkar og við erum afar þakklátar þeim sem sendu okkur sögur. Frábært fólk sem með þessu greiðir okkar götu.Við fengum líka styrk frá Menningarráði sem skipti okkur algjörlega öllu máli. Við fengum 200 þús. til styrktar útgáfu bókarinnar og 250 þús í "Hveravallagull". Þetta bjargar okkur alveg og við erum afar þakklátar. Eins og Gunna vinkona mín á Kúlu segir alltaf: "Peningarnir vaxa ekki á trjánum ".Við erum að vinna bækling þar sem við kynnum Hveravallagullið okkar og erum um leið að minna á þessa dásamlegu náttúruperlu sem Hveravellir eru, segja söguna og kynna staðinn. Við hlökkum líka mikið til að fá bæklinginn. En af skartinu er það að frétta að nú erum við búnar að fá mikið af laufum, orkumenum og öðru skrati sem er tilvalið í jólagjafir.  Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga. Við munum líka verða á Blönduósi fyrir jólin og kynna vörurnar okkar, þegar bókin verður komin út.Ég fór líka á málþing um Hveravelli sem haldið var í Húnaveri, það var gagnlegt get ég sagt ykkur.Við fengum líka frábært tækifæri á kvennafrídaginn, þá fór ég og kynnti Töfrakonur fyrir kvenfélagskonum á hátíð sem kvenfélagasambandið stóð fyrir. Það var mjög ánægjulegt. Sætt af þeim að bjóða mér að kynna vörurnar.Satt að segja erum við farnar að gera meira af því að fara svona með kynningar og líka að spá og til gaman get ég sagt ykkur að Þuríður er farin að spá tvo daga í viku og er líka með miðlunarmyndirnar sínar sem hafa verið mjög vinsælir.Þreytt..........þetta var fyrir breytingu..............Fleira skemmtilegt. Það er alltaf eitthvað skemmtilegt í sambandi við skólann. Nú á að fara að láta gera peysur og boli með lógói skólans á og svo erum við að fara í leikhús næsta föstudag. Þá leggjum við land undir fót til Sauðárkróks og sjáum "Jón Odd og Jón Bjarna" Áður en við gerum það ætlum við að fara á pizzahlaðborð á Ólafshúsi svo að þetta verður hin besta ferð. Nærum bæði efni og anda, enda á að gera slíkt í annalok þegar búið er að púla í prófunum.En í lokin ætla ég setja inn eina mynd af okkur Ægi í Stekkjardal(það er brúni strákurinn) með mæðrum okkar elskulegum, en þetta var nú víst áður en við fórum að púla í skólanum hjá Jósafat. En sæt kríli samt ;)Ætla að setja inn myndir á eftir og þá fáið þið að sjá gullfallegu kápumyndina sem er á bókinni okkar " Nokkur lauf að norðan".Eigum öll góða helgi.</description>
Sólarblogg í september
      <description>Dásamleg blíða alla daga. Að vísu eru kartöflugrösin fallin og ég þarf að koma því í verk að taka upp kartöflurnar, allavega eru þær góðar á bragðið þær sem ég er búin að setja í pottinn af sumaruppskerunni. Þessar kartöflur eru nefnilega mjög merkilegar. Ég er ekki mikið fyrir að vera á fjórum fótum með rassinn upp í loftið og hef aldrei elskað að setja niður kartöflur. Það var samt öðruvísi þettað vorið. Á kosningadaginn var ég svo yfirspennt að bíða og vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera eftir að ég var sjálf búin að fara á kjörstað, svo að ég spólaði karlinum með mér út og setti niður "allar" kartöflurnar. Síðan er ég búin að segja að þetta hljóta að verða mjög merkilegar kartöflur. Annars gengur allt vel. Karlinn er kominn úr seinni göngunum, sæmilega vel á sig kominn með sundfytjar og súrefnispípu frá gangnafélögunum sem greinilega mundu vel eftir því þegar hann var að synda sælla minninga í fyrra. Bolli litli hundur fékk að fara með enda Glókollur ofurhundur að bíða eftir aðgerð á hné. Krossbandsaðgerð skilst mér. Það fór nú samt svo að þegar kom að sundmálunum og einhverjar skjátur voru farnar að reyna að drekkja sér að Ingi hringdi heim og bað mig að koma og bítta á hundum. Glókollur fór sem sé að vinna síðasta daginn. Þeir félagar eru á heiðinni núna ásamt Birki á Höllustöðum, en það er flugleit í dag. Kristmundur flýgur nú yfir með fjallskilastjórann, gangnaráðskonuna og Diddu í Litladal. Af því að ég var að monta mig af því að ég væri að byrja hjá Sunnu Gests í átaki um daginn, þá get ég sagt að það gengur bara ljómandi vel. Ég hef kannski ekki mikið breyst en þetta er mjög gott að fara og gera æfingar og láta hana segja sér til. Hefði aldrei haft mig í að gera neitt nema undir leiðsögn, svo mikið veit ég og Sunna er alveg frábær. Get mælt með henni hvar sem er og hvenær sem er, ég bind miklar vonir við þennan vetur ;)Af Töfrakonum er það að frétta að nú er kominn nýr steinn í Töfrasteinalínuna. Það er "Heilunarsteinninn", sem er ametyst (fjólublár) í fánapoka með sinni sérstöku heilunarmöntru. Erum við að vonum ánægðar með hann. Það er líka verið að vinna á fullu í hönnun og þróun "Hveravallagullslína", við bíðum spenntar eftir smásögum og svo erum við búnar að fá til sölu frábæra vöru frá Aðalheiði Halldórsdóttur. Það eru barnapeysur og húfur. Hún er líka að hanna fyrir okkur ungbarnasett sem vonandi verða komin á boðstólinn í október. Við erum sem sé mjög bjartsýnar og glaðar, alltaf í nægu að snúast. Málið er að við þurfum auðvitað að fara að fá smásögurnar í hús ef bókin á að koma út fyrir jól, en það verður auðvitað bara að koma í ljós.En langaði bara að dásama þetta haust sem lítur út fyrir að ætla að verða bæði gjöfult og gott.  </description>
Kindur og korn
      <description>Þá er kominn yndislegi september með kindum, korni og alskyns störfum tengdum haustinu og uppskeran kemst í hús. Við erum svo heppin að vera búin að klára heyskapinn. Halldór keyrði síðustu háarrúllunum heim í gærkvöldi og vaknaði svo fyrir allar aldir í morgun til að hreinsa túnin. Þetta var yndislega skondinn heyskapur í gær, Dagrún lá fyrir aftan sætið í vélinni hjá Halldóri og las bók meðan  hann keyrði rúllum og sú stutta kláraði heila bók. Mætti ég kannski biðja um sófann. Velti því fyrir mér hvort ég hafi einhverntíman verið svo háð mínum elskulega að ég legði það á mig að vera samanhringuð í traktor að lesa, kannski þegar ég var 16 ;) En sætt er það.Fröken Guðbjörg var líka mjög sæt þeagr hún beið brosandi eftir skólabílnum fyrsta skóladaginn. Mátti til með að sína ykkur brosið. Svei mér gott að vera svona ánægður með skólann sinn.Annars er lífið dásamlegt. Í dag koma kindur af heiðinni og á morgun er Auðkúlurétt. Að þessu sinni ætla ég að vera í réttinni að draga mínar kindur, en Gunna á Kúlu ætlar að halda áfram að standa vaktina í sölu á kræsingum inni í Dalsmynni. Svo er auðvitað réttarball annaðkvöld. Ingvi og Gunna störtuðu því með prýði í fyrra og ætla örugglega að toppa sjálf sig núna  Af mér persónulega er það að frétta að á mánudaginn mun ég byrja hjá Sunnu í einkaþjálfun og ég hlakka mikið til. Langar bara að koma mér í form og ná af mér slatta af kílóum og ég er viss um að Sunnu tekst að hjálpa mér við það. Fyrirtækið sem hún og Héðinn, hennar ektamaki, eru með heitir Ný spor ehf og bíður uppá hin ýmsu aðstoð í þreksalnum á Blönduósi. Ég fæ smá kjánahroll út af sjálfri mér er ég hugsa um mælingarnar á þyngd, ummáli og fitu. En nú er bara kominn tími á að hugsa um eigin skrokk. Einhver sagði um daginn: Ætlarðu að halda áfram að læra og þroskast eða ætlarðu bara að eldast? Svarið mitt er að ég ætla að halda áfram að læra og þroskast og hugsa vel um yndislega skrokkinn minn sem svo sannarlega hefur staðið sig það sem af er. Málið er að jafnvægi þarf að haldast, skrokkurinn minn hefur staðið sig vel gagnvart mér og mér ber líka að gera það gagnvart honum.Þetta er ekki Grasa Gudda, heldur Hrafnhildur yndislega vinkona mín sem gerir skart fyrir Töfrakonur úr silfurleir. Hún er búin að fara með reglulegu millibili í sumar uppá Kjöl að tína lauf til að gera skart. Maríustakkurinn er vinsælastur enda hefur hann eistaklega góða orku fyrir konur, samlíf og frjósemi. Maríustakkurinn er líka helgaður Maríu mey og var áður helgaður Freyju og Frigg svo það hlýtur að vera margt gott með honum.Nú eru komnir miklir kappar hér í kjöt og kjötsúpu svo bloggið verður að bíða.Kem aftur..................</description>
Hundar og reiki
      <description>Yndislegur tími þetta. Veðrið leikur við mann og alltaf eitthvað gott að gerast. Ég var t.d. að enda við að klára 1. stigs námskeið í reiki sem var yndislegt eins og alltaf. Það er svo gott að finna að þó að árin líði þá eldist þessi forna aðferð alltaf jafn vel. Það er alltaf jafn gaman að kenna hana og fólk upplifir hluti sem eru undursamlegir og góðir. Planið hjá mér er að hafa upprifjunarnámskeið fyrir þá sem eru búnir að taka reiki og hafa lítið notað það og bara alla sem vilja sem allra fyrst í Dalsmynni ef Gunna lánar mér húsið ;) Gunna sem núna er í göngunum er sjálf frábær heilari svo ég hef nú trú á að það verði auðvelt að semja. Hlakka mikið til að hitta gamla nemendur og rifja upp með þeim.En talandi um Dalsmynni þá er Glókollur "besti hundur í heimi" ættaður frá Svan í Dalsmynni á Snæfellsnesi. Þessi mynd var tekin af honum á Vorboðavellinum þar sem hann var um síðustu helgi að hitta ættingja á Landsmóti smalahunda. Svanur tók þessa mynd af honum og sonardóttur hans en litlu fallegu vinkonurnar Guðbjörg og Magnea fylgdust með.Þessi keppni var frábær(er mér sagt). Langar bara að tala um það vegna þess að ég er alltaf svo montin þegar fólkið mitt hér heima er að sláí gegn. Bjarki og Deddý gerðu það víst áreiðanlega enda höfðu þau veg og vanda að þessari keppni. Bara frábært og Bjarki er sko bara snillingur, ég hef alltaf sagt það. En þó að Glókollur minn kæmist ekki á verðlaunapall held ég að fólk hafi samt gert sér grein fyrir að hann stendur undir nafni "besti hundur í heimi". Nú er skólinn byrjaður og Guðbjörg prinsessa farin að rífa sig upp fyrir allar aldir brosandi og glöð til að mæta á réttum tíma í skólabílinn, ásamt Glókolli sem er eins og skugginn hennar. Guðbjörg er byrjuð í stóra skóla sem er MJÖG merkilegt og skemmtilegt og Magdalena spennandi og góður kennari. Hvað er hægt að hugsa sér betra en að senda börnin sín glöð og brosandi burt í skólann hvern dag? Það er yndislegt. Húnavallaskóli er góður skóli og ég er stolt af honum.Blogga fljótt aftur :)</description>
Sögur og spádómar
      <description>Töfrakonur hafa ákveðið að gefa út smásagnasafn sem á að innihalda sögur tengdar stöðum eða viðburðum úr Skagafirði og Húnavatnssýslum. Við höfum ekki sett ströng skilyrði um innihald eða höfunda. Málið er að við vonumst til að fá sem mest til að velja úr og gefa út smásögurnar fyrir næstu jól. Það ætti að geta tekist ef fólk gramsar í skúffum og sest við tölvurnar eða með pennann sinn og gerir einhverjar góðar sögur. Við erum heldur ekki með ströng skilyrði með lengd heldur treystum við höfundum til að vita svona nokkurn veginn hvað er við hæfi. Við getum auðvitað ekki takið við mjög löngum smásögum.Sannarlega vona ég að fólk taki við sér. Ég hlakka svo til að vita hvað kemur úr úr þessu enda er eitt af okkar hjartans málum að varðveita sem flest af svæðinu okkar og þar á meðal sögum. Við þyggjum líka með þökkum ljóð og frásagnir til varðveislu. Seinna kemur vonandi út safn af ljóðum og ýmsu öðru og við erum þegar farnar að safna ýmsu efni sem ekki má falla í gleymskunnar dá.Ef þið eruð að spá í hvað við eigum við með að eitthvað í sögunum tengist staðháttum, atburðum eða fólki, þá get ég nefnt dæmi. Sagan getur gerst á Suðárkróki, Borgarvirki, Hveravöllum, Vatnsdal eða í göngum á Grímstunguheiði, svo eitthvað sé nefnt. Það er líka nóg að staðhættir komi við sögu, eða einhver nafnkunnur eins og Geirmundur, Villi lögga, Ella tónlistarkennari, Gvendur Bratti, Palli tannlæknir, Kolla klippikona, Natan Ketisson, Grettir eða Rugla. Þetta er alveg opið og á bara að vera skemmtilegt og við munum að sjálfsögðu áskilja okkur rétt til að velja úr og vonandi verður eins mikið af sögum sem koma til okkar og spár á Kántrý, þá verðum við ekki í vandræðum með að láta þennan draum rætast.Við munum auglýsa mjög fljótlega eftir sögunum svo endilega farið að leggja höfuðið í bleyti enda draumurinn okkar að bókin komist út fyrir jólin. Við Töfrakonur hlökkum mikið til að fá sögurnar í hendur enda vitum við að margir góðir pennar eru út um allt. Við erum að sjálfsögðu farnar að taka við sögum nú þegar. Þeir sem vilja senda okkur geta sent á eitthvað af netföngunum okkar sem eru: Birgitta langamyri@emax.is Jóhanna brandsstadir@emax.is og Þuríður tury.moa@simnet.is  Ekki hika bara ýta á send :)Já, eins og einhver ykkar vita þá vorum við að spá á Kántrýhátíðinni með yndislegum konum sem eru með Spákonuarfinn á Skagaströnd. Það gekk mjög vel og var mok aðsókn. Við komumst sem sé að því að við erum alveg til í að gefa kost á okkur í þetta, t.d. í saumaklúbba og aðra hópa. Bara skemmtilegt og frábært að vera á Skagaströnd.Við vorum í Árnesi sem er elsta húsið í bænum og þar er sko góður andi og gott að vera. Við spáðum á föstudags og laugardagskvöld. Á laugardagskvöldið voru þær spákonur Skagastrandar, Dagný og Sigrún með lófalestur í spátjaldinu og það var líka alveg troðfullt og komust færri að en vildu. Þetta var afar dýrmætt fyrir okkur Töfrakonur og ekki síst að fá að tengjast þessum frábæru konum á Skagaströnd og fá að skoða allt og sjá hvað þær eru að gera. Þær eru líka að selja fyrir okkur þessar elskur. Ég vona bara að það verði áframhaldandi samstarf hjá okkur.Eins og þið sjáið er um nóg að hugsa á milli þess sem ég horfi á manninn minn og hans vini koma grunni undir gamla húsið mitt sem hefur fóstrað mig alla tíð. Kominn tími til að það fengi grunn (kannski fæ ég þá pallinn). En nú er sem sé langt komið að steypa undir húsið mitt og hægt að fara að búa til malarpúða í kringum það. Þetta verður örugglega flott  hjá mér fyrir rest og líklega skynsamlegt að byrja á grunninum.Annars erum við í góðum gír á Löngumýrinni og hugmyndin að blogga fljótt aftur :)</description>
Sólarsumar
      <description>Ég er eiginlega farin að sjá að ég þarf að blogga á hverjum degi, það er svo margt skemmtilegt sem gerist hér alla daga. Núna verð ég auðvitað að byrja á að setja inn mynd af fallegu silfurstelpurm Töfrakvenna. Þessar dömur ( Anna, Guðbjörg og Lilja) tóku þátt í míkróhúninum á Húnavöku í eldri flokki og unnu silfur. Við erum að vonum mjög ánægðar með þær. Stelpurnar stóðu sig vel, enda voru þær búnar að æfa sig og tóku lagið "Komum ríðandi að austan" sem Helgi Björns og reiðmenn vindanna syngja svo skemmtilega. En Húnavakan var alveg frábær og það sem ég sá og heyrði tókst alveg með ágætum. Það skemmti heldur ekki að þessi dásamlega sundlaug er komin á Blönduós. Þar er hægt að gleyma sér klukkutímum saman, ég tala nú ekki um eins og núna þessa dagana sem er sól og hiti. Held að fólk geti sparað sér Spánarferð og verið bara í sundlaug Blönduóss og farið þess á milli í skoðunarferðir um fallegu sveitirnar okkar.Annars gengur lífið bara ljúft á Löngumýri. Búin að heyja og rakið að komast í rúllur einmitt núna. Þá tekur auðvitað við að bera á aftur og fara svo í önnur verk, eins og að grafa frá húsinu og hrossast. Ég á von á því að við tökum graðhestana úr hryssunum í vikunni og komum stóðinu aftur á sína haga í Tungunesi. Það er annars alveg dásamlegt hvað öll hross sækja þangað. Þau sem hafa fengið að ganga í Tungunesi vilja þangað aftur, það er frábært. Við eigum mikið af litríkum og flottum folöldum, hefðum þurft að geta sýnt þau fleirum áður en þau fara á hálsinn aftur, en þó potast allt. Seldi t.d. í hádeginu alveg gullfallegt bleikt merfolald. Annars er allt í góðum gangi með hrossin, er meira að segja farin að skjótast á bak sjálf, loksins. Við eigum slatta af unghrossum sem eru í þjálfun núna enda virðist hrossapestin gengin yfir, a.m.k. vona ég það. Tryppin sem fóru í hrossahólfið virkuðu hraust. Gaman fyrir þessi grey að komast í sumarhagana, hlýtur að vera eins og fara í sumarfrí. Annars get ég nú kannski ekki alveg vitað hvernig hross hugsa.Þessi mynd sýnir best hvernig veðrið er búið að vera í allt sumar, sól og sæla. En þarna er Kristín á Grund vinkona og bekkjarsystir Guðbjargar í heimsókn og þær voru úti að dúllast með Hrafnhildi Björk yngri sem var líka í heimsókn ásamt foreldrum sínum. Það var mjög skemmtilegt að sjá þau þó stutt væri. Linda er svo mikill engill að þau Raggi fóru bara út í fjós fyrir mig í 30 stiga hita að skafa stéttar og þrífa. Auðvitað elskar maður svona fólk meira en allt annað.Af Töfrakonum er það að frétta að lopapeysurnar seldust upp í Áfanga hjá Stínu sem er auðvitað bara snillingur. Það liggur ljóst fyrir að Jóhanna töfrakona þarf að prjóna svona hundrað hestapeysur fyrir næsta sumar, sirka 25 ungbarnasett(guði sé lof að margir eru að eignast börn) fyrir utan allt annað sem er hannað og pantað. Það er auðvitað bara tær snilld. Ég vildi bara að fólk pantaði í tíma það sem á að vera t.d. í jólagjafir svo hægt sé að redda öllu sem þarf.Töfrakonur eru líka á fullu í að undirbúa útgáfu á fleiri verkum, bæði eftir sjálfar sig og aðra. Það er mjög spennandi óþrjótandi hugmyndir. Samt eru vel þegnar allar hugmyndir og pælingar. Við fengum lager af gömlum bókum eftir mig sem við erum að selja líka. Því miður eru bara átta titlar fáanlegir, hitt er löngu uppselt. Málið er að kannski verðum við að hefjast handa við endurútgáfu sem fyrst, því að nóg er af efninu hjá okkur öllum. Við eigum þó sem betur fer slatta af kiljunum mínum, Ingu og Háska á Hveravöllum.Þuríður vinnur á fullu í kremum og töfraspreyi sem er sannarlega að gera sig. Hún kemur vonandi hingað norður strax eftir helgina því að það er ótrúlega margt sem við þurfum að vinna saman núna, enda ekki hist saman þrjár af neinu viti svo lengi. Það var ekkert að marka á Húnavöku, þá vorum við svo montnar af stelpunum að fátt annað komast að.Var að fá ný gleraugu á dögunum, sem eru margskipt. Það er sko bara fullt starf og rúmlega það að venjast þeim. Er því styttra í tölvunni í einu,en ég mun aldrei láta mig og innan skamms mun ég vera búin að læra á þetta nýja hjálpartæki. Kem fljótt aftur.</description>
Sumarblogg
Kærkomnar kiljur
      <description>Aldeilis góður dagur þessi Jónsmessudagur. Það er ekki nóg með það að þetta sé uppáhaldstíminn minn á árinu heldur fengum við Töfrakonur í hendur þrjár nýjar kiljur, sem sé skáldsögurnar okkar Jóhönnu Helgu, sem einu sinni birtust sem framhaldssögur í "Heima er bezt". Við erum að vonum hamingjusamar með það og svo sannarlega vona ég að þær seljist allt hratt og vel, ásamt ljóðabókinni "Konfektmolum" sem við vorum búnar að fá í hendur örlítið áður. Þetta er alveg frábært og við þurfum svo sannarlega á því að halda að fá góðar móttökur og mikla sölu, þar sem við erum með ótal mörg verkefni í gangi og margar skemmtilegar vörur tilbúnar til framleiðslu þegar tími og fjármagn er til. En við erum bjartsýnar og vonandi fáum við þann meðbyr sem við þurfum til lað geta haldið áfram að vaxa á þeim hraða sem við óskum og hingað til hefur staðið. En góðar viðtökur, viðbrögð og klapp á bakið hefur komið víða að og erum við auðvitað þakklátar fyrir það.Ég set þessa mynd þarna inn þar sem Jóhanna Helga afmællisbarn(hún á afmæli á Jónsmessunni) og fallegi nýklippti maðurinn minn eru að spá í og skoða "Hveravallagullið" góða sem Þuríður Töfrakona gerir svo snilldarvel. Verð að monta mig aðeins af þessu öllu saman því ég er bara svo ánægð með gang mála. Mér sýnist reyndar að við "Húnvetningar" séum að taka við okkur og nú munu fyrirtæki og fleira skemmtilegt spretta upp með frábæra hluti. Við erum nú einu sinni með svo margt hjá okkur sem er svo spennandi og flott. Ég held að Blönduós sé alveg að fara að blómstra. Kannski er ég bjartsýn í dag, en Töfrakonur eru nú dálítið góðar að spá líka ;) Og hafa oftar en ekki rétt fyrir sér. Bara svo þið vitið það þá taka þær líka að sér að spá :)Ég verð eiginlega að segja ykkur frá því að tvo síðustu daga hef ég verið á ferðinni að dreifa hér á svæðinu kiljunum okkar og fleiri vörum frá okkur. Í gær fór ég í Skagafjörðinn, Varmahlíð og KS. Fékk alveg dásamlegar móttökur. Í dag fór ég á Hvammstanga, Víðigerði og Blönduós. Ég get sagt  ykkur að það er ómetanlegt hvað fólkið hér tekur okkur vel og vill allt fyrir okkur gera. Ég vona að þau öll fái jákvæðnina sína og elskulegheitin til baka margfallt. Ég er því bara enn með bros á vör og þakklæti í hjarta.En fyrst að ég er svo upptekin af Töfrakonum þá langar mig að kjafta í ykkur því sem er framundan hjá okkur. Það er búið að hanna fyrir okkur mjög falleg og jákvæð "Töfraspil". Ég gerði texta og systir mín Ólöf Haraldsdóttir teiknaði fyrir okkur mjög fallegar myndir við þau. Vonandi komast þau sem fyrst í prentun. Einnig er á döfinni að prenta mjög falleg samstæðuspil með jurtamyndum sem Þuríður hannaði. Síðan er vonandi stutt í þriðja töfrasteininn sem ber nafnið "Heilunarsteinninn". Töfraspreyið okkar er alveg að detta í búðir og er mjög spennandi vara. Það er einnig að koma ný lína í "Hveravallagullið", en það hefur hlotið mjög mikið lof. Allt er að gerast. Bóka og kiljuútgáfan er líka bara rétt að byrja og við erum auðvitað mjög spenntar með þetta allt saman.Þið ættuð bara að vita hvað hún Jóhanna á í fórum sínum og hefur hvergi verið birt   Verkefnin tengd heimabyggð eru komin á koppinn en ég má nú víst ekki kjafta öllu sama daginn. Það mun upplýsast mjög fljótlega hvað við erum að gera í því og ég hlakka mikið til........Langar að segja ykkur líka frá því að Sigga vinkona mín Svavars. kom við hjá okkur um daginn. Alveg sérlega gaman að fá hana í heimsókn. Ingi sæti keypti handa mér "bænastól" af henni sem ég nota núna við hugleiðslur og annað slíkt. Alveg ótrúlega snjallt. Vissi bara ekkert hvað hún var að tala um fyrst en svo prófaði ég og komast að því að það er mjög gott að sitja á þessu, bakið er alveg beint og orkuflæðið því fullkomlega rétt. Hún Sigga er snillingur.Þetta er bænastóllinn :)Bara svo þið haldið ekki að ég sé að vanrækja fjölskylduna mína þá get ég upplýst ykkur um að við höfum það fínt. Það er verið að plana að laga eitthvað til í kringum húsið, vonandi fæ ég pall eða hellur sem ég get flatmagað á með einhverju skjóli. Ég elska að liggja í sól........... Ingi segir reyndar að hann ætli að fylla allt í kring með sandi, ég sé hvort sem er alltaf að biðja um að komast í sand og flatmaga þar.............við sjáum nú til. Allavega er Bjarni búinn að koma og kíkja á málið, og það sem best er að hann er sammála mínum hugmyndum að öllu leyti. Við erum svo heppin að Gunnar og Lilja eru búin að vera hjá okkur í nokkra daga. Gunnar er mesta hamhleypa til vinnu, eins og allri vita sem til þekkja, og ég lifi eins og blóm í eggi. Karlarnir fara í fjósið og ég dúlla mér............hehehe........eða er á rúntinum fyrir Töfrakonur. Guðbjörg er alsæl að hafa vinkonu sína hjá sér. Svo  hefur nú Alma vinkona verið hjá henni í heimsókn svo að hún er alsæl. Eitt af gleðifréttum hennar er líka að Magnea vinkona  hennar verður hjá ömmu sinni og afa í Litladal í vetur, svo að mín hlakkar mikið til skólans. Það verða svo miklar breytingar hjá henni næst. Nú er hún orðin stór stelpa, fer í stóraskóla og verður í samkennslu með tveim eldri árgöngum. Þetta er allt mjög spennandi. Hún er líka himinsæl með kennarann sinn. Magdalena mun verða umsjónarkennarinn og það er alveg frábært. Guðbjörg hefur alltaf hlakkað til að fá að vera hjá henni. En eitt er víst, við mæðgur kvíðum ekki haustinu, heldur gleðjumst yfir hverjum góðum degi sem er. Við erum báðar alveg vissar um það að sumarið verður yndislegt og líka haustið og komandi vetur með öllum sínum spennandi hlutum. Hið liðna skilur eftir góðar minningar og framtíðin verður björt, en það sem skiptir máli núna er að njóta augnabliksins.Má til með að setja inn þessa mynd. Þetta eru Arnheiður frænka á Eyvindarstöðum og Einar Bjarni og Höskuldur frá Mosfelli. Yndislegt ungt fólk sem við vorum í útskriftarveislu hjá um daginn. Hún var haldin í Dalsmynni með miklum myndarbrag eins og allt sem þessar fjölskyldur taka sér fyrir hendur. Mæðurnar Sísa og Fanney eiga enga sína líka á þessu sviði. Verð bara að segja að þessi þrjú eru alveg yndisleg eins og svo margt af fallega unga fólkinu okkar. Af Halldóri mínum er það að frétta að hann er að vinna í Blönduvirkjun, sem er gott og bíður í ofvæni eftir að hitta sætu kærustuna sína á Hólmavík :)Við höfum reyndar verið mjög veisluglöð þetta vorið. Þann 17. vorum við í fermingarveislu Atla Einarssonar í Húnaveri. Virkilega glæsilegt og vel heppnað. Þetta er líka svo flottur og góður strákur.Ætla að koma inn nýjum myndum og láta þetta duga í bili. Endilega verið dugleg að tjá ykkur um síðuna mína og skoða. Ætla líka að bæta inná smásögurnar og Töfrakonurnar. Vona að þið eigið öll góða daga með frið í hjarta og bros á vör :)</description>
Konfektmolar
      <description>Kæru vinir, þetta er dagurinn sem sannarlega er til þess fallinn að skála eða dansa,  hoppa um og öskra af gleði. Það er ekki bara vegna þess að Jón Gnarr er orðinn borgarstjóri, nei ónei, það er vegna þess að fyrsta bók Töfrakvenna kom út. "Konfektmolar" eftir Jóhönnu vinkonu mína á Brandsstöðum er komin út, til sölu hjá okkur, á Skagaströnd og eftir helgina hjá Hrafnhildi í blómabúðinni og fleiri stöðum. Sko... þið sem viljið kaupa endilega hafið samband, við erum að springa úr stolti. Trúið mér, ljóðin hennar Jóhönnu eru í senn grípandi, áreitin, falleg, þau eru  bara allt. Ég vona að þið kaupið þau og svo bækurnar okkar, hverja af annari. Það eru alveg að koma þrjár kiljur til viðbótar sem eru skáldsögur ( eftir mig og Jóhönnu) sem birst hafa í Heima er bezt. Eins og maðurinn sagði : " Ef ég ætti vodka þá myndi ég fá mér vodka og kók, ef ég ætti kók". En þar sem ég er hætt að drekka bæði vodka og kók þá ákvað ég bara að blogga í gleði minni. Við Töfrakonur, erum sem sé ALLAR hoppandi skoppandi glaðar.En við ykkur vil ég segja: Við Töfrakonur erum að gefa út efni eftir okkur sjálfar og við viljum líka í framtíðinni líka gefa út efni eftir ykkur. Við ætlum að gefa út alskynss efni frá Norðurlandinu svo endilega hafið samband ef þið lumið á einhverju áhugaverðu sem þið viljið fá útgefið. Auðvitað lofum við engu, en við ætlum að vera metnaðarfullar og gera vel. Við höfum á stefnuskránni að gefa út fróðleik, glens og gaman úr Húnavatnssýslu og endilega hafið sambandi ef þið vitið af efni sem þarf að komast í útgáfu, því að þó að Húnavakan sé góð þá þarf meira til svo að arfur okkar glatist ekki. Við erum sem sé að safna vísum, gamansögum, fróðleik og ýmsu fleiru. Endilega látið okkur vita af þið lumið á efni.Fyrst við minnumst á Húnavöku þá langar mig að þakka fyrir þessa sem nú er nýkomin út. Ég á smásögu í henni svo að Jóhann í Holti færði mér bókina heim í eldhús, sem var mjög skemmtilegt, Það er margt gott í þessari Húnavöku eins og endranær en mér fannnst samt mest gaman að lesa um konur sem hafa flutt hingað. Þó að það sé gaman að tala við gamla og gróna Húnvetninga, þá var þetta sko aldeilis kærkomið uppbrot.Áður en að ég sleppi alveg talinu af Töfrakonum þá langar mig að koma á framæri að í sumar munu konurnar sem eru með Spákonuarfinn á Skagaströnd selja vörurnar okkar, einnig Hrafnhildur í Blómabúðinni á Blönduósi, þau hjónakorn í Húnaveri, við sjálfar og fleiri. Ef þið hafið spurningar endilega hafið samband við okkur og látið vita. Við ætlum okkur stóra hluti, við höfum fulla trú á sjálfum okkur, en við ætlum að vera skynsamar og hafa útgáfu og framleiðslu eftir efnum og aðstæðum. Það er líka margt spennandi framundan. T.d. stefnum við að því að vera mað spákonunum á Skagaströnd á Kántrý sem er bara fullkomlega frábært. Við erum sko opnar fyrir öllum skemmtilegum hlutum og við viljum gjarnan að sem flestir hafi samband.Ég viðurkenni að ég er nú ansans ári syfjuð eftir sauðburðinn sem er að renna sitt skeið. Sjö ær og gemlingur eru óborin og ég bíð bara eftir að þau klári. En vorið er búið að vera okkur afar gott, bæði veðurfarslega og pólitískt. Það að Þóra vann svo mikinn sigur hjá okkur í Húnavatnshreppi er auðvitað bara sérlega frábært. Er varla búin að ná mér niður eftir kosningar og naut þess í botn að vera með einhverskonars tilbúið kæruleysi, en auðvitað á hver og einn að ráða sér. Það er ekki amarlegt að fara frá slíku borði og í staðinn ganga inn fjórir frambærilegir og flottir einstaklingar, enda erum við Biggi Upp alveg alsæl. Mér finnst Þóra sérlega flott oddvitaefni. Þau eru auðvitað öll góð, en Ingibjörg er komin til að vera. Svona á lífið líka að snúa. Flottar konur í flottum hreppi, alveg töfrandi :) Veit að Elistinn á eftir að standa sig vel.En nú er Óli lokbrá kominn. Farið vel með ykkur kæru vinir.</description>
Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt
      <description>Það skemmtilegasta sem ég hef heyrt síðustu daga er brúðkaup Ægis og Gerðar. Ég er svo hoppandi skoppandi glöð með að þau skuli vera búin að láta pússa sig saman. Það er bara alveg frábært svo ekki sé meira sagt. Þetta einmitt það sem við þurfum að gera, finna ástæðu til að gleðjast og gleðja aðra á þessum síðustu tímum þar sem menn hafa miklar áhyggjur af efnahag, náttúruhamförum og fleiru slíku. Ég tala nú ekki um þegar menn fara að velta fyrir sér sveitarstjórnarkostningum ofan á allt annað. Já, það er sem ég segi, ég tek ofan fyrir Gerði og Ægi. Svona góðar fréttir vildi ég fá á hverjum degi. Til hamingju fallegu Stekkjardalshjón.En ef ég upplýsi ykkur um hvað ég hef verið að velta fyrir mér þá er það skemmst frá að segja að ég var að koma af aðalfundi Kvenfélags Svínavatnshrepps. Ég verð að segja það að þetta er afar skemmtilegur og góður félagsskapur og frábært að eiga vinkonur í kvenfélaginu. En þó að sl. tvo mánuði hafi maður bókstaflega verið að drukkna í fundum var ósköp notalegt að hitta stelpurnar í kvöld. Í fyrrakvöld var framboðsfundur á Húnavöllum og allt gott um það. Held nú samt að við vitum öll hvað við ætlum að kjósa og svona fundur breyti ekki miklu þar um. Hins vegar er ég sannfærð um að allri frambjóðendur vilja gera allt sitt besta og ekki vantar að við eigum frambærilegt fólk í Húnavatnshreppi.En kannski smá Töfrakonufréttir. Töfrarúnirnar eru komnar á markað og mér líst alveg svakalega vel á þær. Þetta eru spárúnir í fallegum leðurpoka með leiðbeiningum bæði á íslensku og ensku. Alveg frábært að fá þær og þær harmonera algjörlega við töfrasteinana okkar.Það er svo margt skemmtilegt að gerast og fljótlega munu vörurnar okkar verða komnar til sölu í blómabúðinni á Blönduósi hjá henni Hrafnhildi og líka hjá Spákonunum á Skagaströnd. Svo verður þetta bara allt að vinda uppá sig hægt og sígandi eftir því sem efni og aðstæður leyfa. Ætla að setja inn nokkrar töfrakonumyndir til gamans. Má líka geta þess að nú er hægt að fá hálsmen, armbömd og eyrnalokka í Hveravallagullslínunni, allt að gerast:)Annars hafið það bara sem best alltaf:)</description>
Tíminn á meðan kakan bakast...
Ég hlakka svo til...
      <description>Blogg,blogg,blogg....:)Það er ástæða til að blogga og njóta lífsins þegar allt gengur svona vel. Í augnablikinu er ég alveg alsæl, nema ég væri alveg til í að hafa litlu krúttlegu tengdadósluna hjá mér líka. Halldór er sem sé kominn heim og því bæði börnin hjá mér:) Það er bara yndislegast í heimi. Á morgun hitti ég Nínu mína og geri fullt af skemmtilegum hlutum svo að lífið er bara dásamlegt.Í gær fórum við "Töfrakonur" ég og Jóhanna að Gauksmýri og tókum á móti styrk frá Menningarráði. Það var fullkomið. Auðvitað hefðum við viljað að Þuríður væri með okkur en það var því miður ekki hægt. Þetta var frábært og afar gott fyrir okkar unga fyrirtæki að fá styrk og ekki síður það að fólk hafi trú á okkur og því sem við erum að gera. Ég dansaði út í sólina og vorið eftir þessa viðurkenningu, TAKK yndislega Menningarráð:) Hér kemur allt um "TÖFRAKONUR"Fyrirtækið "Töfrakonur/ Magic women" er stofnað til framleiðslu og sölu á ýmsum vörum sem tengdar eru ferðaþjónustu og menningu. Hugmyndin er að vera með margvíslegar vörur s.s. gjafavörur ýmsiskonar sem þá eru að stæðstum hluta hugsaðar fyrir ferðamenn, einnig korta, kilju og bókaútgáfu, framleiðslu á skartgripum, fatnaði og vöru unnum úr jurtum. Ýmsar hugmyndir hafa komið upp og framtíðarsýnin er sú að með tíð og tíma eignist fyritækið eigin verslun og muni hafi fleiri í vinnu en eigendur. Eigendur fyrirtækissins eru þrír og er eignarhlutfallið jafnt. Það eru Birgitta Hrönn Halldórsdóttir Jóhanna Helga Halldórsdóttir og Þuríður Guðmundsdóttir. Heimilisfesta fyrirtækisins verður á Syðri-Löngumýri í Húnavatnshreppi og endurskoðandi er Ingibjörg Kirstinsdóttir sem rekur bókhaldsskrifstofuna Elfu á Skagaströnd. Fyrstu vörur "Töfrakvenna" eru "Óskasteinninn" og "Draumasteinninn"sem eru skrautsteinar til gjafa. Þeir eru í pokum úr íslensku fánalitunum og með fylgir mantra á íslensku og ensku. Steinnin er í fallegum gjafakassa. Fleiri steinar eru væntanlegir með öðrum nöfnum og möntrum. Í prentun eru síðan spil með lógói fyrirtækissins og spil með íslensku jurtunum sem munu fljótlega koma á markað. Einnig er fyrirtækið að leita tilboða í prentun á fjórum kiljum sem eru tilbúnar til útgáfu. Einnig eru væntanleg spáspil sem nefnast "Töfraspilin" og er verið að vinna að hönnun þeirra fyrir fyrirtækið. Þetta ásamt fleiri hugmyndum er hugsað sem sumarsala fyrir sumarið 2010. Ekki er ljóst hversu hratt framleiðslan mun ganga,enda margir þættir sem spila þar inní. En hugmyndin er að eigendur hafi atvinnu af vinnu við fyrirtækið og síðan fleiri í framtíðinni.    Fyrirtækið TÖFRAKONUR / MAGIC WOMEN var stofnað 14. febrúar 2010. Fyrirtækið TÖFRAKONUR / MAGIC WOMEN gefur út spil, bækur, kort, framleiðir skartgripi (HVERAVALLAGULL) og snyrtivörur, skrautsteina til gjafa og margt fleira. TÖFRAKONUR / MAGIC WOMEN eiga heima á Norðurlandi vestra.   Símar:  452 7119, 452 7140, 553 5218 Netföng:  langamyri@emax.is, brandsstadir@emax.is, tury.moa@simnet.is  Fyrirtækið hefur mjög breiðan markhóp.  Í sambandi við gjafavörur fyrir ferðamenn er verið að hugsa um bæði kyn og allan aldur.  Skartgripir og ýmis önnur gjafavara er hugsuð fyrir yngra fólk. Spil, kort, handverk og bækur eru einnig hugsuð fyrir alla aldurshópa og bæði kyn. Hugmyndin er að gefa út fréttatilkynningar þegar ný vara kemur.  Bjóða gjafavöruna á ferðamannastöðum til sölu og jafnvel auglýsa í netmiðlum. Fyrirtækið mun vera opið fyrir leiðum til kynningar á vörum sínum og jafnvel semja við dreifingaraðila eins og t.d. í sambandi við dreifingu á kiljum, bókum og fleiru.Hér með er ég vonandi búin að auglýsa okkur pínu :) Er bara svo spennt yfir þessu skemmtilega verkefni :)Annars er allt gott hjá mér. Ég vona að Guð gefi að við sleppum við ösku og ég bið líka um alla hjálp sem hægt er fyrir bændurna og fólkið þeirra á gossvæðinu. Það hryggir mig að hugsa um hvað þar er að gerast. En við skulum öll biðja Guð um að allt fari á hinn besta veg, við getum þó alltaf treyst á hann jafnvel þó að útlitið sé ekki alltaf gott.Nú er mál að linni, verð fljótt hér, með fréttir af fólki, uppákomum og pólitík, en ætla að setja inn nýjar myndir.Knús á ykkur öll.</description>